Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Langtímaspá bendir til þurrari vetrar á Íslandi

Einar Svein­björns­son telur að tengsl við El Niño kunni að skýra veð­ur­mynstrið og bendir á mögu­lega nei­kvæða Norður-Atl­ants­hafs­sveiflu.

Langtímaspá bendir til þurrari vetrar á Íslandi
Lang­tíma­spáin Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur segir nýja lang­tíma­spá benda til úrkomu undir með­al­lagi á Íslandi í vetur.

Ný lang­tíma­spá evr­ópsku reikni­m­ið­stöðv­ar­innar bendir til þess að úrkoma verði undir með­al­lagi á Íslandi í vetur, einkum suð­vestur af land­inu. Veð­ur­fræð­ing­ur­inn Einar Svein­björns­son segir spána afger­andi og telur tengsl við El Niño geta skýrt veð­ur­mynstrið.

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur fjallar um nýj­ustu lang­tíma­spá Evrópsku reikni­m­ið­stöðv­ar­innar í færslu á Facebook. Spáin tekur til vetr­ar­mán­að­anna þriggja, des­em­ber, jan­úar og febr­úar, og er að hans sögn mjög áþekk októ­ber­spánni.

Einar segir spána svo afger­andi og stöðuga að ekki sé hægt að horfa fram hjá henni og jafn­vel ástæða til að taka fullt mark á henni. Hann bendir þó á að þótt spáin gefi skýra mynd af vetr­inum í heild geti veðrið sveifl­ast mikið á tíma­bil­inu.

Samkvæmt spánni er gert ráð fyrir lágu hæð­ar­frá­viki yfir stóru svæði suður af Alaska, sem teygir sig austur yfir Banda­ríkin og út á Atl­ants­haf. Á móti kemur öfl­ugt hæð­ar­frá­vik yfir Græn­landi og norð­aust­ur­hluta Kanada.

Þetta þýðir að lægða­brautin gæti legið mun sunnar á Atl­ants­hafi en að jafn­aði, en jafn­framt er gert ráð fyrir ein­kenn­andi Græn­lands­hæð.

Líkur á úrkomu undir meðallagi

Spár um úrkomu sýna auknar líkur á að heild­ar­úr­koma yfir vetr­ar­mán­uð­ina verði í neðsta þriðj­ungi þess sem mælst hefur yfir langt tíma­bil. Þurrð­ar­svæði sést nærri Íslandi og sér­stak­lega suð­vestur af land­inu.

Á meg­in­landi Evrópu eru hins vegar ekki taldar miklar líkur á úrkomu undir með­al­lagi. Þar gæti fremur orðið úrkomu­samt, sem sam­ræm­ist spánni um legu lægða­braut­ar­innar.

Einar veltir jafn­framt fyrir sér tengslum veð­ur­mynsturs­ins við El Niño, en styðst þar meðal ann­ars við skýr­ingar banda­ríska veð­ur­fræð­ings­ins Bon Nolls.

Samkvæmt þeirri skýr­ingu eykur El Niño þrumu­veður nærri mið­baug. Við þau losnar varmi hátt upp í loft­hjúp­inn, sem styrkir Hadley-hringrás­ina og eykur hita­mun milli hita­belt­is­ins og norð­læg­ari breidd­argráða. Það leiðir síðan til þess að hvarf­baugs­röstin, eða þotu­straum­ur­inn, styrk­ist.

Nýjar spár sýni sam­kvæmt Noll sér­stak­lega öfl­ugan þotu­straum yfir Kyrra­hafi og Banda­ríkj­unum í vetur, með metöflugum hálofta­vindum frá Kali­forníu til Flórída. Áhrifin geti einnig náð til Evrópu.

Einar bendir á að kaldi hvirf­ill­inn suður af Alaska sé einnig hluti af þessu veð­ur­mynstri og ýti undir háa hæð­ar­frá­vikið yfir Kanada og Græn­landi. Þannig geti teng­ingin við El Niño haft áhrif á veð­ur­far hér við Norður-Atl­ants­haf.

Að lokum nefnir Einar að ýmis­legt bendi til þess að Norður-Atl­ants­hafs­sveiflan, NAO-vísir­inn, verði mjög nei­kvæður sam­kvæmt spánni. Hann telur áhuga­vert að bera slíka spá saman við fyrri vetur þar sem sam­bæri­lega afger­andi nei­kvæð NAO-staða hefur verið til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Dagvöruvísitala ASÍ hækkaði um 0,33 prósent frá ágúst til nóvember. Hækkanir á kjöti og mjólkurvörum vógu þyngst.
Innlent

„Þessi fámenni, fúl­lyndi hópur öskrar hærra en venju­legt full­orðið fólk“

Heimur

Gagn­rýnir hetju­dýrkun á Karl Bushby

Innlent

„Tími und­an­þága og fresta í svína­haldi er lið­inn“

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Innlent

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Einar Logi Pétursson segir að hann muni ekki brjótast inn í fleiri bú og ætli héðan í frá að berjast fyrir dýrum á löglegan hátt.
Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís