Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Hver er Theodór Elmar?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Theodórs Elmars Bjarna­sonar, eins af leik­mönnum liðs­ins.

Á EM 2016
Á EM 2016 Theódór Elmar Bjarna­son í leik Íslands gegn Aust­ur­ríki á EM 2016. Hann átti stoðsend­ing­una í sig­ur­marki Íslands. Mynd: KENZO TRIBOUILLARD / AFP

Árið 2016 komst karla­lands­lið Íslands í knatt­spyrnu í átta liða úrslit á EM í knatt­spyrnu og var það í fyrsta sinn sem karla­liðið náði að kom­ast á EM og var árangur liðs­ins mun betri en flestir áttu von á.

Í hálf­leik í lands­leik Íslands við Lúx­em­borg sem fór fram 16. nóv­em­ber voru leik­menn liðs­ins heiðraðir af KSÍ. Í til­efni þess að tíu ár eru liðin frá þessu afreki mun Mannlíf á næst­unni fjalla um nokkra af helstu leik­mönnum liðs­ins á mót­inu.

Sá fyrsti er Theodór Elmar Bjarna­son.

Efnilegur frá upphafi

Theodór Elmar er fæddur árið 1987 og var snemma ljóst að hann væri efni­legur knatt­spyrnu­maður og var val­inn besti leik­maður Shell-móts­ins í Vest­manna­eyjum árið 1997. Margir aðrir þekktir lands­liðs­menn hafa hlotið þessi verð­laun og þykja þau ágætis vís­bend­ing um fram­tíð­ar­getu í íslenskri knatt­spyrnu. Arnar Þór Við­ars­son, Bjarni Guð­jóns­son, Kolbeinn Sig­þórs­son og Arnór Smárason eru skýr dæmi um það.

Theodór Elmar var þó ekki aðeins þekktur fyrir knatt­spyrnu á sínum yngri árum heldur varð hann meðal ann­ars Íslands­meist­ari í körfu­bolta með KR í 9. flokki og spil­aði þar meðal ann­ars með fram­tíð­ar­lands­liðs­mönnum Brynjari Þór Björns­syni og Darra Hilm­ars­syni.

Það var þó árin 2003 og 2004 sem hinn almenni knatt­spyrnu­maður fór að þekkja til KR-ings­ins en þá hóf hann að spila með yngri lands­liðum Íslands og meist­ara­flokki KR. Spilaði hann tíu leiki í efstu deild með KR árið 2004 og tvo leiki í bik­ar­anum.

Sama ár var til­kynnt að Theodór Elmar og Kjartan Henry Finn­boga­son hefðu verið keyptir til skoska stór­liðs­ins Glasgow Celtic en þeir spil­uðu saman hjá KR.

Á þor­láks­messu 2004 fengu Íslend­ingar að kynn­ast knatt­spyrnu­kapp­anum betur í við­tali við Frétta­blaðið. Í við­tal­inu sagði Theodór Elmar frá áhuga­málum sínum og nefndi sér­stak­lega banda­ríska söngv­ar­ann Usher þegar hann var spurður um tón­list­arsmekk sinn.

„Ég er hrif­inn af allri tón­list en er lang­mest fyrir R&B. Hlusta mikið á FM 95,7 og 89,5. Fíla Usher ansi vel, en finnst þessi tón­list­ar­teg­und almennt töff, takt­ur­inn er flottur og kemur manni yfir­leitt í góðan gír.“

Hann hafði nýlokið við Engum líkur, ævi­sögu Davids Beckham. Hann sagði fót­bolt­ann hafa vakið áhuga sinn á bók­inni og kvaðst dást að því hvernig Beckham héldi ró sinni þrátt fyrir stöðugan ágang og kjafta­sögur.

París var upp­á­halds­borg hans sam­kvæmt við­tal­inu. Þangað hafði hann farið tíu ára gam­all í sinni fyrstu utan­lands­ferð eftir að hafa unnið sér þátt­töku­rétt á litlu heims­meist­ara­móti með því að halda bolta á lofti og rekja hann. Hann sagði ferð­ina þá skemmti­leg­ustu sem hann hefði farið í og nefndi mann­lífið, menn­ing­una og tungu­málið meðal þess sem heill­aði hann við borg­ina.

Fram undan var þó ann­ars konar utan­lands­ferð. Theodór sagði það skrýtna til­hugsun að kveðja Ísland og KR til að fara í atvinnu­mennsku en kvaðst spenntur fyrir því að hefja leik með Celtic.

Þetta var þó ekki fyrsta reynsla miðju­manns­ins erlendis og hafði spilað með Start í Noregi og Stoke í Englandi.

„Ég var þar þangað til ég varð fimmtán en þá flutt­ist ég til Noregs til pabba. Þar spil­aði ég mikið með vara­lið­inu hjá Start í 3. deild­inni og fór síðan að æfa með aðal­lið­inu sextán ára. Ég fékk heim­þrá en fór reyndar út til Stoke í einn mánuð áður en ég hélt heim. Mér leist ekki alveg nægi­lega vel á þetta hjá Stoke, aðal­lega vegna þess að mér fannst borgin ekki henta, er verka­manna­borg. Svo kom ég heim og spil­aði eitt tíma­bil með KR,“ sagði leik­maður við DV sum­arið 2005. Hann greindi jafn­framt frá því að honum hefði staðið til boða að ganga til liðs við hol­lensku liðin Heerenveen og Feyenoord.

Ljóst er að miklar vænt­ingar voru gerðar til Theodórs, sem þá var fyr­ir­liði U19 lands­liðs­ins, en í sömu grein er talað við Willum Þór Þórsson, þáver­andi þjálf­ara Vals og fyrrum þjálf­ara KR-ings­ins.

„Þegar litið er á tækn­ina þá er Elmar einn sá allra besti sem ég hef kom­ist í tæri við, alveg síðan Rúnar Krist­ins­son var að koma inn í KR-liðið. Það sem ein­kennir hann er rosa­lega jákvætt hug­ar­far. Hann hefur þroska á við leik­mann sem hefur spilað mjög lengi. Hann spil­aði nokkra leiki hjá KR í fyrra en hefði lík­lega spilað enn stærra hlut­verk ef hann hefði ekki meiðst rétt fyrir mót. Það er dæmi­gert fyrir hann hvernig hann vann sig í gegnum meiðslin, hann leggur bara á sig auka­lega og vinnur eins og marg­reyndur leik­maður.“

Síðar á árinu var hann svo val­inn í U21 lands­liðið og sagði DV frá því að bolta­tækni Theodórs hefði verið líkt við bolta­tækni Cristiano Ronaldo sem þá lék með Manchester United.

Því miður fyrir Theodór náði hann aldrei að festa sig í sessi hjá Celtic þrátt fyrir mikið lof þjálf­ara hjá vara- og ung­linga­liðum liðs­ins. Spilaði hann aðeins einn leik með aðal­lið­inu á þeim fjórum árum sem hann lék í Skotlandi en það var í tapi á móti Hibern­ian og þá var hann ónot­aður vara­maður í úrslitum skoska bik­ars­ins árið 2007 þegar Celtic vann Dun­ferm­line.

Hann náði þó að spila sína fyrstu leiki með A-lands­liði karla meðan hann var á mála í Skotlandi og lék þrjá leiki með lands­lið­inu 2007, þá 20 ára gam­all.

Tíð félagsskipti en ávallt byrjunarliðsmaður

Í jan­úar 2008 gekk Theodór Elmar til liðs við Lyn í Noregi en Celtic hafði hafnað til­boðum frá danska lið­inu Viborg og sænska lið­inu Gauta­borg en liðið var ríkj­andi deild­ar­meist­ari í Svíþjóð á þeim tíma.

Óhætt er að segja að honum hefði gengið vel í Noregi en Íslend­ing­ur­inn spil­aði nær alla leiki liðs­ins. Hann var seldur þegar annað tíma­bil hans var hálfnað vegna fjár­hags­örð­ug­leika Lyn og var það einmitt hið sænska Gauta­borg sem keypti Theodór.

Vel­gengni hans hélt áfram í Svíþjóð og var hann fasta­maður í sænska lið­inu í tvö og hálft ár en gekk svo til liðs við hið danska Randers árið 2012 þar sem hann spil­aði alla leiki eftir að hafa náð að hrista eftir erfið meiðsli. Árið 2015 gekk hann svo til liðs við AGF í Danmörku og hélt áfram upp­teknum hætti þar.

Hann tók þó heldur betur óvenju­lega ákvörðun þegar hann gekk til liðs við Elazığspor í Tyrk­landi en liðið lék þá í næstefstu deild þar í landi. Töldu sumir lands­liðs­mann­inn vera að taka stórt skref niður í getu­stigi en var þetta árið 2017 og Theodór aðeins þrí­tugur. Lék hann með tveimur öðrum liðum í næstefstu deild í Tyrk­landi en það voru Gazişehir Gaziantep og Akhisar­spor.

Í Tyrklandi
Í Tyrk­landiTheódór Elmar Bjarna­son í leik með Akhisar­spor gegn Galatasaray í tyrk­neska ofur­bik­arnum árið 2019.

Á meðan hann bjó í Tyrk­landi reið yfir stór jarð­skjálfti sem hafði stór áhrif á sam­fé­lagið en talið er að 117 manns hafi lát­ist í Tyrk­landi af völdum hans. Í við­tali við RÚV sagði lands­liðs­mað­ur­inn frá sinni upp­lifun.

„Við vorum bara í íbúð­inni okkar uppi á 21. hæð. Við fundum mjög vel fyrir þessu. Blokkin dúaði öll. Það var svo­lítið óhugna­legt en maður hefur svo sem upp­lifað aðra skjálfta hérna síðan við fluttum en ekki alveg svona kraft­mikla,“ sagði fót­bolta­snill­ing­ur­inn. „Núna er bara allt á fullu í að reyna að bjarga ein­hverju fólki sem er fast í ein­hverjum rústum og það er nátt­úru­lega bara sjokk held ég hjá flestum og fólk er að reyna að átta sig á þessu.“

Í byrjun árs 2021 hóf hann að spila með gríska lið­inu Lamia sem spil­aði þá í efstu deild og þrátt fyrir að vera ekki fasta­maður í byrj­un­ar­lið­inu spil­aði hann nær alla leiki liðs­ins.

Hann hélt svo heim til Íslands í kjöl­farið og spil­aði þrjú ár með KR þar sem hann var byrj­un­ar­liðs­maður og tók að lokum eitt tíma­bil með Knatt­spyrnu­fé­lagi Vest­ur­bæjar.

Stærsta stundin á ferlinum

Eins og áður sagði spil­aði Theodór Elmar sinn fyrsta lands­leik árið 2007, en sá leikur var á móti Lúx­em­borg og fór fram á Laug­ar­dals­velli 2. .júní. Hann kom inn á fyrir Emil Hall­freðs­son á 82. mín­útu leiks­ins, en Eyjólfur Sverr­is­son var lands­liðs­þjálf­ari þá.

Theodór spil­aði 41 leik á 11 ára tíma­bili með lands­lið­inu og var reglu­lega í byrj­un­ar­liði á þeim tíma þrátt fyrir mikla sam­keppni.

Hann skráði sig þó heldur betur í sögu­bækur lands­liðs­ins á EM 2016 þegar hann átti stoðsend­ingu í sig­ur­marki Arnórs Ingva Trausta­sonar í leik gegn Aust­ur­ríki sem varð til þess að Ísland komst upp úr riðli sínum á mót­inu.

Eftir EM
Eftir EMTheódór Elmar Bjarna­son á sviði ásamt öðrum lands­liðs­mönnum við heim­kom­una frá EM 2016. Hann átti stoðsend­ingu í sig­ur­mark­inu gegn Aust­ur­ríki á mót­inu.

Þá skor­aði hann sitt eina lands­liðs­mark í und­ankeppni HM 2018 á móti Tyrk­landi og átti sinn þátt í að koma lið­inu á HM og var á end­anum ekki val­inn til þátt­töku á loka­mót­inu.

Síðasti lands­leikur hans var í 6-0 tapi fyrir Sviss í Þjóða­deild­inni 8. sept­em­ber 2018.

Einkalífið í sviðsljósinu

Theodór Elmar kynnt­ist fyr­ir­sæt­unni Pöttru Sri­ya­nonge í Noregi og byrj­uðu þau saman árið 2009. Þremur árum síðar, 20. des­em­ber 2012, gengu þau í hjóna­band. Þau bjuggu saman erlendis um ára­bil meðan Theodór var atvinnu­maður og eign­uð­ust tvö börn.

Pattra starfar sem mark­aðs­stjóri gler­augna­versl­un­ar­innar Sjáðu. Hún hefur einnig starfað sem fyr­ir­sæta og haldið úti tísku­bloggi. Voru þau árum saman eitt þekktasta par lands­ins og þóttu bæði gíf­ur­lega glæsi­leg.

Eftir að leiðir Theódórs Elmars og Pöttru árið 2025 skildu greindi Morg­un­blaðið frá því í haust að hann væri kom­inn í sam­band með Móheiði Guð­munds­dóttur, leik- og söng­konu. Samkvæmt frétt blaðs­ins hófst sam­band þeirra í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EM 2016

FréttirEM 2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
FréttirEM 2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
PistillEM 2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
ErlentEM 2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
ErlentEM 2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Sport

Átján ára knatt­spyrnu­maður lést eftir höf­uð­högg í miðjum leik

Læknar greindu höfuðkúpubrot og innvortis blæðingar hjá Abel Núñez eftir atvik í leik FC Ezeiza og Deportivo Muniz.

Fram­herji CD Tenerife lést eftir árekstur við mark­mann

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heim­inum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörð­ur­inn í áfalli eftir dauðs­fallið

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn