Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Hver er Kolbeinn Sigþórsson?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Kolbeins Sigþórs­sonar, eins af leik­mönnum liðsins.

Sigurmarkið
Sig­ur­markið Kolbeinn Sig­þórs­son fagnar marki sínu gegn Englandi í 16 liða úrslitum EM 2016 í Nice. Markið tryggði Íslandi 2–1 sigur. Mynd: ANNE-CHRISTINE POUJOULAT / AFP

Árið 2016 komst karla­landslið Íslands í knatt­spyrnu í átta liða úrslit á EM í knatt­spyrnu og var það í fyrsta sinn sem karla­liðið náði að komast á EM og var árangur liðsins mun betri en flestir áttu von á.

Í hálfleik í landsleik Íslands við Lúxemborg sem fór fram 16. nóvember voru leikmenn liðsins heiðraðir af KSÍ. Í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá þessu afreki mun Mannlíf á næstunni fjalla um nokkra af helstu leik­mönnum liðsins á mótinu.

Annar í röðinni er Kolbeinn Sigþórsson

Markahrókur frá fyrsta sparki

Framherjinn Kolbeinn Sigþórsson er fæddur árið 1990 og snemma var ljóst að um gríðarlegt efni væri að ræða á knattspyrnu­vellinum. Fyrsta merki þess birtist árið 1998 þegar Kolbeinn var marka­hæsti leikmaður Shell-mótsins en þá spilaði hann með Víkingi. Liðið tapaði reyndar í úrslita­leik mótsins á móti ÍA þar sem Arnór Smárason, sem varð síðar liðs­félagi Kolbeins hjá íslenska lands­liðinu, stýrði spilinu og var valinn besti leikmaður mótsins.

Sama ár varð Kolbeinn Íslands­meistari í 6. flokki þar sem Víkingur vann alla leiki sína í úrslita­keppninni og fékk ekki á sig mark og skoraði 17 mörk. Kolbeinn var að sjálfsögðu marka­hæsti leik­maðurinn.

Árið eftir varð Kolbeinn svo aftur marka­hæstur á Shell-mótinu og var einn besti leikmaður þess. Þá varð hann aftur Íslands­meistari með liði sínu. Árið 2000 tók Kolbeinn svo aftur þátt í Shell-mótinu og var í þetta sinn marka­hæstur, vann mótið og var valinn bestur.

DV tók Kolbein tali skömmu eftir að hann tók við viðurkenningunum. Þegar hann var spurður hvernig honum hefði liðið þegar nafn hans var kallað upp sagði hann: „Mér leið bara mjög vel. Ég varð bara mjög ánægður með þetta.“

Kolbeinn var einnig spurður hvort hann væri einfald­lega svona góður, fyrst hann hefði orðið marka­kóngur á þremur mótum í röð og nú verið valinn besti leik­maðurinn. „Ég get eiginlega ekki svarað því. Ég æfi bara vel þannig að ég er vel undir­búinn.“

Andri Sigþórsson, eldri bróðir Kolbeins og tilvon­andi lands­liðsmaður þegar viðtalið var tekið, átti þá markamet mótsins sem hann setti árið 1987. Kolbeinn kvaðst fyrst og fremst hafa stefnt að því að verja marka­kóngs­titilinn. Þegar blaða­maður DV spurði hvort rígur væri milli bræðranna um hvor þeirra væri meiri marka­skorari svaraði Kolbeinn: „Nei, nei, ekkert svo. Hann veit að ég er betri.“

Af 25 mörkum stóð eitt upp úr hjá Kolbeini. „Þegar ég skoraði í úrslita­leiknum og kom Víkingi í 1-0 og við unnum svo leikinn, 3-1,“ sagði hann.

Svona hélt þetta áfram hjá Kolbeini í yngri flokkum: mörk og sigrar við öll tækifæri.

Það var svo í lok ársins 2003 sem hjólin byrjuðu að snúast fyrir Kolbein af fullri alvöru, en hann var aðeins 13 ára þegar enska úrvals­deildar­félagið Arsenal bauð honum til æfinga. Hann dvaldi í nokkra daga hjá félaginu ásamt föður sínum, Sigþóri Sigurjóns­syni, og fékk að spreyta sig í leik gegn Chelsea með liði Arsenal skipuðu leik­mönnum 14 ára og yngri. Kolbeinn skoraði eitt mark og lagði upp tvö í sigri Arsenal.

Sigþór sagði í samtali við Morgun­blaðið á sínum tíma að útsendarar Arsenal hefðu fylgst lengi með syni hans og spurst fyrir um hann á hverju ári. Foreldrar Kolbeins hefðu þó viljað bíða þar til hann yrði eldri áður en hann færi utan til æfinga.

Frammistaða Kolbeins vakti hrifningu þjálfara Arsenal að sögn Sigþórs. Félagið bauð honum að koma aftur eins fljótt og honum hentaði og vildi jafnframt fá hann með drengja­liðinu í keppnis­ferð um sumarið. Kolbeinn fór aftur til liðsins árið 2004 og stóð sig vel en ákvað að semja ekki við Arsenal.

Árið 2005 var hann enn í yngri flokkum Víkings þegar DV spáði því að hann gæti orðið „hinn íslenski Wayne Rooney“. Blaðið taldi Kolbein geta náð langt í knatt­spyrnu og benti á að hann hefði skarað fram úr í yngri flokkunum þótt hann léki jafnan með strákum sem voru ári eldri. Hann hafði þá þrívegis í röð orðið marka­hæstur á Shellmótinu í Vestmanna­eyjum.

DV hrósaði Kolbeini fyrir móttöku, fyrstu snertingu, skot, sendingar og skalla­tækni. Blaðið lýsti honum sem „marka­skorara af guðs náð“ sem nýtti færin einstak­lega vel en leitaði jafnframt aftar á völlinn til að sækja boltann.

Eftirsóttur af stærstu liðum heims

Það var svo snemma árið 2006 sem framherjinn skipti um lið, en það var talsvert minna lið en margir höfðu búist við, því Kolbeinn gekk til liðs við HK, þá tæplega 16 ára gamall, en þar fékk hann tækifæri til að spila með meistara­flokki liðsins. Sama ár hóf Kolbeinn feril sinn með yngri landsliðs­liðum Íslands þar sem hann var fasta­maður.

Keppni erlendra liða um að fá Kolbein hélt áfram að aukast og bættust hollensku stór­veldin Ajax og PSV og enska úrvals­deildar­liðið Reading í hóp þeirra sem litu á Kolbein sem vænlegan kost. Þá höfðu norska liðið Álasund og Blackburn Rovers mikinn áhuga. Þá hafði einnig verið greint frá því að West Ham, AZ Alkmaar, Barcelona og Real Madrid hefðu sýnt vilja til að fá Kolbein til liðs við sig. Töldu margir að nánast væri öruggt að framherjinn færi til Arsenal og endaði það svo að liðið gerði Kolbeini tilboð vorið 2007 en þá var hann samnings­laus. Hann kom hins vegar mörgum á óvart og samdi við AZ Alkmaar í Hollandi en liðið hafði þá endað í öðru sæti í deildinni þar í landi.

Hann var þó ekki eini Íslend­ingurinn á mála hjá félaginu en Aron Einar Gunnarsson, sem þá var 18 ára gamall, og Grétar Rafn Steinsson, þáverandi lands­liðsmaður, spiluðu með félaginu og hefur það eflaust átt sinn þátt í að Kolbeinn gekk til liðs við félagið.

Beið þolinmóður eftir fyrsta leik

Framherjinn þurfti hins vegar að bíða lengi eftir tækifæri með AZ Alkmaar og liðu rúm þrjú ár þar til hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins en Kolbeinn náði að grípa tækifærið þegar honum gafst það og vann sér sæti í byrjunar­liði liðsins, þá tvítugur. Hann endaði á að spila 32 leiki í deildinni og skoraði 15 mörk og var því 6. marka­hæsti maður deildarinnar og endaði AZ Alkmaar í 4. sæti í deildinni. Varð þetta til þess að Kolbeinn spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir hönd Íslands.

Sumarið eftir tímabilið gekk Kolbeinn svo til liðs við Ajax og kostaði fjórar milljónir evra.

„Ég tel Ajax vera eitt stærsta félag í Evrópu og jafnvel í heiminum. Þetta er stórt tækifæri fyrir mig að spila fyrir svona sögufrægt félag,“ sagði Kolbeinn við Frétta­blaðið eftir að hann skrifaði undir hjá félaginu.

Kolbeinn lék með félaginu næstu fjögur tímabil og er óhætt að segja að vel hafi gengið í þau skipti sem hann spilaði en því miður fyrir hann og stuðnings­menn Ajax missti Kolbeinn af stórum hlutum þriggja tíma­bilanna. Í raun má segja að hann hafi aðeins náð einu heilu tímabili með stór­liðinu en stóð sig ávallt vel og raðaði inn mörkum, og félagið varð deildar­meistari þrisvar á þessum fjórum tímabilum. Náði Kolbeinn að meðaltali að spila 20 leiki á tímabili í deildinni en leiknir eru 34 leikir.

Í Meistaradeildinni
Í Meist­ara­deild­inniKolbeinn Sig­þórs­son í bar­áttu við Gerard Piqué í leik Ajax og Barcelona á Camp Nou 21. októ­ber 2014. Kolbeinn lék með Ajax í fjögur tíma­bil.

Sumarið 2015 skipti svo Kolbeinn aftur um lið og gekk til liðs við Nantes í Frakk­landi og hafði verð­miðinn lækkað um helming frá því að hann var keyptur frá AZ.

Hins vegar má segja að fyrsta tímabilið hjá Nantes hafi verið upphafið að endinum hjá Kolbeini þegar kemur að félags­liða­fótbolta en þrátt fyrir næg tækifæri og meiðsla­lítið tímabil náði marka­hrókurinn aðeins að skora þrjú mörk í 26 leikjum í deildinni.

Kolbeinn var svo sumarið eftir lánaður til Galatasaray og átti að vera heilt tímabil en náði ekki að leika með liðinu áður en hann meiddist. Um áramótin sneri Kolbeinn aftur til Frakk­lands en fékk heldur kaldar kveðjur frá forseta liðsins.„Ég hef ekki verið í sambandi, hvorki við Galatasaray né við leik­manninn […] Ég veit ekki hvar Sigþórsson er. Hann er búinn að afgreiða sín mál hjá Galatasaray, en hann verður að tala við okkur. Ég hef heyrt að hann hafi ekki viljað vera í Tyrklandi af öryggis­ástæðum. Það er skiljanlegt. En það er óhugsandi að hann verði áfram í Nantes,“ sagði forseti um Kolbein.

Það reyndist þó rangt hjá forsetanum þar sem Kolbeinn kláraði tvö ár til viðbótar hjá félaginu en lék aðeins tvo leiki til viðbótar vegna meiðsla og vegna þess að hann var ekki valinn í leik­mannahóp liðsins þegar hann var heill heilsu. Gekk það svo langt að framherjinn fékk ekki að æfa með aðal­liðinu. Náði Kolbeinn því aðeins að spila 33 leiki á fjórum tímabilum.

Eftir að hafa komist að samkomu­lagi við Nantes um að losna undan samningi samdi Kolbeinn við AIK í Svíþjóð og náði að spila 35 deildar­leiki fyrir félagið án þess þó að ná að skora mörg mörk en hann var inn og út úr liðinu og kom oft inn af varamanna­bekknum.

Hann gekk svo til liðs við Gautaborg í Svíþjóð árið 2021 og náði að vinna sér sæti sem byrjunar­liðsmaður en missti af seinni helmingi tíma­bilsins vegna meiðsla og hefur ekki spilað síðan. Honum tókst að skora fjögur mörk í 17 deildar­leikjum síðasta tímabilið á ferlinum.

Markakóngur Íslands

Kolbeinn var nýorðinn tvítugur þegar hann lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Færeyjum í Kórnum í Kópavogi 21. mars 2010. Hann skoraði síðara mark Íslands í 2–0 sigri og bætti við mörkum gegn Andorra og Ísrael síðar sama ár. Fyrsta mark hans í keppnis­leik kom á Laugar­dalsvelli í september 2011, þegar hann skoraði eina markið í sigri á Kýpur í undan­keppni Evrópu­mótsins. Árið eftir skoraði hann bæði mörk Íslands í öðrum 2–0 sigri á Færeyjum.

Í landsleik
Í lands­leikKolbeinn Sig­þórs­son í vin­áttu­lands­leik Íslands og Mexíkó í Charlotte í Banda­ríkj­unum 24. mars 2010. Hann hafði leikið sinn fyrsta A-lands­leik þremur dögum fyrr og skorað gegn Færeyjum.

Haustið 2013 kom Kolbeinn Íslandi yfir gegn Noregi á Ullevaal í Ósló í lokaleik riðla­keppninnar fyrir heims­meistara­mótið í Brasilíu. Leiknum lauk með 1–1 jafntefli og Ísland komst í umspil gegn Króatíu. Kolbeinn meiddist á ökkla undir lok fyrri hálfleiks í fyrri leik þjóðanna á Laugar­dalsvelli og Eiður Smári kom inn á í hans stað. Sá leikur endaði markalaus en Króatía tryggði sér sæti á mótinu með 2–0 sigri í síðari leiknum.

Í undan­keppni Evrópu­mótsins 2016 skoraði Kolbeinn sigur­markið gegn Tékklandi á Laugar­dalsvelli í júní 2015. Tékkar höfðu komist yfir en Aron Einar Gunnarsson jafnaði áður en Kolbeinn skoraði fram hjá Petr Čech. Með sigrinum komst Ísland í efsta sæti riðilsins. Liðið tryggði sér síðar sæti á loka­mótinu í Frakk­landi, í fyrsta sinn í sögu íslenska karla­lands­liðsins.

Eftir jafntefli við Portúgal og Ungverja­land og sigur á Austur­ríki í riðla­keppninni mætti Ísland Englandi í 16 liða úrslitum í Nice 27. júní. Wayne Rooney kom Englendingum yfir úr víta­spyrnu á fjórðu mínútu og Ragnar Sigurðsson jafnaði tveimur mínútum síðar. Kolbeinn skoraði á 18. mínútu og reyndist markið tryggja Íslandi 2–1 sigur. Í næsta leik skoraði hann fyrra mark Íslands gegn Frakk­landi á Stade de France. Frakkar höfðu fjögurra marka forskot í hálfleik og unnu 5–2. Þar með lauk þátttöku Íslands á mótinu.

Meiðsli settu svip sinn á næsta kafla landsliðs­ferilsins. Kolbeinn lék engan landsleik árið 2017 og var utan 23 manna hóps Íslands á heims­meistara­mótinu í Rússlandi 2018. Hann sneri aftur í lands­liðið sama ár og skoraði í 2–2 jafntefli gegn Katar í nóvember. Árið eftir skoraði hann gegn Moldóvu, Albaníu og Andorra í undan­keppni Evrópu­mótsins.

Markið gegn Andorra kom 14. október 2019 á Laugar­dalsvelli. Kolbeinn skoraði síðara markið í 2–0 sigri eftir fyrirgjöf Guðlaugs Victors Pálssonar. Þetta var 26. mark hans í 54 lands­leikjum og með því jafnaði hann met Eiðs Smára. Andorra hafði einnig verið mótherjinn þegar Kolbeinn skoraði sitt annað landsliðs­mark, rúmum níu árum fyrr.

Kolbeinn lék tíu lands­leiki til viðbótar. Árið 2021 kom hann við sögu gegn Þýska­landi og Armeníu í undan­keppni heims­meistara­mótsins og gegn Mexíkó og Færeyjum í vináttu­leikjum. Síðasti lands­leikurinn fór fram 4. júní 2021 og lauk með 1–0 sigri Íslands á Færeyjum. Það voru því Færeyingar sem mættu Kolbeini bæði í fyrsta og síðasta leik hans fyrir íslenska lands­liðið.

Einkalífið í sviðljósinu

Kolbeinn sendi frá sér yfir­lýsingu 1. september 2021 vegna frásagnar Þórhildar Gyðu Arnars­dóttur af atviki á skemmtistaðnum B5 í Reykjavík haustið 2017. Kolbeinn sagðist ekki kannast við að hafa áreitt hana eða vinkonu hennar eða beitt þær ofbeldi. Hann sagðist þó hafa hegðað sér með óviðeigandi hætti, beðist afsökunar og fallist á greiðslu til kvennanna.

Þórhildur Gyða hafði skömmu áður lýst því í viðtali við RÚV að lands­liðsmaður í knatt­spyrnu hefði gripið í klof hennar á skemmtistaðnum og síðar tekið hana hálstaki í stutta stund. Hún kvaðst hafa kært atvikið til lögreglu. Hún nafn­greindi manninn ekki í viðtalinu en síðar kom fram að um Kolbein var að ræða. Vinkona Þórhildar Gyðu kvaðst einnig hafa orðið fyrir ofbeldi af hans hálfu sama kvöld.

Í yfir­lýsingu sinni sagðist Kolbeinn hafa hitt konurnar vorið 2018 og hlustað á frásagnir þeirra. Hann lýsti því að hann hefði glímt við meiðsli og andlega erfið­leika og að framtíð hans í knatt­spyrnu hefði verið í óvissu.

Á vellinum
Á vell­inumKolbeinn Sig­þórs­son í bún­ingi Nantes árið 2015. Hann fjall­aði um meiðsli og óvissu um knatt­spyrnu­feril sinn í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér árið 2021.

„Ég kannaðist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neitaði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyrir­myndar og baðst ég afsökunar á henni,“ sagði Kolbeinn.

Þórhildur Gyða lýsti viðbrögðum hans á fundinum með öðrum hætti. Í viðtalinu við RÚV sagði hún að Kolbeinn hefði beðist afsökunar og gengist við því sem hún sagði hann hafa gert sér. Í viðtali við Vísi eftir að yfir­lýsingin birtist sagðist hún harma það sem hún taldi vera ásökun um að hún hefði logið. Tilgangurinn með því að stíga fram hefði verið að vekja athygli á því hvernig Knattspyrnu­samband Íslands hefði brugðist við málinu.

Konurnar og Kolbeinn náðu samkomu­lagi með aðstoð lögmanna. Kolbeinn sagði að konurnar hefðu farið fram á afsökunar­beiðni og greiðslu og að hann hefði fallist á hvort tveggja. Hann greiddi einnig þrjár milljónir króna til Stígamóta. Þórhildur Gyða sagði að greiðslan til samtak­anna hefði verið hluti af samkomu­laginu að frumkvæði hennar og vinkonu hennar. Hún sagðist sjálf lengi hafa sótt til Stígamóta og kunna að meta starf samtak­anna.

Kolbeinn sagði í yfir­lýsingunni að KSÍ hefði verið upplýst um framvindu sátta­viðræðnanna og niður­stöðu þeirra. Hann kvað málinu hafa verið lokið af hálfu þeirra sem stóðu að samkomu­laginu en sagðist skilja að viðbrögð sambandsins hefðu vakið þá tilfinningu hjá Þórhildi Gyðu að hún hefði verið svipt sáttinni. Í lok yfir­lýsingarinnar sagðist Kolbeinn harma hegðun sína á þessum tíma og vinna áfram í sínum málum.

Það var svo í byrjun árs sem Kolbeinn var ákærður fyrir kynferðis­brot. Héraðs­dómur Reykjaness sýknaði hann svo sumarið 2024 um kynferðis­brot gegn barnungri stúlku. Kolbeini var gefið að sök að hafa brotið gegn stúlkunni í sumarhúsi í júní 2022. Í ákærunni hélt saksóknari því fram að Kolbeinn hefði nýtt sér yfirburði sína gagnvart henni. Dómurinn vísaði jafnframt frá bótakröfu á hendur Kolbeini.

Málið var þingfest í lok janúar 2024 og fór aðal­meðferð fram á einum degi um miðjan maí. Kolbeinn gaf skýrslu fyrir dómi í gegnum fjarfunda­búnað og vísaði þar einkum til þess sem hann hafði áður sagt í skýrslu­tökum hjá lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

EM 2016

FréttirEM 2016

Starfs­fólk KSÍ fær bónus­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knattspyrnu­sambands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­uppbót sökum álags í tengslum við þátttöku A-landsliðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun samsvara mánaðar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ samþykkti þetta á fundi í júlí. Frá málinu er greint í Frétta­blaðinu í dag. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, bar fram tillöguna þegar hún...
FréttirEM 2016

Eftir­spurn eftir gistingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslendinga

Tífalt fleiri Íslendingar leituðu eftir gistingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evrópu­meistara­mótinu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Saman­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppninni jukust leitir Íslendinga mest. Að jafnaði fjölgaði leitum að hótel­herbergjum í Frakk­landi um...
PistillEM 2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portúgölum Evrópu­meistara­titil

Úrslita­leikir hafa tilhneigingu til að vera leiðinlegir. Þeir sem hafa ekki verið það eru teljandi á fingrum annarar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meistara­deildarinnar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hugann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramatísk augnablik, t.d. magnaður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leikurinn sjálfur að mestu hund­leiðinlegur. Úrslita­leikur...
ErlentEM 2016

Portúgal Evrópu­meistarar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evrópu­meistari eftir að hafa sigrað Frakkland 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiksins var skorað af vara­manninum Eder, sem á 109 mínútu leiksins. Heimamenn í Frakk­landi höfðu þótt mun sigur­stranglegri fyrir leikinn og sigur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnu­maður sögunnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálfleik. Fyrir leikinn...
Innlent

Ísak telur að ráðist hafi verið á sig vegna kynhneigðar

Myndefni af meintum gerendum lá fyrir þegar lögregla hætti rannsókninni.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Sport

Nærmynd

Hver er Theodór Elmar?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Theodórs Elmars Bjarnasonar, eins af leikmönnum liðsins.

Kristian Nökkvi kemur inn í landsliðs­hópinn

Átján ára knattspyrnu­maður lést eftir höfuðhögg í miðjum leik

Brasilísk knattspyrnu­félög leita til lögreglu eftir slagsmál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heiminum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörðurinn í áfalli eftir dauðsfallið