Fjögurra herbergja einbýlishús við Grænumýri 13 á Akureyri hefur verið sett á sölu fyrir 65,9 milljónir króna. Húsið var byggt árið 1952 og er samtals 105 fermetrar að stærð. Við eignina er stór og gróinn garður sem snýr í suður, auk hundagerðis og gróðurhúss. Þá má sjá glæsilega list á húsinu sjálfu.
Húsið er steinsteypt og stendur á steyptum kjallara. Aðalhæðin er 86,7 fermetrar og skiptist í stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Tveir inngangar eru að húsinu, annars vegar að austan og hins vegar að vestan.
Á gólfum eru flísar og vínilparket en á baðherbergi er meðal annars nýlegt upphengt salerni og baðkar. Í einu svefnherbergjanna er nýlegur, fastur fataskápur.
Kjallarinn er 18,3 fermetrar og þar er að finna þvottarými ásamt tveimur minni geymslum.
Stór garður með hundagerði og gróðurhúsi
Garðurinn er eitt helsta sérkenni eignarinnar. Hann er gróinn og snýr í sólríka suðurátt. Þar er um 50 fermetra afgirt hundagerði með litlum geymsluskúr.
Á lóðinni stendur einnig um 15 fermetra gróðurhús sem getur jafnframt nýst sem vinnuaðstaða. Þar er bæði rafmagn og heitavatnsofn. Bílastæði er austan við húsið og þaðan er gott aðgengi að garðinum.
Ásett verð eignarinnar er 65.900.000 krónur.




Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir