Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Gunnar Smári lýsir bar­átt­unni við veik­indin

Veikindi og verkefni
Veikindi og verk­efni Gunnar Smári Egilsson seg­ist eiga erfitt með að hægja á sér þegar honum fer að líða betur, þrátt fyrir veik­indin. Mynd: Facebook

Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar, lýsir í ein­lægri Facebook-færslu hvernig veik­indin hafa haft áhrif á líf hans, svefn og starfs­orku. Hann seg­ist óþol­in­móður eftir að kom­ast aftur til fullrar heilsu og við­ur­kennir að hann eigi það til að fara of geyst þegar honum fer að líða betur.

Gunnar Smári segir að sterar og önnur lyf hafi breytt verkj­unum sem hann finnur fyrir. Þeir séu ekki lengur jafn sker­andi og áður, en meinið sé óbreytt. Hann hafi von­ast til að losna við and­vökur en vakni enn um miðjar nætur.

„Það er komið í mig óþol. Ég vil drífa þetta af, nenni ekki að vera veikur lengur, haltur og skakkur, and­vaka á nótt­inni að end­ur­segja ljóð,“ skrifar hann.

Hann segir að tíma­bund­inn bati í síð­ustu viku hafi fyllt sig orku og orðið til þess að hann hafi farið að skipu­leggja umfangs­mikil verk­efni. Meðal ann­ars hafi hann skipu­lagt mara­þonútsend­ingu 1. des­em­ber og bókað fjölda við­tala.

„Ég fékk smá bata og er aftur sestur undir stýri til að keyra á næsta vegg,“ skrifar Gunnar Smári og bætir við að hann eigi erfitt með að hægja á sér þrátt fyrir veik­indin.

Vill efla Samstöðina

Gunnar Smári segir að hann vilji leggja betri grunn að starf­semi Sam­stöðv­ar­innar og finna leiðir til að virkja þann vel­vilja sem mið­ill­inn njóti meðal fólks.

„Það hefur aldrei verið meiri þörf fyrir sam­tal í sam­fé­lag­inu. Við ræktum mennsk­una með því að tala saman. Og það er eins og mennskan sé að fjara út,“ skrifar hann.

Hann lýsir lífs­orkunni sem óút­reikn­an­legu fyr­ir­bæri. Stundum sé log­inn lít­ill og við­kvæmur, en þegar hann taki við sér geti allt breyst og maður upp­lifi sig á ný eins og ást­fang­inn.

„Eins og gamlir hermenn úr stríði“

Í færsl­unni segir Gunnar Smári einnig frá sam­veru­stund með blaða­mann­inum Jóni Óskari um helg­ina. Þeir hafi rifjað upp sam­starf sitt við útgáfu Pressunnar og síðar Eintaks.

„Við vorum eins og gamlir her­menn úr stríði sem við lík­lega töp­uðum,“ skrifar hann.

Jón hafi hannað og brotið um fyrsta blaðið sem Gunnar Smári rit­stýrði, Pressuna. Hann lýsir Jóni sem reyndum og gáf­uðum manni með hlýja nær­veru og segir sam­starf þeirra hafa verið sér­stakt.

„Pressan og síðan Eintak voru mögnuð blöð, sprull­andi af lífi og sköpun,“ skrifar hann.

Þeir hafi meðal ann­ars rætt um veik­indi, svefn­leysi og áhrif þess að hafa ekki lengur fullt lík­am­legt afl. Gunnar Smári segir að stundin með Jóni hafi verið ómet­an­leg.

Hann greinir jafn­framt frá því að hann hafi fyrr um morg­un­inn faðmað mann sem ótt­ist að hann sé að deyja. Lýsir hann mann­inum með mynd­lík­ingu um að vera kom­inn út í fljót sem Gunnar Smári hafi sjálfur áður gengið með­fram.

Dreymir um nýtt tímarit

Þrátt fyrir veik­indin eru hug­mynd­irnar margar. Gunnar Smári segir að eftir stund­ina með Jóni hafi kviknað hjá sér löngun til að gefa út nýtt tíma­rit, skrifa það sjálfur og fjalla þar um þann heim sem hafi byggst upp í höfði hans.

Hann sér fyrir sér tíma­rit með kápu úr grófum bláum pappír og svörtu þrykki. Hvert hefti yrði um 64 síður og inni­héldi meðal ann­ars minn­ingar, rit­gerðir, upp­skriftir, ljóð og greinar. Nýtt hefti kæmi út á nokk­urra mán­aða fresti þar til hann hefði engu við að bæta.

„Svona er ég að vakna. Ég hélt að Sam­stöðin væri síð­asta orr­ustan en finn hvernig önnur er að brjót­ast fram,“ skrifar hann.

Í lok færsl­unnar birtir Gunnar Smári eigin end­ur­sagnir á tveimur ljóðum, ann­ars vegar Litlum Vín­ar­valsi eftir Federico García Lorca og hins vegar Stjörnum í mars eftir Ingeborg Bachmann. Hann segir ljóðin bæði lýsa því hvernig honum líði og því hvernig honum líði alls ekki.

„Ég er ekki einn heldur margur. Það er nán­ast til­viljun hver vaknar á morgn­ana. Ég er feg­inn að ein­hver okkar vaknar,“ skrifar Gunnar Smári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Mannanafnanefnd samþykkti átta eiginnöfn en hafnaði tveimur eiginnöfnum og einu millinafni.
Innlent

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Fólk

Hlýlegt heim­ili við Efri Hól bíður nýrra eig­enda

Húsið var reist árið 1916

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“