Spænska lögreglan, Guardia Civil, hefur lagt hald á meira en 8.000 vörur sem seldar voru sem hjálpartæki til að bæta kyngetu karla í umfangsmikilli rannsókn á óheimilum fæðubótarefnum á Kanaríeyjum.
Rannsóknin hófst í september þegar lögregla framkvæmdi eftirlit í kynlífsverslunum í Las Palmas á Kanarí. Í framhaldinu beindist athyglin einnig að heilsubúðum og fyrirtækjum sem dreifðu vörunum til verslana víða um eyjarnar.
Þar á meðal var fæðubótarefni sem auglýst var til að bæta kyngetu en hafði ekki hlotið söluleyfi á Spáni eða innan Evrópusambandsins.
Efnið innihélt plöntuþykkni sem kallast Tongkat Ali, einnig þekkt sem Eurycoma longifolia. Matvælaöryggisstofnun Evrópu hefur lýst áhyggjum af því að efnið geti skaðað erfðaefni.
Lögreglan rakti dreifingarkeðjuna til heildsala á Kanarí sem útvegaði vörurnar til kynlífsverslana og heilsubúða á nokkrum eyjum. Einnig tókst að bera kennsl á aðaldreifingaraðila vörunnar í Katalóníu. Frekari lagalegum aðgerðum verður beint gegn þeim sem hlut eiga að máli.
Við eftirlitið fundust jafnframt lyf, verkjalyf, vítamín og kynlífsleikföng sem uppfylltu ekki öryggiskröfur og gætu því skapað hættu fyrir notendur.
Alls lagði lögreglan hald á:
- 8.064 einingar af efni sem markaðssett var gegn ristruflunum.
- 14 einingar af lyfjum og verkjalyfjum.
- 399 kynlífsleikföng.
- 336 vítamínblöndur.
Vörurnar eru nú í vörslu yfirvalda á meðan ákvörðun er tekin um framhaldið.
Guardia Civil minnir fyrirtæki á að fæðubótarefni og vörur til einkanota þurfi að uppfylla viðeigandi öryggiskröfur og bera nauðsynlegar upplýsingar um innihald og notkun.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir