Marinel Stingaciu hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að nauðga 16 ára stúlku í bifreið sinni skammt frá Reykjahlíð í Reykjavík aðfaranótt 7. október 2024. Stúlkan tók hluta samskiptanna upp á farsíma sinn og reyndist upptakan lykilgagn við úrlausn málsins. Á henni heyrist maðurinn ítrekað krefjast kynferðislegra athafna þrátt fyrir mótmæli stúlkunnar.
Dómurinn var kveðinn upp 27. október síðastliðinn. Stingaciu var 24 ára þegar brotið átti sér stað en stúlkan aðeins 16 ára. Hún hafði þó sagt honum að hún væri að verða 18 ára.
Samkvæmt dóminum hafði stúlkan verið á gangi í miðborg Reykjavíkur þegar hún rakst á manninn við bifreið hans í nágrenni Klambratúns. Henni var kalt og bað um sígarettu og að fá að hlýja sér inni í bifreiðinni.
Maðurinn bauð henni áfengi og hóf síðar kynferðislega tilburði. Stúlkan fékk slæma tilfinningu fyrir aðstæðunum og hóf því hljóðupptöku í farsíma sínum.
Sagðist elska hana og krafðist munnmaka
Á upptökunni, sem var tæplega tólf mínútna löng, heyrast orðaskipti þeirra með skýrum hætti þrátt fyrir háværa tónlist í bakgrunni.
Þegar stúlkan spurði hvað maðurinn væri að gera svaraði hann meðal annars:
„Because I love you. You are my girls.“
Skömmu síðar heyrist hann ítrekað segja:
„Suck it, suck it.“
Stúlkan svaraði „I can't“ og tók ítrekað fram að hún væri of drukkin til að verða við kröfum hans.
Maðurinn lét sér þó ekki segjast og hélt áfram að þrýsta á hana. Meðal þess sem hann sagði var:
„Just put in your mouth, all, all.“
Síðar heyrist hann segja:
„A little bit, put in the mouth, put in the mouth, put in the mouth.“
Á upptökunni heyrist stúlkan hósta og kúgast. Hún segir jafnframt „I will throw up“, en maðurinn heldur áfram að biðja hana um kynferðislegar athafnir.
Hringdi í neyðarlínuna frá Reykjahlíð
Stúlkunni tókst að hringja í neyðarlínuna á meðan hún var enn í bifreiðinni. Á upptöku símtalsins heyrist hún ítrekað óska eftir að komast heim.
Maðurinn svaraði meðal annars:
„I drive, I can drive you home.“
Stúlkan komst loks út úr bifreiðinni og greindi grátandi frá því að henni hefði verið nauðgað. Hún gaf upp staðsetningu sína við Reykjahlíð og óskaði eftir aðstoð lögreglu.
Þegar lögreglumenn komu á vettvang sat hún hágrátandi á gangstétt.
Maðurinn neitaði upphaflega að nokkur kynferðisleg samskipti hefðu átt sér stað en breytti framburði sínum þegar honum var spiluð upptakan.
Héraðsdómur taldi framburð hans að verulegu leyti ótrúverðugan en frásögn stúlkunnar stöðuga og trúverðuga.
Dómurinn taldi sannað að maðurinn hefði þvingað stúlkuna til munnmaka og sett fingur í leggöng hennar án samþykkis.
Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til ungs aldurs brotaþola og þess hversu ófyrirleitin háttsemin var. Var honum gert að sæta tveggja ára fangelsi.





































Athugasemdir