Sigurður Helgi Hlöðversson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Visitor, segir fréttir af sjóslysinu í gær, þegar Jökull ÞH 299 sökk, hafa vakið upp minningar um daginn sem hann missti föður sinn. Tæpur mánuður er þar til fjörutíu ár verða liðin frá því að faðir hans fórst með flutningaskipinu Suðurlandi. Þrír skipverjar Jökuls fórust en fjórtán komust lífs af.
„Ég var í huganum kominn heim til ömmu og afa á jóladag 1986, í jólaboð fjölskyldunnar. Ég var að klæða mig í jólafötin og þá koma fréttir um að Suðurlandið sé sokkið.“
Fjölskyldan reyndi að halda jól fyrir yngstu börnin á meðan beðið var fregna af skipverjunum. Sigurður man eftir gamla svarta heimasímanum hjá ömmu sinni og afa. Í hvert sinn sem hann hringdi fékk hann tak í hjartað og svitnaði í lófunum. Hann segist hafa fundið fyrir því sama í gærkvöldi þegar hann skoðaði fréttamiðla á mínútu fresti í von um tíðindi af áhöfn Jökuls.
„Ég gleymi því aldrei, ég man hvar ég stóð, ég man öskrin og gráturinn svo ískrandi. Pabbi var dáinn,“ skrifar Sigurður á Facebook.
Í stofunni dönsuðu yngstu börnin í kringum jólatréð og sungu á meðan fullorðna fólkið grét í eldhúsinu. Suðurland sökk á jólanótt um 300 sjómílur austur af Langanesi á leið til Murmansk með saltsíld í lestinni. Sex af ellefu skipverjum fórust.
Sigurður segir björgunaraðgerðirnar í nótt minna sig á afrekið sem unnið var þegar fimm skipverjum Suðurlands var bjargað. Á meðan hann beið frétta hugsaði hann til fjölskyldna skipverjanna á Jökli sem biðu milli vonar og ótta. Hann sendir þeim sem misstu ástvin í slysinu sínar innilegustu samúðarkveðjur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir