Kona sem ók pallbifreið sinni inn í hóp fólks á fótboltaleik í Wichita í Kansas í Bandaríkjunum í síðasta mánuði verður ekki ákærð vegna atviksins samkvæmt TMZ. Tveir létust í slysinu, þar á meðal sex ára drengur, og tíu særðust.
Atvikið átti sér stað 17. október síðastliðinn við Stryker Sports Complex, þar sem fjöldi fólks hafði komið saman til að fylgjast með fótboltaleik. Konan ók bifreið sinni inn í mannfjöldann með þeim afleiðingum að tveir létust og tíu slösuðust, þar af fimm börn.
Marc Bennett, héraðssaksóknari í Sedgwick-sýslu, greindi fjölmiðlum frá því að rannsókn málsins hefði ekki leitt í ljós neinar vísbendingar um refsiverða háttsemi ökumannsins.
Niðurstöður úr rannsóknum á blóðsýnum konunnar sýndu engin merki um áfengis- eða vímuefnaneyslu. Bennett sagði jafnframt að ekkert benti til þess að konan hefði ekið á fólkið af ásetningi. Þvert á móti hefðu rannsóknargögn stutt þá niðurstöðu að ekki hefði verið um viljaverk að ræða.
Samkvæmt vitnum virtist konan ekki vera undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna þegar slysið varð. Eftir að bifreiðin stöðvaðist á hún að hafa sagt við viðstadda að hún hefði sofnað undir stýri og stigið óvart á bensíngjöfina.
Lögregla handtók konuna í kjölfar slyssins og yfirheyrði hana í nokkrar klukkustundir.
Þeir sem létust voru hinn sex ára gamli Cole Adrian og Nicholas Schafer, 35 ára.
Faðir drengsins, Chris Adrian, ræddi við New York Times eftir harmleikinn og lýsti syni sínum sem einstökum dreng sem hefði haft þann hæfileika að kalla fram bros hjá öllum í kringum sig.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir