Gauti B. Eggertsson hagfræðingur segir Hildi Björnsdóttur borgarstjóra beita öðrum mælikvarða á fjárhag Reykjavíkurborgar nú en hún gerði þegar hún sat í minnihluta. Með því að nota sömu aðferð og Hildur beitti árið 2024 reiknist 8,1 milljarðs króna halli á rekstri A-hluta borgarinnar árið 2027, þrátt fyrir að nýr meirihluti kynni nú 2,8 milljarða afgang sem merki um viðsnúning.
Gauti fjallar um málið í færslu á Facebook og vísar þar til greinar sem Hildur skrifaði í Morgunblaðið í nóvember 2024 undir fyrirsögninni „Tálsýn borgarstjóra“. Þá dró Hildur arðgreiðslur, tekjur af sölu byggingarréttar og söluhagnað eigna frá rekstrarniðurstöðu borgarinnar. Niðurstaðan var neikvæð og sagði hún reksturinn „fullkomlega ósjálfbæran“.
Í grein sinni gagnrýndi Hildur þáverandi borgarstjóra og sagði fullyrðingar um hagræðingu vera „sjónhverfingar sem standast enga skoðun“. Hún bætti við: „Hér hefur engu verið hagrætt nema sannleikanum.“
Gauti segir að ef sömu aðferð sé beitt á fjárhagsáætlun nýs meirihluta fyrir árið 2027 þurfi að draga tæplega 6,4 milljarða króna í arðgreiðslur, fjóra milljarða í tekjur af sölu byggingarréttar og hálfan milljarð í söluhagnað eigna frá rekstrarniðurstöðunni. Þá standi eftir 8,1 milljarðs króna halli.
Hann tekur þó fram að hvorug aðferðin gefi fulla mynd af fjárhag borgarinnar. Reykjavíkurborg hafi ekki verið í fjárhagskröggum árið 2024 og sé það ekki heldur nú.
Að hans mati sýni samanburðurinn hins vegar tvískinnung í málflutningi borgarstjóra. Tekjur sem Hildur hafi áður notað til að draga rekstur borgarinnar í efa séu nú hluti af þeim viðsnúningi sem nýr meirihluti eigni sér. Gauti bendir jafnframt á að í inngangi fjárhagsáætlunarinnar segi Hildur að slíkar tekjur eigi ekki að vera grundvöllur fastra útgjalda.
„Það má ekki skipta um mælikvarða eftir því hver situr í stól borgarstjóra,“ skrifar Gauti.
Segir fjármálakreppu hafa verið boðaða í áratugi
Gauti rifjar jafnframt upp að gagnrýni á fjárhag Reykjavíkurborgar hafi verið viðvarandi í pólitískri umræðu frá því Sjálfstæðisflokkurinn missti meirihluta sinn árið 1994, eftir nærri 60 ára valdatíð.
Hann nefnir kosningabaráttuna árið 2002 þegar Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, lét mann í brúðubúningi elta Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra. Búningurinn átti að tákna „skuldahala“ sem væri að kæfa borgina.
Gauti segir að fyrir hverjar kosningar hafi verið haldið fram að fjárhagur borgarinnar væri í rústum, en mælikvarðarnir hafi breyst eftir því sem hentaði málflutningnum.
Hann gagnrýnir jafnframt að meint fjármálakreppa sé nú notuð til að réttlæta fjöldauppsagnir hjá borginni.
Bendir hann á að samkvæmt ársreikningum 2025 hafi skuldaviðmið borgarsjóðs Reykjavíkur verið 80 prósent af tekjum. Til samanburðar hafi það verið 87 prósent í Garðabæ, 92 prósent á Seltjarnarnesi, 96 prósent í Mosfellsbæ og um 104 prósent í Hafnarfirði.
Segir niðurskurð vera pólitískt val
Að mati Gauta snýst málið ekki aðeins um reikningsskil heldur einnig um pólitískar áherslur. Hann segir Sjálfstæðisflokkinn vilja draga úr umfangi hins opinbera og bendir á að stór hluti útgjalda borgarinnar renni til þjónustu við börn, aldraða og fatlað fólk, meðal annars í leikskóla, grunnskóla, íþróttastarf og almenningssamgöngur.
Niðurskurður hafi því bein áhrif á þjónustu við borgarbúa.
„Þetta er pólitískt val,“ skrifar Gauti og segir stjórnmálafólk þurfa að vera heiðarlegt um slíkar áherslur í stað þess að kynna þær sem nauðsynleg viðbrögð við fjármálakreppu.
Hann gagnrýnir einnig framkvæmd fjöldauppsagnanna og segir aðferðirnar sem beitt hafi verið stangast á við áratuga rannsóknir á sviði mannauðsstjórnunar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

































Athugasemdir