Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgarstjóri Rómar

Á þingferli sínum vakti hún athygli fyrir að flytja ræður með annað brjóstið bert.

Borgarstjóraframboð
Borg­ar­stjóra­fram­boð Ilona Staller, sem er þekkt undir nafn­inu Cicciolina, hyggst bjóða sig fram til borg­ar­stjóra í Róm. Myndin var tekin í París árið 1988 þegar hún sat á þingi. Mynd: JEAN-LOUP GAUTREAU / AFP

Ilona Staller, fyrr­verandi klámmynda­leikkona og þingkona á Ítalíu, hefur tilkynnt að hún hyggist bjóða sig fram til borgar­stjóra í Róm. Staller, sem er 75 ára og þekkt undir nafninu Cicciolina, hefur stundum verið kölluð „þekktasta klámstjarna Ítalíu“. Hún segist vilja gera borgina meira spennandi, bæta innviði hennar og vernda græn svæði.

Í viðtali við ítalska dagblaðið Corriere della Sera gagnrýndi Staller þá ákvörðun að fækka villisvínum með veiðum. Villisvín hafa um árabil sést á götum og í almennings­görðum Rómar, þar sem þau leita meðal annars að æti í sorpi.

„Í stað þess að fella þau þurfum við að hlúa að þeim og leyfa nátt­úrunni að sjá um sig sjálfa,“ sagði Staller. Hún sagðist fyrir skömmu hafa séð gyltu með sex grísi fara yfir Via Cassia á meðan umferð stöðvaðist. „Við ættum að láta þau í friði.“

Staller gagnrýndi einnig Roberto Gualtieri, sitjandi borgar­stjóra, fyrir að láta fella of mörg tré. Hún býr í Isola Farnese í norður­hluta Rómar og segir hverfið hafa setið á hakanum árum saman. Hún nefndi meðal annars að bifreið hefði hafnað í skurði eftir að hafa farið út af vegi og að fjöldi dýra hefði drepist í gróður­eldi í sumar.

Staller fæddist í Ungverja­landi og hóf feril sinn sem fyrirsæta hjá ungversku frétta­stofunni Magyar Távirati Iroda. Hún varð þekkt á Ítalíu á áttunda áratugnum, starfaði við útvarp og lék í klám­myndum. Hún var kjörin á ítalska þingið á níunda áratugnum og sat þar til ársins 1992. Á þingferli sínum vakti hún athygli fyrir að flytja ræður með annað brjóstið bert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta