Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Rússar sagðir undirbúa kjarnorkuvopn á braut um jörðu

Kjarn­orku­spreng­ing á lágri braut um jörðu gæti ógnað meira en 10 þús­und gervi­hnöttum, að sögn yfir­manns banda­rísku geim­her­stjórn­ar­innar.

Kjarnorkuvopn
Kjarn­orku­vopn Rússar eru sagðir kanna mögu­leik­ann á að koma kjarn­orku­vopni á braut um jörðu. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Rússar kunna að vera að und­ir­búa að koma gervi­hnetti með kjarn­orku­vopn á braut um jörðu fyrir lok þessa árs. Þýsk leyni­þjón­usta og hern­að­ar­yf­ir­völd hafa varað önnur aðild­ar­ríki Atl­ants­hafs­banda­lags­ins við áformunum, sam­kvæmt nýrri fjöl­miðlaum­fjöllun.

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri rann­sókn þýsku fjöl­miðl­anna NDR og WDR og dag­blaðs­ins Süddeutsche Zeitung. Þar segir að vest­rænar leyni­þjón­ustu­stofn­anir hafi skipst á upp­lýs­ingum um gervi­hnött­inn, sem ber heitið Sputnik-S.

Samkvæmt upp­lýs­ing­unum var gervi­hnött­ur­inn smíð­aður fyrir nokkrum árum og er nú sagður geymdur á svæð­inu við Moskvu. Hann gæti verið til­bú­inn til geimskots fyrir des­em­ber.

Getur ógnað þúsundum gervihnatta

Banda­rísk hern­að­ar­yf­ir­völd hafa áður varað við afleið­ingum þess að kjarn­orku­vopn yrði sprengt á braut um jörðu. Slík spreng­ing gæti haft gríð­ar­leg áhrif á bæði hern­að­ar­lega og borg­ara­lega inn­viði.

Stephen Whiting, yfir­maður banda­rísku geim­her­stjórn­ar­innar, sagði fyrir banda­rískri öld­unga­deild­ar­nefnd í mars að Rússar hefðu getu til að ógna banda­rískum geim­innviðum, meðal ann­ars með mögu­legri stað­setn­ingu kjarn­orku­vopns á braut um jörðu.

Hann hefur einnig varað við því að kjarn­orku­spreng­ing á lágri braut um jörðu gæti ógnað meira en 10 þús­und gervi­hnöttum. Þar á meðal eru gervi­hnettir í kerfum á borð við Starlink, sem Úkra­ínu­menn hafa reitt sig mjög á í vörnum sínum gegn inn­rás Rússa.

Banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neytið var­aði sömu­leiðis við því í skýrslu í síð­asta mán­uði að slík vopn gætu valdið því að þús­undir gervi­hnatta yrðu óstarf­hæfar eða skert­ust veru­lega. Það gæti haft áhrif á fjar­skipti, leið­sögu­kerfi, veð­ur­spár, vís­inda­rann­sóknir og þjóðar­ör­yggi ríkja.

Rússar hafna ásökununum

Armin Fleischmann, hers­höfð­ingi í þýska net- og upp­lýs­inga­hern­að­ar­kerf­inu, segir Þjóð­verja þurfa að huga að þróun eigin varn­ar­getu gegn hugs­an­legum ógnum frá geimnum.

Rúss­neska sendi­ráðið hefur hafnað ásök­un­unum og kallað þær áróður og órök­studdar full­yrð­ingar um geim­starf­semi lands­ins.

Ef kjarn­orku­vopni yrði komið fyrir á braut um jörðu væri það brot á geims­átt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna frá 1967, sem bannar meðal ann­ars að kjarn­orku­vopn og önnur ger­eyð­ing­ar­vopn séu stað­sett í geimnum.

Umfjöll­unin kemur á sama tíma og Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur átt sam­skipti við Vladímír Pútín Rúss­lands­for­seta um Úkra­ínu­stríðið. Trump kall­aði Pútín vin sinn eftir fund þeirra í Kína í síð­ustu viku.

Banda­rískir stjórn­mála­menn hafa gagn­rýnt þessi ummæli í ljósi áfram­hald­andi stríðs Rússa í Úkraínu og vax­andi áhyggna af hern­að­ar­legri sam­vinnu Moskvu og Teheran.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

Heimur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Heimur

Kushner semur um frið en græðir á stríði

Ný uppljóstrun sýnir að fjárfestingafélag Jared Kushners átti hlut í bandarísku varnarmálafyrirtæki á sama tíma og hann kom að friðarviðræðum fyrir hönd Bandaríkjastjórnar.

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi