Umboðsmaður Alþingis hefur lokið umfjöllun um kvörtun fanga sem missti heimild til að afplána refsingu með samfélagsþjónustu. Manninum var einnig synjað um að afplána eftirstöðvar refsingarinnar á áfangaheimilinu Vernd og sambýliskonu hans var synjað um að heimsækja hann í fangelsið.
Kvörtunin barst umboðsmanni 30. september og birti hann umfjöllun sína á vefnum seinni hluta nóvember. Maðurinn taldi að tafir á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefðu haft áhrif á möguleika hans til að ljúka afplánun á Vernd. Hann gerði jafnframt athugasemdir við aðkomu tiltekins lögreglumanns að beitingu þvingunarúrræða gegn sér og við uppflettingar lögreglumannsins á upplýsingum um hann í málaskrá lögreglu.
Í bréfi umboðsmanns frá 18. nóvember segir að óljóst sé hvort maðurinn hafi borið málin undir viðeigandi stjórnvöld eða hvort þau hafi lokið umfjöllun sinni. Umboðsmaður gat því ekki tekið kvörtunina til frekari meðferðar að svo stöddu.
Umboðsmaður benti manninum á að hann gæti kært ákvarðanir fangelsisyfirvalda til dómsmálaráðuneytisins og leitað til ríkissaksóknara vegna tafa á rannsókninni. Þá gæti hann borið starfsaðferðir lögreglumannsins undir nefnd um eftirlit með lögreglu og kvartað til Persónuverndar vegna uppflettinganna.
Að fenginni niðurstöðu stjórnvalda getur maðurinn leitað til umboðsmanns á ný telji hann enn tilefni til þess. Í bréfinu kemur jafnframt fram að umboðsmaður muni hafa athugasemdir mannsins í huga við reglubundið eftirlit sitt með stöðum þar sem fólk er svipt frelsi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir