Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágrein­ingur um þrif, ræsti­þjón­ustu og mynda­vélar í sameign fór fyrir kærunefnd

Reykjavík
Reykja­vík Kæru­nefnd húsa­mála taldi hús­fé­lag­inu heim­ilt að skipta þrifum á sam­eign milli íbúa, en ekki að rukka þá fyrir fjar­veru á til­tekt­ar­dögum. Mynd: Víkingur

Húsfélagi er óheimilt að krefja íbúa um 30 þúsund króna gjald vegna fjarveru á sameiginlegum tiltektar­dögum. Þetta er niður­staða kæru­nefndar húsamála í máli íbúðar­eiganda sem leitaði til nefndarinnar vegna ágrein­ings um húsreglur, þrif á sameign og fyrir­hugaða uppsetningu öryggis­myndavéla sem birt var í síðustu viku. Nefndin taldi húsfé­laginu heimilt að skipuleggja þrif á sorp­tunnum og sorp­geymslu með vakta­plani.

Á húsfundi í nóvember 2024 var samþykkt að þvo skyldi tunnu fyrir lífrænan úrgang eftir hverja tæmingu en svartar tunnur eftir þörfum. Þrifunum var skipt milli íbúa samkvæmt vakta­plani. Íbúðar­eigandinn taldi að ábyrgð eigenda á sameign fælist í fjárhagslegri þátttöku og að húsfé­lagið gæti ekki skyldað þá til persónu­legs vinnu­framlags. Hann benti á að heilsufar, aldur eða aðrar aðstæður gætu komið í veg fyrir að íbúar gætu sinnt verkunum sjálfir.

Húsfé­lagið sagði húsreglurnar hafa verið samþykktar með tilskildum meirihluta. Eigendum væri frjálst að fá annan aðila eða verktaka á sinn kostnað til að sinna þeirra hluta þrifanna. Tiltektar­dögunum væri ætlað að tryggja að allir legðu sitt af mörkum.

Húsfundur ákveður hvort ræstiþjónusta verði keypt

Kæru­nefndin taldi að fjöleignar­húsalög veittu húsfé­lögum heimild til að ákveða hvernig þrifum á sameign væri háttað og skipta verkefnum milli íbúa. Hún taldi jafnframt að lögin veittu enga heimild til að leggja gjald á einstaka eigendur vegna þess að þeir mættu ekki á tiltektar­daga eða sinntu þrifum á sameign með ófullnægjandi hætti.

Íbúðar­eigandinn fór einnig fram á að húsfé­laginu yrði gert að kaupa ræstiþjónustu fyrir sameign og sorp­geymslu á sameiginlegan kostnað ef samkomulag næðist ekki um sjálf­viljugt vinnu­framlag. Nefndin hafnaði kröfunni og sagði ákvörðun um slík kaup eiga undir húsfund.

Vöktun þarf að samræmast persónuverndarlögum

Íbúðar­eigandinn gerði einnig athuga­semdir við fyrir­hugaða myndavéla­vöktun í sameign. Hann taldi óljóst hvaða svæði ætti að vakta, hvernig myndefni yrði varðveitt og hverjir fengju aðgang að því. Húsfé­lagið sagði ákvörðunina hafa verið tekna á húsfundi til að auka öryggi og verja eignir í kjölfar óæskilegrar umgengni.

Nefndin vísaði til fyrra álits þar sem hún hafði hafnað kröfu um að ákvörðun húsfundar um uppsetningu mynda­vélanna yrði talin ólögmæt. Þar hafði hún tekið fram að vöktunin yrði að samræmast persónu­verndar­lögum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki