Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans hefur vísað á bug frétt bandarískra fjölmiðla um að Íranar hyggist sprengja svokallaða óhreina sprengju eða gera efnavopnaárás í Washington D.C.
Esmaeil Baghaei, talsmaður ráðuneytisins, kallaði ásakanirnar „tilhæfulausar“ í færslu á samfélagsmiðlinum X.
CNN hafði áður eftir heimildarmönnum að bandarískar leyniþjónustustofnanir teldu að stjórnvöld í Teheran væru að þróa áætlanir um hugsanlega sprengingu „óhreinnar sprengju“ í höfuðborg Bandaríkjanna.
Haft var eftir ónafngreindum heimildarmönnum sem sagðir eru þekkja leyniþjónustugögnin að „Teheran sé nú með virkum hætti að skipuleggja mögulegar árásir á bandarískri grundu“.
Þeir bættu þó við að engar vísbendingar væru um að Íranar hefðu þegar ákveðið að hrinda slíkum áformum í framkvæmd.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir