Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Orðrómur um stafrænan heimsendi 17. nóvember vekur ótta

Almennar við­bún­að­ar­leið­bein­ingar og fyr­ir­huguð prófun neyð­ar­við­vör­un­ar­kerfis hafa verið tengdar við óstað­festa sögu. Ótti við hana gæti nýst svika­hröppum.

Nettengdur heimur
Nettengdur heimur Inter­netið er sam­sett úr fjölda sjálf­stæðra net­kerfa og ekki hægt að slökkva á því með einum rofa, þvert á það sem haldið er fram í orðrómi á sam­fé­lags­miðlum. Mynd: NASA / Unsplash

Orðrómur um yfir­vof­andi staf­rænan heimsendi hefur farið eins og eldur í sinu um sam­fé­lags­miðla og sam­skipta­for­rit víða um heim. Samkvæmt vin­sælum færslum eiga tölvu­þrjótar að ráð­ast á helstu banka heims á morgun, þann 17. nóv­em­ber, eyða banka­reikn­ingum fólks og lama inter­netið í þrjá mán­uði.

Í sumum útgáfum sög­unnar er jafn­framt talað um nýjan heims­far­aldur, svo­kallað „COVID 2.0“, og ofuröfluga gervi­greind sem eigi að lag­færa veik­leika í tölvu­netum heims.

Sagan hefur náð slíkri útbreiðslu að stjórn­völd í nokkrum ríkjum hafa þurft að senda frá sér opin­berar yfir­lýs­ingar til að hrekja hana.

Uppruninn rakinn til nafnlausrar heimildar á djúpvefnum

Upphaf orðróms­ins er talið mega rekja til færslu brasil­ísks not­anda á sam­fé­lags­miðl­inum X þann 1. nóv­em­ber. Þar lýsti hann atburða­rás sem ætti að leiða til alls­herj­ar­hruns og vís­aði til nafn­lausrar heim­ildar á djúp­vefnum (e. dark web).

Í færsl­unni var fólki ráð­lagt að safna birgðum af mat, vatni, reiðufé, góð­málmum og jafn­vel skot­vopnum.

Höf­und­ur­inn tók þó sjálfur fram að upp­lýs­ing­arnar væru óstað­festar og ekki ætti að taka þær bók­staf­lega. Þegar færslan var þýdd á önnur tungu­mál og henni dreift áfram á sam­fé­lags­miðlum og í skila­boða­for­ritum féll sá fyr­ir­vari hins vegar oft út. Þannig breytt­ist óstað­fest saga í við­vörun sem margir tóku alvar­lega.

Orðróm­ur­inn tók síðan á sig ýmsar myndir. Í sam­fé­lagi dul­rit­un­ar­gjald­miðla komu meðal ann­ars fram tvær ósam­rým­an­legar kenn­ingar: ann­ars vegar að Bitcoin myndi hrynja með hefð­bundnum gjald­miðlum og hins vegar að það yrði eina eignin sem stæði eftir.

Raunverulegir atburðir ruglaðir saman við samsæriskenningar

Nokkrir raun­veru­legir atburðir í kringum 17. nóv­em­ber hafa hjálpað til við að ýta undir sög­una.

Í Banda­ríkj­unum er til dæmis fyr­ir­hugað að prófa neyð­ar­við­vör­un­ar­kerfið um allt land þann dag. Prófunin var til­kynnt í sept­em­ber og felst í hefð­bund­inni útsend­ingu í útvarpi og sjón­varpi sem tekur eina mín­útu.

Yfirvöld hafa tekið sér­stak­lega fram að prófunin verði ekki send í far­síma og hafi engin áhrif á inter­netið. Sam­sær­is­kenn­inga­smiðir hafa hins vegar haldið því fram að prófunin sé yfir­varp fyrir fyr­ir­hug­aða lokun inter­nets­ins.

Einnig hefur verið vísað til leið­bein­inga frá stjórn­völdum í Bret­landi, Japan og Evr­ópu­sam­band­inu um að heim­ili eigi að eiga 72 klukku­stunda birgðir af mat og vatni. Almanna­varnir rík­is­lög­reglu­stjóra hér á landi sendi einnig frá sér slíkan bæk­ling nýverið. Slíkar ráð­legg­ingar eru þó almennar við­bún­að­ar­leið­bein­ingar vegna neyð­ar­á­stands eða aftaka­veð­urs og tengj­ast ekki 17. nóv­em­ber.

Þá hefur mynd­band úr The Simpsons verið notað sem meint sönnun þess að sjón­varps­þætt­irnir hafi spáð fyrir um net­bil­un­ina. Umræddur þáttur frá árinu 2023 fjallar hins vegar um raf­magns­leysi í Spring­fi­eld og nefnir hvorki nóv­em­ber 2026 né netárásir.

Vænt­an­leg útgáfa tölvu­leiks­ins GTA 6 þann 19. nóv­em­ber hefur einnig bæst við umræð­una. Sumir net­verjar hafa velt því fyrir sér hvort gríð­ar­legt nið­ur­hal á leiknum gæti lamað inter­netið.

Þá hafa mynd­bönd sem sýnt hafa meint geim­skip, bæði í Banda­ríkj­unum og í Suður-Ameríku, síð­ustu daga, bæst inn í þessa sam­sær­is­kenn­ingu.

Internetið hefur engan „neyðarrofa“

Samkvæmt sér­fræð­ingum í net­ör­yggi er sú atburða­rás sem lýst er í orðrómnum ekki tækni­lega raun­hæf.

Inter­netið er ekki eitt mið­lægt kerfi sem hægt er að slökkva á með einum rofa. Það sam­anstendur af tug­þús­undum sjálf­stæðra net­kerfa, gagna­vera og sæstrengja sem eru rekin af ólíkum aðilum.

Net­trufl­anir geta vissu­lega orðið, en þær eru yfir­leitt stað­bundnar og tengj­ast til dæmis skemmdum á raf­orku­kerfum, nátt­úru­ham­förum eða ákvörð­unum stjórn­valda um að loka fyrir net­að­gang á til­teknum svæðum.

Það er sömu­leiðis ekki hægt að eyða öllum bankainn­stæðum heims­ins með einni skipun. Bankar geyma ekki allar upp­lýs­ingar um inni­stæður í einum gagna­grunni. Gögn eru dulkóðuð og afrituð á mörgum gagna­verum og vara­kerfum, sumum þeirra sem eru ekki tengd við inter­netið.

Svikahrappar gætu nýtt sér óttann

Stjórn­völd í Kasakstan hafa meðal ann­ars þurft að hrekja orðróm­inn opin­ber­lega og vara fólk við því að hamstra mat­væli. Þar var jafn­framt bent á að far­síma­kerfi og neyð­ar­núm­erið 112 starfi óháð inter­net­inu.

Fjar­skipta­fyr­ir­tæki og net­ör­ygg­is­mið­stöðvar stað­festu einnig að fjar­skipta­kerfin væru í eðli­legum rekstri.

Bent hefur þó verið á að orðróm­ur­inn geti skapað raun­veru­lega hættu með öðrum hætti. Svika­hrappar gætu nýtt sér ótt­ann til að blekkja fólk og þykj­ast vera starfs­menn banka.

Þeir gætu til dæmis hringt í fólk og boðið því að flytja pen­ing­ana sína á svo­kall­aða „örugga reikn­inga“ eða sent sendla til að sækja reiðufé, undir því yfir­skini að verið sé að bjarga spari­fénu undan tölvu­þrjótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Fyrrverandi fangelsisstjóri segir flutninginn í C-flokksfangelsi koma sér á óvart. Áhyggjur af öryggi hans eru sagðar hafa haft áhrif á ákvörðunina.
Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Peningar

Lands­liðs­konur í ný störf

Heimur

Svif­vængja­flug­maður lést í hörmu­legu slysi

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Heimur

Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Handtökurnar koma aðeins nokkrum dögum eftir skotárás í Kraká þar sem sex manns létust. Mikil óvissa og ótti ríkja í landinu eftir árásina.
Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni