Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt ónefndan mann í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrverandi eiginkonu sína fyrir utan heimili hennar í september 2024. Maðurinn felldi konuna tvisvar og þvingaði hana inn í bifreið sína. Málið kom til kasta lögreglu kvöldið eftir þegar konan hringdi af bílastæðinu við Smáralind í Kópavogi og tilkynnti um áflog milli mannsins og nýs kærasta síns.
Árásin átti sér stað að kvöldi 10. september. Samkvæmt framburði konunnar beið maðurinn fyrir utan heimili hennar þegar hún kom heim. Hann vildi að hún færi með sér til kærasta hennar. Þegar hún neitaði ýtti hann henni, tók utan um hana og felldi hana. Hann sagði henni að hringja í kærastann svo hann kæmi henni til bjargar.
Þegar konan stóð upp tók maðurinn aftur utan um hana, kom henni fyrir í aftursæti bifreiðarinnar og læsti henni. Konan komst út á meðan maðurinn gekk að ökumannssætinu og hljóp í átt að veginum. Hann elti hana, náði henni á milli akreina og felldi hana öðru sinni.
Kærasti konunnar bar fyrir dómi að maðurinn hefði ítrekað hringt í hann og sent honum skilaboð með hótunum. Að lokum féllst hann á að hitta manninn við Smáralind. Þegar lögregla kom á bílastæðið var maðurinn farinn en konan greindi lögreglu þar frá árásinni kvöldið áður. Lögregla stöðvaði bifreið mannsins og handtók hann.
Við skýrslutöku hjá lögreglu viðurkenndi maðurinn að hafa ýtt konunni að bifreiðinni og sett hana í sætið. Fyrir dómi krafðist hann sýknu og sagði þau einungis hafa rifist. Hann kvaðst hafa verið hræddur eftir handtökuna og játað öllu til að komast heim. Dómurinn benti á að hann hefði aðeins viðurkennt hluta háttseminnar hjá lögreglu og taldi breyttan framburð hans ótrúverðugan.
Konan sendi lögreglu ljósmyndir af áverkum sínum daginn eftir árásina. Níu dögum eftir árásina leitaði hún á heilsugæslu þar sem læknir sá meðal annars röð marbletta á hægri kálfa. Læknirinn taldi áverkana samrýmast lýsingu konunnar. Dómurinn mat framburð hennar trúverðugan.
Konan sagði að hún hefði talið málinu lokið og hefði ekki viljað að maðurinn yrði sóttur til saka en þau eiga þrjú börn saman.
Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að árásin hefði verið gróf og valdið konunni töluverðu líkamstjóni og vanlíðan. Refsingin fellur niður haldi maðurinn almennt skilorð í tvö ár. Honum var jafnframt gert að greiða 1.033.078 krónur í sakarkostnað.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir