Krista Hrönn Héðinsdóttir, sem kemur fram sem dóttir.x, er meðal 15 tónlistarmanna sem tilnefndir eru til Music Moves Europe-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar voru kynntar á Riga Music Week í gær.
Music Moves Europe-verðlaunin (MME) eru verðlaun Evrópusambandsins fyrir upprennandi tónlistarfólk, studd af menningaráætluninni Creative Europe. Þeim er ætlað að vekja athygli á tónlistarfólki í Evrópu og hjálpa því að ná til hlustenda utan heimalandsins. Fyrri verðlaunahafar eru meðal annars Of Monsters and Men, Ásgeir Trausti, Dua Lipa, ROSALÍA, Stromae og Hozier.
„Evrópskt tónlistarlíf er í stöðugri þróun, knúið áfram af nýjum sjónarhornum, djörfum hugmyndum og tónlistarfólki sem þorir að fara eigin leiðir. MME-verðlaunin fagna næstu kynslóð evrópsks hæfileikafólks og þeirri fjölbreytni sem lætur tónlistarlíf okkar blómstra. Við erum stolt af því að styðja verkefni sem hjálpa upprennandi tónlistarfólki að ná til hlustenda, byggja upp alþjóðlegan feril og láta rödd sína heyrast, með stuðningi Creative Europe. Innilega til hamingju, öll fimmtán sem hlutu tilnefningu!“ segir Glenn Micallef, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins á sviði æskulýðsmála, menningar og íþrótta.
Á einu ári hefur tónlist dóttir.x fengið yfir milljón streymi og hún náð 100 þúsund mánaðarlegum hlustendum. Hún hefur einnig birst á risaskjá Spotify á Times Square í New York.
Þau tilnefndu eru:
TeddyBear (Belgía), Ida The Young (Tékkland), panicbaby (Þýskaland), Ángeles Toledano (Spánn), Vilma Jää (Finnland), Jersey (Frakkland), DA TI (Georgía), Alkyone (Grikkland), Palo Canto (Ungverjaland), MOIO (Írland), dóttir.x (Ísland), TÄRA (Ítalía), Nusantara Beat (Holland), Petra (Slóvakía) og Olga Myko (Svíþjóð).
Koma fram á Eurosonic Noorderslag
Öll þau tilnefndu koma fram á tónlistarhátíðinni Eurosonic Noorderslag í Groningen í Hollandi 13.–16. janúar 2027. Þau taka einnig þátt í fræðsludagskrá MME og fá tækifæri til að mynda tengsl við fagfólk í tónlistargeiranum.
Almenningur getur kosið á mmeawards.eu/vote til miðnættis fimmtudaginn 31. desember næstkomandi.
Handhafi áhorfendaverðlaunanna fær 5.000 evrur og tækifæri til að taka upp „Spotify Single“ í hljóðveri Spotify í Stokkhólmi.
Alþjóðleg dómnefnd velur einnig fimm MME-verðlaunahafa sem fá 10.000 evrur hver. Handhafi aðalverðlauna dómnefndar fær auk þess 5.000 evra styrk til vistvæns tónleikaferðalags.
Í dómnefndinni sitja Jess Iszatt hjá BBC Radio 1 og BBC Introducing, Filip Košťálek hjá Colours of Ostrava, Kenza Naaïmi El Fezzazi hjá Red Bulletin og FIP Radio, Marta Belay hjá Spotify og Lia Kali, handhafi áhorfendaverðlauna MME árið 2026.
Sigurvegararnir verða kynntir við verðlaunaafhendingu MME í Stadsschouwburg Groningen fimmtudaginn 14. janúar 2027. Athöfnin er hluti af Eurosonic Noorderslag í Hollandi.
































Athugasemdir