Mikil slagsmál brutust út í úrslitaleik brasilíska fylkismeistaramótsins í knattspyrnu U20-liða kvenna um helgina. Knattspyrnufélagið Corinthians hefur ákveðið að kæra atvikið til lögreglu eftir að leikmaður Ferroviária kýldi tvo andstæðingar sínar í andlitið.
Leikurinn milli Corinthians og Ferroviária var stöðvaður tímabundið á 77. mínútu eftir að leikmenn liðanna lentu í átökum.
Atvikið hófst þegar Gabi Jordi hjá Corinthians braut á Miga, leikmanni Ferroviária. Miga brást við með því að sparka í átt að andstæðingi sínum. Jordi ýtti henni þá frá sér og í kjölfarið sauð upp úr.
Miga hóf að kýla Jordi og leikmenn og starfsmenn beggja liða hlupu inn á völlinn til að reyna að stöðva slagsmálin. Dómarinn reyndi jafnframt að skilja leikmennina að.
Þegar fleiri leikmenn Corinthians komu að átökunum tókst Miga að kýla annan leikmann liðsins í andlitið áður en hún gekk í burtu. Liðsfélagar hennar fylgdu henni af vettvangi og hún fékk að lokum rautt spjald.
Þjálfari Corinthians, Julia Passero, fékk einnig rautt spjald eftir að hafa gengið að Miga og tekist á við hana. Emy, varamaður Corinthians, var sömuleiðis rekin af velli.
Leikurinn hélt áfram eftir hléið og Ferroviária vann 2-0. Gabi Pusch skoraði bæði mörk liðsins.
Corinthians kærir málið til lögreglu
Corinthians sendi frá sér yfirlýsingu eftir leikinn þar sem félagið fordæmdi árásirnar og tilkynnti að það hygðist leggja fram kæru til lögreglu auk formlegra mótmæla til knattspyrnusambands São Paulo-fylkis.
Í yfirlýsingunni sagði félagið að ofbeldi ætti ekki heima í íþróttum og að slíkt framferði bryti gegn grundvallargildum keppnisíþrótta, sérstaklega þegar um væri að ræða mót fyrir unga íþróttamenn.
Ferroviária fordæmdi einnig ofbeldið og sagði að Miga yrði beitt innri agaviðurlögum. Félagið myndi jafnframt tryggja henni nauðsynlegan læknisfræðilegan og sálrænan stuðning.
Ferroviária gagnrýndi hins vegar einnig framgöngu þjálfara Corinthians og sagði hana hafa tekið þátt í átökunum í stað þess að reyna að stilla til friðar. Félagið hyggst grípa til lagalegra aðgerða vegna hennar.
Í yfirlýsingu Ferroviária var jafnframt bent á að liðið hefði þegar verið yfir 2-0 þegar slagsmálin brutust út og að andstæðingarnir hefðu þá þegar misst einn leikmann af velli.
Knattspyrnusamband São Paulo-fylkis fordæmdi atvikið og tilkynnti að málið yrði sent til viðeigandi agayfirvalda í íþróttakerfinu til rannsóknar og mögulegra refsinga.
Ferroviária fagnaði engu að síður meistaratitlinum eftir sigurinn. Liðið lauk keppni án þess að tapa leik, með 15 sigra og eitt jafntefli.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir