Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra hvers vegna ríkisstjórnin hefði beðið í tæp tvö ár með að ráðast í hagræðingu í ríkisrekstri. Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag sagði Guðrún heimilin hafa borið kostnaðinn af biðinni. Kristrún sagði að tillögur um hallalaus fjárlög kæmu fyrir fjárlaganefnd á næstu dögum.
Guðrún rifjaði upp að Kristrún hefði fyrir kosningar lofað að negla niður vextina. Nú væru stýrivextir 8% og verðbólga 5,9%, tæpu prósentustigi meiri en þegar ríkisstjórnin tók við. Á sama tíma hefði störfum á almennum vinnumarkaði fækkað og atvinnuleysi væri á uppleið. Ríkisstjórnin hefði aukið útgjöld á meðan Seðlabankinn vann að því að kæla hagkerfið.
„Hvers vegna var ekki ráðist í þá hagræðingu strax? Hvers vegna var beðið með það í tvö ár?“ spurði Guðrún.
Segir aðstæður til vaxtalækkana að skapast
Kristrún sagði ríkisstjórnina hafa tekið við rúmlega 800 milljarða króna uppsöfnuðum halla. Það hefði tekið tíma að fá yfirsýn yfir fjárhagslegar skuldbindingar ríkisins en nú væru að skapast skilyrði fyrir vaxtalækkunum. Hún sagði að hátt í þriðjung verðbólgunnar mætti rekja til hækkana á olíuverði vegna ástandsins í Miðausturlöndum.
„Besta leiðin fyrir okkur til að negla niður vextina, sleggjan sem við þurfum á að halda núna, eru hallalaus fjárlög,“ sagði Kristrún. Til þess að ná því markmiði þyrfti bæði að grípa til aðgerða á tekjuhlið og útgjaldahlið ríkissjóðs.
Deildu um ábyrgð á hallanum
Guðrún andmælti því að ríkisstjórnin hefði erft allan hallann. Hún sagði 140 milljarða króna útgjaldaauka um síðustu áramót vera á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar. Þá hefði beinn kostnaður vegna heimsfaraldursins numið yfir 300 milljörðum króna og kostnaður vegna Reykjaneselda öðru hundraði milljarða.
Guðrún rifjaði upp að Kristrún hefði fyrir kosningar sakað fráfarandi ríkisstjórn um að hafa brugðist almenningi með stjórn efnahagsmála. „Hvers vegna eiga þessi orð ekki við hennar ríkisstjórn og hennar efnahagsstjórn í dag?“ spurði hún.
Í seinna svari sínu sagði Kristrún að fyrri ríkisstjórn hefði haft tækifæri til að bæta afkomu ríkissjóðs þegar hagvöxtur tók við eftir heimsfaraldurinn. „Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin,“ sagði hún. Ríkisstjórnin hygðist nú leggja fram hallalaus fjárlög og kvaðst Kristrún vonast til þess að vextir og verðbólga lækkuðu á næsta ári í samræmi við spár Seðlabankans.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir