Lars Eriksson, sveitarstjóri í Jokkmokk í norðurhluta Svíþjóðar, hefur verið rekinn úr starfi eftir að sænskir fjölmiðlar greindu frá því að hann hefði framleitt klámmyndir og jafnframt komið fram fyrir framan myndavélina.
Eriksson hafði starfað við framleiðslu og leik í klámmyndum frá árinu 2018 undir dulnefninu „Hans“. Síðasta myndin sem hann tók þátt í mun hafa verið gefin út á þessu ári.
Samkvæmt fréttum fær Eriksson sex mánaða laun í starfslokasamning. Ákvörðunin um að láta hann fara mun meðal annars tengjast ótta við að hægt væri að beita hann fjárkúgun vegna fyrri starfa hans.
Í skriflegu svari til sænska ríkisútvarpsins SVT segir Eriksson að það að hann hafi svarað spurningum miðilsins um aukastörf sín sýni að hugsanleg fjárkúgunartilraun myndi ekki bera árangur.
Hann hefur áður sagt að starfsemin hafi verið lögleg, þótt hún væri tabú, og að henni hefði lokið meira en tveimur árum áður en hann varð gjaldgengur til að gegna starfi sveitarstjóra. Hann ætti því erfitt með að sjá hvernig hún ætti að hafa áhrif á störf sín.
































Athugasemdir