Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson gagnrýnir harðlega fyrirhugaðar breytingar á framfærslukröfum vegna dvalarleyfa á Íslandi. Hann segir breytingarnar óréttlátar og hafa mögulega alvarleg áhrif á einstæða foreldra og börn þeirra.
Krummi fjallar um málið í Facebook-færslu sem hann birti í gær. Þar segir hann að gagnrýnin sé ekki aðeins byggð á almennum skoðunum hans á innflytjendamálum, heldur einnig á persónulegum aðstæðum. Kærasta hans sé einstætt foreldri þriggja barna og hafi dvalarleyfi hér á landi, en ekki íslenskan ríkisborgararétt.
„Mér finnst þessar fyrirhuguðu breytingar á framfærslukröfum vegna dvalarleyfa bæði mjög óréttlátar og áhyggjuefni,“ skrifar Krummi.
Hann spyr hvað verði um einstæða foreldra sem vinni, ali upp börn sín og leggi sitt af mörkum til samfélagsins, en uppfylli ekki sífellt hærri fjárhagsleg skilyrði stjórnvalda.
„Eiga þau að þurfa að óttast að framtíð þeirra og barna þeirra verði ótrygg vegna þess að þau uppfylla ekki sífellt hærri fjárhagsleg skilyrði?“ spyr hann.
Krummi tekur fram að mikilvægt sé að hafa skýrar reglur og tryggja að fólk geti framfleytt sér. Það megi hins vegar ekki verða þannig að fjárhagsstaða fólks ráði því hvort það fái að eiga sér framtíð hér á landi.
„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleiðingar af breytingum á reglum sem geta haft áhrif á öryggi þeirra, heimili og framtíð,“ segir hann.
Hann segir mikilvægt að stjórnvöld hugsi málið betur og minnir á að á bak við hverja umsókn sé einstaklingur og fjölskylda með vonir og framtíðaráform.
Að mati Krumma sé mikilvægt að greina á milli þess að tryggja fólki fjárhagslegt öryggi og þess að gera kröfur sem geti reynst venjulegu fólki óraunhæfar.
Í lok færslunnar hvetur hann fólk til að skrifa undir áskorun gegn breytingunum og senda inn athugasemdir. Hann bendir á að frestur til að skila undirskriftum og athugasemdum renni út í dag.
„Hver einasta undirskrift skiptir máli,“ skrifar Krummi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir