Eitt glæsilegasta einbýlishús höfuðborgarinnar, Sjafnargata 14 í Reykjavík, er enn til sölu, en húsið hefur verið á sölulista frá vorinu 2023. Ásett verð eignarinnar er nú 410 milljónir króna. Þá er nú í fyrsta sinn boðið upp á að leigja húsið.
Húsið, sem var reist árið 1930, hefur um árabil verið talið meðal glæsilegustu íbúðarhúsa landsins og hefur reglulega verið í hópi dýrustu einbýlishúsa á fasteignamarkaði.
Húsið er 384 fermetrar að stærð og telur sjö svefnherbergi og fjögur baðherbergi. Eignin hefur verið endurnýjuð að verulegu leyti.
Árið 2020 var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á húsinu. Þá voru meðal annars endurnýjuð öll gólfefni, innréttingar, lýsing, lagnir og rafmagn. Einnig var skipt um hurðir og glugga, auk þess sem nýtt þak var sett á húsið og þaksvölum komið fyrir.
Þegar eignin var fyrst auglýst til sölu vorið 2023 var ekkert fast söluverð gefið upp og þess í stað óskað eftir tilboðum.
Nú hefur hins vegar verið settur 410 milljóna króna verðmiði á húsið, sem jafngildir rúmlega 1,07 milljónum króna á fermetra.
Athygli vekur að nú er einnig hægt að leigja eignina. Mánaðarleg leiga nemur um 1,5 milljónum króna, eða 18 milljónum á ársgrundvelli.





































Athugasemdir