Tilkynningum um að sést hafi til hins goðsagnakennda Loch Ness skrímslis í Skotlandi hefur fjölgað verulega á þessu ári. Alls hafa 15 slíkar tilkynningar borist það sem af er árinu 2026, samanborið við aðeins sex á síðasta ári.
Þetta kemur fram í frétt Fox News, sem vísar til skráningar yfir fólk sem segir hafa séð skrímslið, sem gjarnan er kallað Nessie.
Þrátt fyrir fjölgunina telja sérfræðingar enga sérstaka ástæðu til að ætla að eitthvað óvenjulegt sé á seyði í vatninu.
Charles Paxton, sérfræðingur í tölfræðilegri vistfræði við St. Andrews háskóla, segir fjölda tilkynninga sveiflast verulega milli ára og að aukningin sé því ekki sérstaklega merkileg.
Paxton telur þó ekki að þeir sem segjast hafa séð skrímslið séu að segja ósatt. Þvert á móti geti fólk upplifað eitthvað óvenjulegt án þess að átta sig á raunverulegum orsökum þess.
Hann bendir á að dýr, öldur frá bátum, vindur og fljótandi gróður geti skýrt ýmislegt af því sem fólk telur sig sjá í vatninu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir