Mist Edvardsdóttir og Steinunn Björnsdóttir hafa tekið við stjórnunarstörfum hjá Creditinfo. Þær hafa báðar starfað þar árum saman og þekkja fyrirtækið vel.
Mist er Valsari og hefur starfað hjá Creditinfo frá árinu 2019. Hún hefur verið viðskiptastjóri og einnig unnið að markaðsmálum að undanförnu. Nú tekur hún við sem forstöðumaður markaðs- og kynningarmála.
Steinunn er Framari og hóf störf hjá Creditinfo árið 2016 sem þjónustufulltrúi. Síðar varð hún viðskiptastjóri. Nú hefur hún verið ráðin forstöðumaður viðskiptastýringar.
Báðar hafa náð langt í íþróttum. Mist lék með íslenska landsliðinu í knattspyrnu og Steinunn með landsliðinu í handknattleik.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir