Pólsk öryggisyfirvöld greindu frá því á mánudag að þrír unglingar hefðu verið handteknir vegna gruns um undirbúning hryðjuverka. Handtökurnar koma aðeins nokkrum dögum eftir mannskæða skotárás í Kraká þar sem sex manns létust.
Unglingarnir eru 16 og 17 ára gamlir, tveir þeirra 17 ára og einn 16 ára. Samkvæmt Tomasz Siemoniak, ráðherra sem fer með málefni öryggisþjónustunnar, höfðu þeir ekki aðeins dreift hugmyndafræði nasisma og fasisma heldur einnig hafið undirbúning aðgerða sem gætu flokkast sem hryðjuverk.
Tveir unglinganna höfðu meðal annars skipst á upplýsingum á netinu um framleiðslu heimatilbúinna sprengiefna og skotvopna. Við húsleit hjá öðrum þeirra fundust efni sem hægt væri að nota til sprengjugerðar.
Mikil óvissa og ótti ríkir í Póllandi eftir árásina í Kraká 7. nóvember. Þar myrti 24 ára Pólverji sex manns af handahófi eftir að hafa áður myrt foreldra sína og systur. Yfirvöld telja mögulegt að árásarmaðurinn hafi orðið fyrir áhrifum frá norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik.
Á föstudag voru jafnframt tveir Úkraínumenn, 18 og 19 ára, handteknir eftir að hafa hrópað af svölum að þeir væru hryðjuverkamenn með sprengju. Þeim var í kjölfarið vísað úr landi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir