Einbýlishús á þriggja hektara eignarlóð á bökkum Ytri-Rangár er komið á sölu. Húsið stendur við Hofstíg 17, er 215 fermetrar að stærð og var reist árið 2024. Ásett verð er 325 milljónir króna.
Í húsinu eru tvær hjónasvítur, hvor með eigin snyrtingu. Úr báðum svítunum og stofunni er gengið út á stóra verönd. Við hana eru sérstakt gufubaðshús og heitir og kaldir pottar. Lofthæð er mikil og úr gólfsíðum gluggum er útsýni til fjalla.
Samkvæmt sölulýsingu voru húsgögnin sérvalin fyrir húsið og hefur eigandinn hug á að selja það fullbúið húsgögnum. Gistileyfi er fyrir húsinu og því má nýta það hvort sem er til búsetu eða gistiþjónustu. Á lóðinni stendur einnig um 15 fermetra gestahús með svefnplássi fyrir tvo og eigin snyrtingu.
Í sölulýsingu kemur fram að heimilt sé að reisa allt að sex hús á lóðinni með samanlagt allt að 600 fermetra byggingarflatarmáli.





Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir