Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ekkert minni konur en aðrar konur

Trans kon­urnar Anna Krist­jáns­dóttir og Arna Magnea Danks hafa verið opnar um mál­efni trans kvenna. Þær ræða hér um sögu sína allt frá æsku­ár­unum og voru þær báðar settar í fóstur sem lítil börn vegna erf­iðra heim­il­is­að­stæðna, þær tala um felu­leik­inn og þær segja frá því þegar þær hófu kyn­stað­fest­ing­ar­ferlið og fóru í aðgerð­irnar. Þær tala líka um for­dóma í sam­fé­lag­inu og hvað getur valdið þeim. Arna Magnea talar líka um ein­hverfu­rófs­rösk­un­ina.

Ekkert minni konur en aðrar konur
Anna Krist­jáns­dóttir og Arna Magnea Danks Mynd: Golli

Tvær konur. Tvær trans konur. Anna Krist­jáns­dóttir og Arna Magnea Danks heilsa hlý­lega. Anna er í buxum og peysu. Arna Magnea í pilsi og blússu. Hún styður sig við göngu­grind. Annar fót­ur­inn er í spelkum og miklum umbúðum. Hún lenti í mót­or­hjólaslysi, hlaut opið bein­brot og er í sára­með­ferð vegna þess. Lífs­ganga kvenn­anna tveggja má segja að hafi stundum líkst opnu bein­broti áður fyrr áður en þær komu út sem konur og gengu í gegnum sára­með­ferð í kjöl­farið. Þær tvær hafa ásamt nokkrum fleirum íslenskum trans konum verið mest áber­andi í gegnum árin og segja má að Anna hafi brotið ísinn með við­tali við Nýtt líf árið 1994. Blaða­maður vann þá hjá tíma­rita­út­gáf­unni og man eftir kon­unni sem kom inn á rit­stjórn­ina til að hitta blaða­mann­inn sem tók þá við­tal við hana. Í þessu við­tali ætla þær báðar að segja sögu sína.

Gerðist karl

Anna fædd­ist í Reykja­vík, nánar til­tekið í Höfða­borg. Þar voru tvær stærðir íbúða, flestar voru 39 fer­metrar og tveggja her­bergja en hinar voru 31 fer­metri og með einu her­bergi.

Hver er fyrsta æskuminn­ingin? „Ætli það hafi ekki verið á gamlárs­kvöld þegar var verið að skjóta upp flug­eldum þegar ég var svona tveggja þriggja ára.“

Anna bjó hjá for­eldrum sínum fyrstu árin en þvæld­ist síðan á milli barna­heim­ila eins og hún orðar það. Ástæðan? „Sumum þótti góður sop­inn,“ segir hún og á við föður sinn. „Í fimm ár var ég í Reykja­hlíð í Mos­fells­dal. Það var mjög gott að vera þar. Það var ljóm­andi gott. Ég er alla­vega mjög sátt við það. Ég var þar allt árið og mamma og eldri systk­inin komu stundum í heim­sókn og ég fór heim um jólin.

Ég hef alltaf litið svo á að þetta hafi reddað mér, hafi hjálpað mér mikið út af aðstæðum heima. Mér leið ljóm­andi vel þarna upp frá. Það voru mis­mörg börn á heim­il­inu. Þau komu og fóru. Ég gekk í Brú­ar­lands­skóla og síðar Var­má­skóla eftir að hann var tek­inn í notkun. Þar voru mínir vinir þarna í sveit­inni.“

Anna seg­ist alltaf hafa dreymt um að verða stelpa. „Það var ekk­ert hægt að gera neitt í mál­inu. Maður þurfti bara að lifa með þetta inni í sér.“ Talaði hún við ein­hvern um þetta? „Nei, það var ekki hægt. Við hvern átti ég að tala? Reyndar - áður en ég fór í Reykja­hlíð­ina þá bjó einn strákur í næsta húsi við mig sem kom seinna út sem hommi. Það kom í ljós frá fyrstu tíð. Það var löngu fyrir kyn­þroska sem við vorum farin að klæða okkur í föt af systrum okkar. Hann var alltaf opinn með sínar til­finn­ingar. Ég hins vegar fór í þver­öf­uga átt. Ég lok­aði af allar til­finn­ingar og gerð­ist kall,“ segir Anna sem gerði í því að verða karl­mann­legri heldur en margir karlar. „Ég fór til sjós. Ég fór á tog­ara þegar ég var fjórtán ára en bar­áttan gekk út á að halda aftur af þeim til­finn­ingum. Ég fór svo í Vél­skól­ann og kláraði hann, gifti mig og eign­að­ist þrjú börn.“

Hvernig var að vera innan um alla karl­ana á sjónum vit­andi að hún væri stelpa? Ung kona. „Hvað átti ég að gera? Við hvern átti ég að tala? Það var eng­inn til að tala við.“ Ekki heldur þegar hún var orðin full­orðin? „Nei. Það var bara eng­inn.“ Og Önnu leið illa út af þessu. „Já, það er alveg rétt.“

Kostaði heilmikil læti

Anna og eig­in­konan skildu árið 1984 og þá fór bolt­inn að rúlla - en hann stöðv­að­ist þó. „Þá hafði ég í fyrsta skipti sam­band við lækni út af þessu. Hann fyllt­ist hof­móði við að reyna að bjarga mér frá þessum örlögum. Hann ætl­aði að reyna að lækna mig og ég mætti í ein­hver skipti til hans upp á geð­deild. Svo einn dag­inn þegar ég mætti í fyrir fram boðað við­tal þá var hann ekki við og ég fékk ekki nýjan tíma. Hann var búinn að gef­ast upp á mér. Ég fór aftur inn í skáp­inn og hélt mér þar næstu árin.“

Anna slas­að­ist á sjó haustið 1987 og fór í land í fram­hald­inu. Hún var í öld­unga­deild Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð með öðru og aðstoð­aði við inn­rit­un­ina.

Nýr náms­ráð­gjafi hafði hafið störf við skól­ann og seg­ist Anna hafa tek­ist að ná svona þræl­vel inn á hana. „Þá fór eitt­hvað að ganga hjá mér með henni. Ég opn­aði mér fyrir henni og í fram­haldi af því rúll­uðu hlut­irnir. Ég fór í við­töl hjá tveimur geð­læknum. Það end­aði með því að ég fór út til Sví­þjóðar og átti von á ein­hverri aðstoð þar en sú aðstoð brást. Ég fór að berj­ast við kerfið og það var ekki fyrr en í árs­lok 1992 sem ég fékk heim­ild til að fara í með­ferð­ar­ferlið með hjálp læknis í Uppsölum. Og eftir það gekk bara ljóm­andi vel og ég fór í aðgerð­ina árið 1995. Það kost­aði heil­mikil læti því það var svo strangt kerfið í þá daga. Ísland kom ekki nálægt þessu. Þetta var óþekkt á Íslandi. Náms­ráð­gjaf­inn vissi um þetta og þessir geð­læknar vissu um mína stöðu en þeir voru ekk­ert að aug­lýsa þetta. Þvert á móti var sagt við mig að tjá mig ekk­ert um þetta opin­ber­lega.“

Arna Magnea bendir á að fyrstu lögin sem snerta á mál­efnum trans fólks á Íslandi hafi verið sett árið 2012. „Þegar ég kom til Íslands í byrjun árs 2005 eftir nám í Englandi og var að reyna að fá hjálp þá var mér mætt með hroka eins og ég væri geð­sjúk­lingur. Þú getur ímyndað þér hvernig það var í hennar tíð. Enn erf­ið­ara.“

„Ég var í nefnd­inni sem samdi þessi lög 2010-2012,“ segir Anna.
Mun færri fóru á þessum tíma í gegnum ferlið í Svíþjóð en í dag. Árið 1995 þegar Anna fór í gegnum það voru það ell­efu ein­stak­lingar að hennar sögn. Aðgerðin gekk vel en þó komu upp slæmar blæð­ingar. „Að öðru leyti gekk þetta ljóm­andi vel.“

Formaður transsexual félagsins

Anna bjó í Svíþjóð í sjö ár og vann hjá orku­veit­unni í Stokk­hólmi og þar í landi kom hún út sem trans kona. Hún segir að umræðan um trans fólk hafi haf­ist hér á landi þegar tekið var við hana sjón­varps­við­tal fyrir RUV í des­em­ber 1994 og var það í fram­haldi af við­tal­inu í Nýju lífi og segir hún að umræðan hafi farið fram hjá sér þar sem hún bjó ekki á land­inu. „Ég var þá þegar þekkt í Svíþjóð en ég var þá for­maður sam­taka trans­sexual fólks í Svíþjóð því á þessum árum var gerður skýr grein­ar­munur - orð­takið trans­gender var tæp­lega orðið raun­veru­leiki en það var gerður skýr grein­ar­munur á því hvort fólk væri trans­sexual eða trans­vestite. Ég var for­maður trans­sexual félags­ins.“

Anna sótt­ist ekki eftir því að verða for­maður félags­ins en örlögin ætl­uðu henni annað. „Ég var í þessu félagi og það kom upp árið 1992 að náungi var að dunda sér við það að skjóta á inn­flytj­endur á nótt­unni í Svíþjóð. Hann not­aði „lasermið“ til að skjóta á fólkið og eitt­hvað var hann mis­tækur af því að hann drap ekki nema held ég tvær mann­eskjur af þeim sem hann reyndi að drepa. Seinna kom upp sá kvittur að þessi maður væri trans. Þáver­andi stjórn félags­ins hljóp öll beint í felur. Í stað­inn fyrir að koma út og reyna að svara fyrir okkur og leið­rétta orðróm­inn þá hljóp hún sjálf í felur. Á næsta aðal­fundi á eftir mætti ein úr stjórn­inni og skil­aði lyklunum og þá neydd­ist ég til að taka að mér for­mennsk­una. Það var ekki af mínum vilja en ég hafði verið með kjaft­inn upp í loft og kraf­ist þess af stjórn­inni að hún kæmi fram og reyndi að verja okkar mál­stað. Þess vegna lenti ég í því að vera for­maður.“

Einelti

Anna flutti heim til Íslands sum­arið 1996. Hún sótti um um það bil sjö­tíu störf en fékk ekki vinnu. „Það var ekki fyrr en það vant­aði skyndi­lega vél­stjóra á tog­ara austur á Eski­firði. Útgerð­ar­stjór­inn hringdi í mig og vildi fá mig austur sem ég gerði. Ég fór austur og var mikið fyrir austan næstu árin á eftir í afleys­ingum á milli þess sem ég var hjá Hita­veitu Reykja­víkur og Orku­veitu Reykja­víkur og það gekk ljóm­andi vel.“

Það sneru sumir baki við trans kon­unni þegar hún flutti til Íslands og var hún lögð í ein­elti þegar hún vann hjá Hita­veitu Reyka­víkur en málið leyst­ist síðan með hjálp góðs fólks.

Anna segir að ein­eltið hafi í sjálfu sér ekki haft áhrif á sjálfs­traustið. „Ég vissi alveg hvað ég var að gera en það var leið­in­legt að þurfa að standa í þessu.“ Hún segir að þeir sem lögðu sig í ein­elti hafi aðal­lega verið karlar og jafn­vel karlar sem hún hafði þekkt áður en hún fór í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið og lok­uðu þeir á öll sam­skipti. „Smám saman næstu árin tókst mér að vinna mér inn hæfi­legt traust. En það var samt ekki fyrr en 2006 sem stóra breyt­ingin varð. Ég var ekki lengur „the only trans in the village“. Það voru fleiri sem komu út.“
Anna segir að ein­hverjir hafi beðið sig afsök­unar. Gat hún fyr­ir­gefið þeim? „Já, að sjálf­sögðu gerir maður það.“ Hún segir að þetta sitji ekki í sér í dag. „Það er löngu búið.“

Anna Krist­jáns­dóttir

„Þetta“

Arna Magnea bætir við að hægt sé að taka fólki en að gjörðir þess sitji svo­lítið eftir. „Ég er á dásam­legum vinnu­stað sem kenn­ari, en ég kenni í Grunn­skól­anum á Sel­tjarn­ar­nesi, þar sem ég bý svo vel að stjórn­endur hafa í raun­inni alltaf staðið með mér. Það hefur verið þroska­ferli. Það þarf stundum ekki að meina neitt illt en þegar maður er svona ein og öðru­vísi verður maður stöðugt fyrir alls konar öráreiti. Á tíma­bili var mikið fjallað um trans í fréttum og maður gat ekki farið inn á kaffi­stofu eða í mat öðru­vísi en maður þyrfti liggur við að svara fyrir allt sem snertir trans mál­efni. Þetta var svo mikið á því tíma­bili þegar þetta var í umræð­unni að ég bara hætti að fara í kaffi. Og þá var ég tekin á teppið fyrir að vera „anti social“. Ég lenti líka í því að það var fólk sem neit­aði að tala beint við mig og spurði skóla­stýruna hvort „þetta“ mætti vinna þarna. Ég var ekki mann­eskja í huga við­kom­andi. En sú mann­eskja var á tíma­bund­inni ráðn­ingu og var ekki boðið að vera áfram. Hún fékk samt strax vinnu í öðrum skóla.

Það sem mér finnst vera svo vont við mennta­kerfið er að við vitum að það eru kenn­arar sem eru rosa­lega trans­fó­bískir sem eru að skrifa meðal ann­ars um mig og Önnu; við erum fjórar sem erum mest áber­andi. Og það er bara mjög ógeð­fellt sem er verið að skrifa. Ég kvart­aði við Kenn­ara­sam­band Íslands en það ger­ist ekk­ert. Ein sem er að blogga skrif­aði að ég væri að eyði­leggja börnin á Sel­tjarn­ar­nesi. Þannig að maður hefur lent í alls konar. Það var til dæmis ein mann­eskja stöðugt að rang­kynja mig og ég hef aldrei unnið á þessum vinnu­stað nema sem Arna Magnea Danks. Hún sagði alltaf „hann“. Ég var þá til­tölu­lega snemma í ferl­inu og var að kvarta undan þessu og þá var sagt að ég yrði bara að skilja það að ég væri mjög karl­mann­leg. Ég er það ekki lengur en ég var það kannski á þessum tíma­punkti. Mér fannst þetta samt mjög sárt. Af hverju átti ég að skilja það? Eigum við trans konur að skilja það að það sé verið að rang­kynja okkur bara af því hvernig við lítum út? Það skiptir ekki máli hvort við séum karl­mann­legar eða kven­legar. Við eigum það allar skilið að það sé borin virð­ing fyrir því hverjar við erum. Þannig að ég tengi við þetta - það er oft erfitt að vera á vinnu­stað þegar fólk er ekki endi­lega á móti við­kom­andi en það er stöðugt öráreiti af því að maður er eins og Anna orð­aði það „the only trans in the village“.“

Umskiptingur eða álfabarn

Arna Magnea fædd­ist tveimur mán­uðum fyrir tím­ann í Reykja­vík og segir hún að móðir sín hafi snemma orðið mik­ill sjúk­lingur. Hún talar um erfitt heim­il­is­líf og var hún og yngri systir hennar sendar reglu­lega í fóstur í Sand­gerði á sitt­hvort heim­ilið frá unga aldri. Hún segir að hún hafi verið eins og jójó á milli þess heim­ilis og fjöl­skyldu­heim­il­is­ins þangað til hún var tólf ára. „Þetta er löng og erfið saga full af sárs­auka.“

Fyrir utan erfitt heim­il­is­líf seg­ist Arna Magnea hafa orðið fyrir grófri árás átta stráka þegar hún var ell­efu ára. „Þetta byrj­aði sem lík­am­legt ofbeldi og fór út í kyn­ferð­is­legt ofbeldi þannig að ég lok­að­ist. Ég vissi alltaf að ég væri ekki strákur en ég vissi ekki hvað ég var. Ég lýsti því lengi vel að ég hafi dáið þennan dag. Fram að þessu var ég mjög frökk. Fram að þessu hafði ég verið að reyna að vera ég sjálf. Átta ára gömul var ég dans­andi um í skóm af mömmu með vara­lit út á kinn. Ég var stöðugt að reyna að finna sjálfa mig. Hver ég var og hvað ég var. Það eina sem ég vissi fyrir vissu var að ég var ekki strákur! Þegar ég var mjög ung hélt ég fyrst að ég væri umskipt­ingur eða álfa­barn sem ég hélt að hefði verið skilið eftir og mig dreymdi um að álfa­mamma mín myndi koma og sækja mig. Ég trúði að hún byggi í nótt­inni og gæti bara séð mig í tungls­ljós­inu. Þess vegna laum­að­ist ég oft út seint á kvöldin. Seinna dreymdi mig um að ég væri bara geim­vera sem hefði óvart dottið inn í rangan lík­ama. Ég var stöðugt að reyna að finna ein­hverja útskýr­ingu en fann í raun enga raun­veru­lega útskýr­ingu. Ég var bara púsl í púslu­spili lífs­ins sem pass­aði hvergi.“
Þrjátíu ár liðu að hennar sögn þangað til hún sagði frá ofbeldi strák­anna í sinn garð. Hvers vegna sagði hún ekki fyrr frá því?
„Það var ekki hægt,“ segir Anna.
„Ég bar þessa skömm,“ segir Arna Magnea. „Ég ólst upp við það að vera kölluð skrýtin, furðu­leg, frík og stelpu­strákur. Ég þótti vera skrýtin og furðu­leg þannig að þá ber maður þetta. Ég kenndi sjálfri mér um þetta. Þetta var mér að kenna. Þeir réð­ust á mig af því að ég var frík. Fjórir þeirra voru úr bekknum mínum og ég held að þeir hafi ekki almenni­lega gert sér grein fyrir því hvað þeir voru að gera. Ég vil ekki fara út í smá­at­riði. Það er erfitt. Ég er búin að vinna mjög vel úr þessu. Ég var í stífri áfalla­með­ferð í á fimmta ár í gegnum geð­heil­brigðisteymi Land­spít­al­ans, bæði hóp- og ein­stak­lings­með­ferð. Og ég er búin að vinna mjög vel úr þessu. Það er ekk­ert endi­lega auð­velt að tala um það. Ástæðan fyrir því að ég tala um þetta er til að fólk geri sér grein fyrir því að það voru til trans börn á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum. Allt trans fólk sem er komið yfir miðjan aldur eða á full­orð­insár var eitt sinn trans börn. Það bara fékk ekki að vera það sem það var. Í einu elstu skipu­lögðu trú­ar­brögðum sem voru í Mesópótamíu fyrir sex þús­und árum var gyðja, Inanna, sem gat skipt um ham og má segja að í nútíma skiln­ingi hafi hún verið, hún, hann og hán. Hof­gyðjur hennar voru, meðal ann­ars, trans konur. Þannig að þetta hefur fylgt mann­kyn­inu frá örófi alda og í raun ekki orðið að tabúi fyrr en með nýlendu­ár­unum og áhrifa Vest­ur­landa á önnur menn­ing­ar­svæði.“

Þrettán ára gömul varð Arna Magnea hrifin af strák. Það var fyrsta ástin. „Og hann nátt­úr­lega vildi ekk­ert með mig hafa. Þannig að það var líka fyrsta ást­ar­sorgin. Ég var tví­tug næst þegar ég þorði að vera í ein­hverju sam­bandi. Á þessum tíma var sagt að ef fólk væri hinsegin þá fengi það eyðni. Þá fengi það AIDS og dæi. Ég var alltaf bara drullu­hrædd frá þrettán ára aldri þegar ég byrj­aði að fá hvolpa­vit. Ég var stöðugt hrædd við það að ef ég yrði hrifin af ein­hverjum strák og ef ég myndi bara kyssa ein­hvern þá fengi ég AIDS og myndi deyja. Fáfræði mín var það mikil. Þá var ekk­ert Internet. Ég var viss um að ég fengi eyðni og myndi deyja ein og yfir­gefin og eng­inn myndi vilja sjá mig. Þannig að ótt­inn var gíf­ur­legur.“

Arna Magnea seg­ist hafa komið út gagn­vart móður sinni fjög­urra ára gömul og sagði: „Mamma, mamma, ég er ekki í spegl­inum!“ „Þetta er mín elsta og skýrasta minn­ing. Tráma minn­ing um að sjá ekki sjálfa mig í spegl­inum og að vera mætt með pirr­ingi og reiði. Fyrsta höfn­unin gagn­vart mínum innri sann­leika, að ég væri stelpa en ekki strákur. Ég vissi ekki að ég væri trans. Þetta orð var ekk­ert í kringum mig og ekki mikið um það í almennri umræðu á sjö­unda ára­tugnum.“

Nauðgað

Arna Magnea flutti til Englands tutt­ugu og sex ára gömul þar sem hún var í leik­list­ar­námi. Þar kom hún fyrst út sem tví­kyn­hneigð.

„Ég var líka búin að vera í skápnum hvað það varðar frá ung­lings­aldri. Þrjátíu og tveggja ára gömul var ég að lesa grein í Metro þegar ég var í strætó. Það var lítið við­tal inni í miðju blað­inu við trans konu frá Blackpool. Ég las það aftur og aftur og aftur. Þetta var ég! En ég upp­lifði líka ótta.

Ég kom út í Englandi og ég byrj­aði ferlið í Englandi árið 2003. Þá þurfti maður að lifa í þessu rétta kyn­hlut­verki í tvö ár og ég var að berj­ast við það. Mamma dó í milli­tíð­inni, í lok jan­úar 2004, og átti ég tíma hjá sér­fræð­ingi trans teym­is­ins á Kings Cross-spít­al­anum þannig að vegna and­láts og jarð­ar­farar mömmu þurfti ég að byrja ferlið upp á nýtt eftir að ég kom aftur út til Englands.

Mér féllust svo­lítið hendur og ég kynnt­ist fólki sem var að fá horm­óna á svörtum mark­aði. Ég tók á þessum tíma þátt í feg­urð­ar­sam­keppni trans kvenna og ég var mjög grönn og nett. Ég eign­að­ist alls konar vini þarna, bæði trans konur og alls konar fólk sem sótt­ist sér­stak­lega í félags­skap trans kvenna. Löngu seinna lærði ég að til er alveg sér­stakt orð yfir slíka ein­stak­linga: „Trans chasers.“ Ég kynnt­ist einum slíkum mjög vel og taldi hann vera vin minn þar sem hann kom alltaf vel fram við mig, rang­kynj­aði mig aldrei og virt­ist aldrei skamm­ast sín fyrir mig á almanna­færi sem því miður var oft raunin á þessum tíma. Við, trans kon­urnar, vorum oft faldar og aðeins elskaðar á nótt­unni en huns­aðar í dags­ljós­inu. Þessi vinur minn fékk að gista hjá mér eina nótt­ina seint í nóv­em­ber 2004 þar sem hann hafði misst af síð­ustu lest­inni heim en við höfðum verið í partíi saman. Um nótt­ina, þegar ég var sof­andi, réðst hann á mig og nauðg­aði mér. Ég reyndi að kæra hann á lög­reglu­stöð en þá var mér sagt að það þýddi ekk­ert fyrir fólk eins og mig að kæra, við værum hvort eð er alltaf á hnjánum. Það var átt við að við værum allar í vændi og værum allar að selja okkur. Ég var í sjokki og svar­aði ekki síma og sat bara grenj­andi í baðkar­inu í sífellu að reyna að reyna að hreinsa atburð­inn af mér. Ég brotn­aði alveg.

Ég var ekki með neitt bak­land. Ég var búin að koma út gagn­vart vinum í Bret­landi en vinir til dæmis úr leik­list­ar­skól­anum voru ekki burð­ugir í að hjálpa mér í þessu.“

Arna Magnea Danks

Ég barðist við sjálfa mig

Arna Magnea fór til Íslands í lok árs 2004 og ætl­aði að reyna að leita sér hjálpar þar sem hún lenti á lok­uðum dyrum í Englandi. „Ég fór til heim­il­is­lækn­is­ins sem byrj­aði á að setja mig í yfir­heyrslu. Hann trúði ekki neinu sem ég sagði og hlust­aði ekki á neitt sem ég sagði. Hann sagði að ég væri greini­lega með áfallastreituröskun sem var eflaust rétt og væri bara eitt­hvað í rugl­inu. Hann sagði að ég væri að yfir­færa þessar kven­legu til­finn­ingar frá mömmu af því að hún dó í byrjun sama árs; að ég væri að reyna að upp­lifa mömmu í gegnum sjálfa mig.

Ég fékk upp­á­skrifað hrúgu af ein­hverjum geð­lyfjum - kvíða- og þung­lynd­is­lyfjum. Ég fór með þau til Englands í byrjun mars. Ég kynnt­ist þar fljót­lega finnskri konu sem varð fljót­lega ófrísk sem var skrýtið þar sem ég var ein­stak­lega hrædd við kyn­sjúk­dóma og not­aði alltaf verjur. En kannski voru þetta örlögin, hver veit? Ég vildi gera það rétta í stöð­unni þannig að ég fór með henni til Finn­lands haustið 2005 og við áttum strák árið 2006. Það er elsti sonur minn sem býr í Finn­landi. Þarna var ég komin kyrfi­lega í skáp­inn og ég fór að segja við sjálfa mig nán­ast dag­lega, þetta var eins og mantra, að ég væri bara geð­klofi. Ég væri bara kona að innan, karl að utan og ég myndi bara fæð­ast rétt í næsta lífi. Sem kona að innan og utan. Ég bað til hvaða guða og gyðja sem vildu hlusta og til alheims­ins alls að ég myndi aldrei fæð­ast aftur annað en kven­kyns hvort sem ég væri býfluga, björn eða barn.“

Arna Magnea og barns­móðir hennar voru saman þar til sonur þeirra var tæp­lega fimm mán­aða en þá seg­ist hún hafa gef­ist upp. „Ég var að vesl­ast upp bæði lík­am­lega og and­lega. Þetta var ekki gott sam­band og í raun komst ég að því í gegnum áfalla­með­ferð­ina mörgum árum seinna að ég hafi verið í ofbeld­is­sam­bandi allan þann tíma sem við vorum saman. Af virð­ingu við elsta son minn vil ég ekki fara nánar út í þessa sögu á þessum tíma­punkti.“

Arna Magnea kom heim frá Finn­landi haustið 2006 og tveimur árum síðar kynnt­ist hún íslenskri konu sem hún segir að sé ynd­is­leg og frá­bær mann­eskja í alla staði og eign­að­ist með henni tvo syni. „Ég varð samt alltaf þung­lynd­ari og þung­lynd­ari og var alltaf að reyna að laga mig. Ég fór til alls konar heil­ara að reyna að laga sjálfa mig. Ég fór í alls konar með­ferðir hingað og þangað. Á þessum tíma­punkti var ég í algjörri afneitum gagn­vart því að ég væri trans og var með alls konar afsak­anir fyrir þess­ari van­líðan og þá helst að ég væri bara geð­veik. En sama hvað ég gerði þá gat ég ekki breytt því sem ég er og hef alltaf verið. Á end­anum leit­aði ég á náðir sál­fræð­ings hjá trans teym­inu sem hafði hjálpað mér áður út af áfalli og var sál­fræð­ing­ur­inn og mann­eskjan sem ég sagði fyrst frá nauðg­un­inni. Ég hafði árið 2012 sagt henni frá því sem hafði gerst haustið 1982 þegar ég var ell­efu ára. Hún hafði ekki kveikt á per­unni þá og taldi mig í raun vera sam­kyn­hneigðan eða tví­kyn­hneigðan mann. Hún var ekki orðin fróð um trans mál­efni á þessum tíma­punkti eins og þegar ég kom til hennar í lok árs 2017. Einnig dró ég tölu­vert úr hópárásinni og sagði lítið sem ekk­ert frá hvað ég taldi ástæð­una vera á bak við árás­ina, enda var frá­sögnin 2012 fyrsta skiptið sem ég sagði annarri mann­eskju frá hópárásinni og skömmin var ennþá svo mikil að ég gat ekki sagt henni frá öllu sem gerð­ist. Ég sagði henni að um lík­ams­árás hefði verið að ræða og það var hún sem gerði mér í fyrsta skipti grein fyrir því að mér hafði verið nauðgað þrátt fyrir að heyra aðeins af því þegar þeir neyddu mig til að kyngja úldna fisk­hræ­inu en ekk­ert um þegar einn af þeim tróð einnig úldnu fisk­hræi inn í mig. Ég sagði henni rétti­lega frá því að ég mundi ekk­ert eftir að ég kom heim eftir árás strák­anna. En ég sagði henni aldrei að það síð­asta sem ég man áður ég fór nán­ast í algjört blackout næstu mán­uði á eftir var blóðið og fisk­hræið sem lak niður kló­setts­skál­ina þar sem ég sat grát­andi, útæld og auð­mýkt.“

„Þegar ég var svo alveg að gef­ast upp árið 2017 bað ég þennan sama sál­fræð­ing, sem í milli­tíð­inni hafði menntað sig til þess að starfa fyrir trans teymið, um að bjarga mér frá því að vera trans af því að ég vildi ekki missa kon­una mína. Ég vissi samt alveg sann­leikan sjálf um hvað ég er og hef alltaf verið. Ég bara gat ekki sam­þykkt það vegna innri og ytri for­dóma en ég ótt­að­ist að missa fólk náið mér ef ég kæmi út. Ég barð­ist hat­ramm­lega við sjálfa mig. Ég ákvað að eina leiðin til að bjarga sjálfri mér frá útskúfun og kon­unni minni frá þeirri skömm að hafa verið plötuð öll þessi ár var að ég myndi lenda í slysi og deyja. Ég plan­aði slysið í smá­at­riðum, einnig tíma­setn­ing­una, og ég fór yfir planið aftur og aftur, nótt eftir nótt. Það var svo eina slíka nótt, aðfara­nótt 26. mars, að konan mín sem alltaf svaf eins og steinn vakn­aði um miðja nótt og sá mig sitj­andi í myrkr­inu frammi í stofu. Ég var alveg hætt að sofa á þessum tíma­punkti. Hún hafði miklar áhyggjur af mér og hafði aldrei séð mig svona langt niðri áður. Hún gekk á mig og spurði mig hvort ég væri hommi. Ég sagði: „Ef það væri svo ein­falt.“ Við það brotn­aði ein­hver stífla og ég sagði henni að ég væri trans. Það varð þögn í smá­tíma og svo sagði hún: „Þá veistu að við erum skilin.“ Við fórum samt í fjöl­skyldu­ráð­gjöf hjá Sam­tök­unum 78 og líka í gegnum Reykja­vík­ur­borg og reyndum að vinna rosa­lega vel úr þessu. Við hættum til dæmis ekki að búa saman fyrr en hálfu ári seinna. Hún var ekki til í að mað­ur­inn hennar hafi alltaf verið kona í dul­bún­ingi. Það var mjög erfitt fyrir hana sem gagn­kyn­hneigða mann­eskju að gút­era það. Þetta var mjög erfitt fyrir kon­una mína en við ákváðum að búa í sama hverfi og við búum núna nálægt hvor annarri og sam­komu­lagið er mjög gott. Núna er hún minn besti vinur. Ég heyri í henni mjög reglu­lega og hún kemur í kaffi til mín og ég fer í kaffi til hennar. Hún er dásam­leg mann­eskja og frá­bær mamma.“

Arna Magnea upp­lifði þarna ást­ar­sorg ofan á and­lega van­líðan sem fyrir var. „Þetta var mjög erfitt.“

Viðbrögð fólks voru mis­jöfn eftir að Arna Magnea kom út sem trans kona. Sumt fólk á Íslandi sagði að hennar sögn að þetta væri of erfitt fyrir það. „Aðrir urðu trans­fó­bískir og ógeðs­legir strax. Þeir bara hurfu. Maður hætti að fá boð um að hitta fólk.“

Drep

Arna Magnea seg­ist vera mjög ham­ingju­söm í dag og líða vel í eigin skinni og hún er búin að fara í gegnum allt kyn­stað­fest­ing­ar­ferlið „Það var ekki sárs­auka­laust. Ég fór fyrst í kyn­stað­festandi aðgerð á Íslandi árið 2020 sem mistókst og ég var nærri því dáin. Ég fékk sýk­ingu og það þurfti að loka leggöng­unum sem var mikið áfall. Það var mjög truntu­legt hvernig lækn­ir­inn sem fram­kvæmdi báðar þessar aðgerðir kom fram. Má ég segja frá því? Nú er ég að taka allt of mik­inn tíma frá Önnu. Ég fór í aðgerð­ina 23. nóv­em­ber 2020. 8. des­em­ber var ég búin að vera hringj­andi dag eftir dag í lýta­lækn­inn og upp á spít­ala af því að ég var að far­ast. Ég var að deyja. Ég svitn­aði af kvölum. Ég er samt ekki með lágan sárs­auka­þrösk­uld. Þannig að fyrir náð og mis­kunn komst ég til læknis sem sagði að saum­arnir væru að losna og fór ég í neyð­ar­að­gerð um kvöldið. Ég vakn­aði þegar ég var enn á skurð­borð­inu og sagði lækn­ir­inn orð­rétt að það væri komið drep inni í mér og að hann hafi þurft að skafa allt draslið út og loka leggöng­unum en að ég kæmi bara aftur til hans eftir um sex mán­uði og hann myndi þá laga þetta.

Ég grét og bað hjúkr­un­ar­fræð­ing sem var þarna um að svæfa mig. Þá var ég alveg búin. Ef ég hefði ekki átt þessa stráka mína hefði ég gert eins og Wirginia Wolf - ég hefði fyllt vasana fulla af grjóti og gengið í sjó­inn. Og ég var mjög langt niðri. Það var Pieta sem hjálp­aði mér og eftir að hafa verið hjá þeim í meira en ár þá komu þau mér að hjá geð­heil­brigðisteymi Land­spít­al­ans þar sem geð­heil­brigðisteymi heilsu­gæsl­unnar taldi mig of flókna og erfitt til­felli út af áfalla­sögu - bæði vegna ofbeldis og ann­ars þegar ég var yngri fyrir utan að vera trans.“

Arna Magnea segir að tveimur árum eftir aðgerð­ina hafi henni verið sagt að ekki væri hægt að laga hana hér á Íslandi þannig að bar­átta fyrir því að kom­ast að erlendis hófst. „Stuttu eftir þetta kom í ljós að ég var með sortu­æxli í öðru eyr­anu og það var mjög agressíft en sem betur fer náð­ist að skera það í burtu. Það var samt óvissa í fjóra til fimm mán­uði en þá vissi ég ekki hvorum megin við lín­una ég var. Krabba­meins­skurð­lækn­ir­inn hjálp­aði mér síðan að kom­ast í sam­band við góðan lækni á Sahlgrenska-sjúkra­hús­inu í Gauta­borg, Dr Gennaro Selvaggi í byrjun árs 2023.

Aðgerðin, sem kall­ast „perito­neal pull through“, var svo fram­kvæmd 11 des­em­ber 2023 þar sem líf­himnan var notuð til að búa til vegg leg­gang­anna. Þetta er flókn­ari aðgerð en hefð­bundin „vag­in­opla­sty“ og þurfti þrjá skurð­lækna til að fram­kvæma aðgerð­ina. Eftir því sem ég veit best erum við bara tvær trans kon­urnar sem höfum farið í þessa aðgerð sem var upp­runa­lega þróuð af Rússum til að bjarga konum sem höfðu misst leggöng eftir krabba­meins­með­ferð. Svona aðgerð er að ryðja sér til rúms á meðal trans kvenna í heim­inum, en ég var fyrsta trans konan í Evrópu sem fór í þessa aðgerð í Evrópu, en hingað til hafa þær aðal­lega farið fram í Tælandi, Kanada og Banda­ríkj­unum.

Ég kom síðan heim og byrj­aði á því að blæða nærri því út og fór upp á kvenna­deild þar sem þurfti að stoppa blæð­ing­una. Þannig að þetta tók á og næstu mán­uðir á meðan allt var að gróa tóku virki­lega á en sænsku lækn­arnir hugs­uðu vel um mig og voru reglu­lega mynd­sím­töl þar sem var farið yfir allt. Þeir fylgdu mér svo eftir í tæpa níu mán­uði áður en íslenski kven­sjúk­dóma­lækn­ir­inn tók alveg við eft­ir­lit­inu. Því miður náð­ist ekki sam­komu­leg við Svíana um að senda fleiri trans konur þangað. Ég get ekki þakkað Sahlgrenska og fólk­inu á þeim spít­ala nægi­lega mikið. Ég lifi góðu lífi í dag and­lega, lík­am­lega og kyn­ferð­is­lega. Það er ekki neitt vanda­mál.“

Opið beinbrot

Það tók tíma að kom­ast á þann stað. „Það tók tíma og ég sé ekki eftir neinu. Allan tím­ann var ég að velja að vera ég sjálf. Það eina sem ég sé eftir - samt get ég ekki séð eftir því af því að ég eign­að­ist þessi börn mín - er að ég fékk ekki að vera ég sjálf þegar ég vissi fjög­urra ára að ég væri stelpa.“

Arna Magnea hefur fundið ást­ina aftur. Unnusta hennar er Magda­lena Lukasiak sem er frá Póllandi. Hún hefur búið á Íslandi í ára­tug. Arna Magnea var búin að vera ein­hleyp í sex ár þegar þær kynnt­ust. Þær eru trú­lof­aðar og ætla að gifta sig í febr­úar á næsta ári. Magda­lena er lærður ljós­mynd­ari og stríðs­frétta­rit­ari og er með meistara­gráðu frá háskóla í Varsjá. Þá er hún einnig með íslenskt leyf­is­bréf sem kenn­ari.

Arna Magnea segir að sam­bandið hafi verið erfitt til að byrja með þar sem þær eru báðar með áfalla­sögu. „Það var mikið sem þurfti að vinna ofan af. Magda­lena kom út sem lesbía þegar hún var þrettán ára í Póllandi og var eig­in­lega neydd í sam­band með miklu eldri manni. Eins og stundum er sagt við les­b­íur átti hún að finna rétta typpið og þá átti bara allt að vera í lagi. En maður er það sem maður er. Maður fæð­ist það sem maður er. Í dag erum við sterkasti stuðn­ingur hvor ann­arrar.“

Viðtalið tekur um þrjá og hálfan tíma og situr Arna Magnea í stofu­sóf­anum sem búið að að taka út svo hann er eins og svefn­sófi en hún þarf að hafa eitt­hvað undir slas­aða fæt­inum. Við Anna sitjum hins vegar við lítið borð­stofu­borð þar sem tertur standa á tertu­diskum. Og Arna Magnea segir frá slys­inu sem hún lenti í 9. ágúst. Hún hefur ekið mót­or­hjólum í 38 ár og var þennan dag að hjóla á mót­or­hjóli með hlið­ar­vagni sem hún hafði fengið lánað. „Ég lenti svo illa í hjól­för­unum þannig að hjólið skopp­að­ist til hliðar og lenti á bíl og þar fór stýrið og hand­bremsan úr sam­bandi og ég lenti síðan á fullum þunga á vegriði.“ Opið bein­brot varð afleið­ingin. „Sköfl­ung­ur­inn fór í mask og það var blæð­andi bæði fyrir aftan og framan. Magda­lena fékk lánað belti og stöðv­aði blóð­rennslið. Það má segja að hún hafi bjargað lífi mínu.“

Fordómar

Konurnar tvær, Anna og Arna Magnea, eru spurðar hvernig Íslend­ingar hafi almennt komið fram við þær. „Ég hélt upp úr 2006-2007 að þetta væri mikið til búið. Ég fann aldrei fyrir neinu eftir það,“ segir Anna, „en það kom fyrir að maður sá að einn og einn bjáni var með áróður gegn okkur. En það var ekki neitt á við það sem hafði verið áður. Svo flutti ég til Tenerife árið 2019 og ég varð ekki vör við neitt þar. Svo fór ég að heyra um bakslagið á Íslandi í kringum 2023.“

Arna Magnea nefnir skila­boð um að henni yrði komið fyrir katt­ar­nef, að það yrði þaggað niður í henni, hún yrði dregin á bak við skúr og skotin í hnakk­ann og að hún myndi borða byssu­kúlu. „Síðan voru alls konar lýs­ingar á því hvað maður væri. Svo voru kyn­ferð­is­legar lýs­ingar þar sem fólk var að fanta­sera um mann. Lög­fræð­ingur sem ég tal­aði við fór með þetta til lög­regl­unnar. Þá var ekki komin góð hat­urs­lög­gjöf og hún er ekki enn komin en það er búið að bæta hana aðeins. Það er búið að gera ein­hverja mála­miðlun.“

Arna Magnea segir að hvað Facebook-síðu sína varðar þá hafi hún byrjað að blokkera fólk sem kom ekki vel fram á net­inu. Hún svarar ekki við­kom­andi heldur blokkerar. „Áður svar­aði ég alls konar skila­boðum, ekki fyrir sjálfa mig heldur hafði maður áhyggjur af því að fólk sem var á miðj­unni myndi trúa öllu ógeð­inu ef það heyrði ekk­ert á móti því. Það er svo miklu auð­veld­ara að hata fólk sem þú hvorki sérð, heyrir í eða þekkir per­sónu­lega. Með því að svara von­að­ist ég til þess að fólk sæi að ég, sem trans kona, væri bara fólk eins og það en ekki skrímsli. Ekki eitt­hvað fyr­ir­bæri eða frík. Við erum bara fólk eins og annað fólk.“
Hefur Anna upp­lifað eitt­hvað í lík­ingu við þetta eftir að hún flutti til Íslands í sumar? „Ég hef ekki per­sónu­lega orðið fyrir neinu fyrir utan það að ég er búin að blokkera fullt af fólki.“
Hvað ræður for­dómum? Eru það áhrif þjóð­fé­lags­ins eða upp­eldi? Eða bæði?
„Að hluta til er þetta þjóð­fé­lagið,“ segir Anna, „en það er líka upp­eldið. Það er svo margt sem spilar inn í þetta.“
„Fólk sem hefur þörf fyrir að meiða aðra ein­stak­linga er fólk sem líður ekki vel,“ segir Arna Magnea.
Eineltið sem Anna varð fyrir í vinnu kemur aftur til tals. Arna Magnea segir að rótin að slíku sé alltaf fáfræði. „En það er aldrei afsökun að maður hafi átt erfitt líf að vera vondur við ein­hvern annan. Uppeldi og líf okkar Önnu var kannski ekki það auð­veldasta. Ekki erum við að leggja fólk í ein­elti. Þannig að það er aldrei afsökun þótt maður hafi átt erfitt líf því við eigum alltaf val. Guð gaf okkur frjálsan vilja. Hann gaf okkur val. Þannig að við höfum alltaf val á hverjum ein­asta degi hvort við viljum vera góð mann­eskja eða ekki. Við getum alveg haft vondar hugs­anir og það hafa allir og hugsað öðru fólki þegj­andi þörf­ina. En hvernig við komum fram við annað fólk og hvernig við veljum að koma fram við annað fólk segir allt um okkur. En þegar við erum farin að hlusta á svona fáfræðiraddir og falla inn í ein­hvern berg­máls­heim þá elur það á ótta. Og ótt­inn er veg­ur­inn að reiði og hatri. Þetta fólk sem er að ráð­ast á trans fólk í dag í ræðu, riti og verki ótt­ast að það sé verið að grafa undan ein­hverjum áveðnum gildum. Það er búið að trúa ákveðnum mýtum um að það sé verið að eyði­leggja fólk með því að trúa þeim þegar þau segj­ast vera trans og þau eru jafn­vel farin að líta á sjálf sig sem ein­hverja kross­fara þar sem þau þurfa að vernda börnin gagn­vart inn­ræt­ingu trans fólks­ins. Og þetta er nátt­úr­lega fáfræði. Hvaðan koma for­dóm­arnir og hat­rið, reiðin og ótt­inn? Þau eru ekki til­búin að með­taka það að allt full­orðið trans fólk var einu sinni trans börn. Þetta er með­fætt. Alveg eins og fólk verður ekki örv­hent átján ára.“

„Mér var stundum strítt á því í skóla að vera örv­hent,“ segir Anna. „Maður þurfti að skrifa eitt­hvað á töfl­una og þegar ég var orðin þreytt í vinstri hendi þá hélt ég áfram með hægri hend­inni. Það þótti hinum krökk­unum ægi­lega snið­ugt.“

Aftur að for­dómum og leið­in­legri hegðun. Tengist það líka skiln­ings­leysi, fáfræði og illsku? „Það er allt þetta. Allur pakk­inn,“ segir Anna. „Það er ekki hægt að orða þetta öðru­vísi. Oft og tíðum er það svo­kallað hópefli þegar einn byrjar, ein­hver annar er aktívur og kannski skemmti­legur og þá dregur hann oft allan hóp­inn með sér. Þannig mynd­ast heill hópur gegn okkur eins og gerð­ist hjá Hita­veit­unni á sínum tíma. Það var bara einn maður sem start­aði þessu.“

Álfar, huldufólk og hafmeyjar

Hvað hefur verið sár­ast?

„Það er svo margt sem er búið að ganga á,“ segir Anna og hugsar sig um. „Í dag er ég eig­in­lega búin að fyr­ir­gefa öllum nema helst þeim sem eru á fullu í dag.“
Hvað finnst Örnu Magneu hafa verið sár­ast? „Alveg eins og Anna sagði áður, maður fyr­ir­gefur fólki, ekki fyrir fólkið heldur fyrir sjálfan sig af því að maður vill ekki vera að burð­ast með ein­hvern bit­ur­leika. Maður ákveður að fyr­ir­gefa fólk­inu. Maður er með ákveðið trauma. Ég hef verið greind með flókna áfallastreituröskun og maður reynir að vinna úr því en það koma trig­gerar. Maður fær martraðir. Það er ýmis­legt sem er erfitt.
Það sem maður reynir að gera dags dag­lega er að láta ekki myrkrið soga sig niður. Ekki bara fyrir sjálfan sig heldur fyrir börnin sín. Og þá reynir maður að fók­usera ekki á hvað var erf­ið­ast. Reynir ekki einu sinni að hugsa um hvað var erf­ið­ast heldur fer maður að finna dem­ant­ana í æsk­unni og finna dem­ant­ana í líf­inu. Minn­ing­arnar sem voru ánægju­leg­astar. Minn­ing­arnar sem voru góðar. Minn­ing­arnar þar sem maður fann frið. Ég gekk sem barn mjög oft niður að sjó og tal­aði við álf­ana og huldu­fólkið og haf­meyj­arnar og sagði þeim frá hvað ég væri að upp­lifa. Það var mín leið. Enda sagði einn sál­fræð­ing­ur­inn sem ég fór til þegar ég var átta ára að ég væri nátt­úru­barn sem virt­ist vera í lagi.“ Arna Magnea kímir. „Maður horfir á þessar fal­legu minn­ingar.“ Hún segir að einn kenn­ar­inn hafi sent hana til sál­fræð­ings þar sem hún virt­ist vera í eigin heimi en hún var fyrir örfáum árum greind ein­hverf en meira um það síðar. „Ég átti það til að detta út.“ Kenn­ar­inn hélt reyndar fyrst að hún heyrði illa en heyrn­ar­mæl­ingin kom eðli­lega út.

Arna Magnea talar um afa­bræður sína í Hólkoti í Sand­gerði þar sem hún var í fóstri frá unga aldri þangað til hún var orðin 12 ára og farin að vinna fyrir föður sinn eftir skóla og um helgar. Þar leið henni vel. „Það var ekki mikið um sæt­indi. Annar afa­bróðir minn vissi að ég elskaði rús­ínur og þegar hann fékk sér jóla­köku­sneið þá krafs­aði hann rús­ín­urnar úr henni svo ég gæti fengið þær. Þeir sögðu aldrei að þeir elsk­uðu mann eða þætti vænt um mann en ég fann það og ég vissi að hann elskaði mig af því að hann gaf mér rús­ín­urnar sínar. Ég sagði Snævari Sölva, leik­stjóra kvik­mynd­ar­innar Ljós­vík­ingar, frá þessu og þessi saga end­aði síðan í mynd­inni. Það var ýmis­legt úr minni sögu sem rataði þar inn.“ Kvik­myndin Ljós­vík­ingar er um trans konu, sem Arna Magnea leikur, og hefur hún hlotið ýmsar alþjóð­legar við­ur­kenn­ingar og verð­laun. „Ég var til dæmis að útskýra fyrir Snævari Sölva hvað það er að vera pankyn­hneigð og að það skiptir mig ekki máli hvernig fólk er - þetta er bara spurnig um hjarta en ekki parta. Og þessi setn­ing rataði inn í mynd­ina. Þessi mynd var algert krafta­verk og margir for­eldrar trans barna og ung­menna hafa sent mér kveðjur síðan. Þetta skiptir þau miklu máli.“

Kvik­myndin er hjart­næm og jafn­framt skemmti­leg. Hvaða máli skiptir fyrir Önnu að myndin hafi verið fram­leidd upp á að fólk kynn­ist mál­efnum trans kvenna? „Ég er búin að sjá nokkrar svona myndir. Ég hef aldrei myndað mér neina skoðun.“
En þær opna svo­lítið fyrir skiln­ing fólks.
„Það gerir það,“ segir hún.

0,02% íbúa

Nú er umræðan önnur en áður fyrr þegar þær tvær þorðu engum að segja frá. Núna er umræðan um trans fólk og trans börn uppi. Hvaða máli skiptir þetta fyrir þær?
„Ég get bara ekki svarað þessu,“ segir Anna.
„Ég var alltaf „hún“ og lít þannig á það,“ segir Arna Magnea. „Fyrir árás­ina þegar ég var ell­efu ára var ég alltaf að remb­ast við að vera ég sjálf þó ég vissi ekki nákvæm­lega hvað ég var. Stundum skildi ég ekki af hverju ég var ekki eins og systir mín. Ég bara fatt­aði það ekki og mér fannst það ekki meika sens. Þannig að ég á mjög auð­velt með að skilja þegar trans börn eru bara þau sjálf. Það er eng­inn að breyta þeim. Það á bara að leyfa þeim að vera þau sjálf. Það er verið að breyta nöfnum, leyfa þeim að prufa sig áfram með föt og hár, ekk­ert annað, og þegar þau verða ákveðið gömul fara þau í ráð­gjöf í gegnum tran­steymi barna og ung­menna á BUGL. Þar er líka frek­ari ráð­gjöf. Og það er verið að vinna með þeim. Þegar þau byrja kyn­þroska geta þau fengið blokkera sem eru aft­ur­kræfir og ef þau skipta um skoðun þá byrjar kyn­þrosk­inn aftur. Þau geta skipt um skoðun og þau mega skipta um skoðun.“

Arna Magnea segir að rann­sóknir sýni að það sé ekki nema 1% trans fólks sem gengur til baka og meinar að það fólk hætti kyn­stað­festandi ferl­inu. Hún segir að talið sé að 70% af þessu 1% gangi til baka bara út af for­dómum, ótta og fáfræði.

„Þrátt fyrir lögin um kyn­rænt sjálf­ræði 2019 þá þarf að hoppa yfir ákveðnar hindr­anir og í raun­inni að sanna sig sífellt aftur og aftur. Kyn­vit­undin kemur fram hjá börnum á milli þriggja til sex ára ald­ur­inn. Það ger­ist auð­vitað líka hjá trans börnum sem upp­götva að þau séu ekki alveg eins og þau eiga að vera. Það fer ekki saman hljóð og mynd. Ég vildi óska þess að sam­fé­lagið allt myndi trúa þeim og halda utan um þau því það eru í raun­inni fá börn sem þurfa jafn­mikið á stuðn­ingi sam­fé­lags­ins að halda eins og trans börn. En það eru fá börn sem mæta jafn­mik­illi andúð og hatri. Ég hef heyrt hjá starfs­manni í Hinsegin félags­mið­stöð­inni að trans börn eru farin að mæta með sjálft sig í poka - þau eru farin að klæða sig kyn­hlut­laust - í hettu­peysu og jogg­ing­galla - og reyna að vera eins ósýni­leg og þau geta. Þau koma sér inn í hinsegin félags­mið­stöð­ina, fara inn á kló­sett og fara í sín föt – trans strák­arnir fara í sín strákaföt og trans stelp­urnar í sín stelpu­föt. En auð­vitað eru föt bara föt og hvernig fólk klæðir sig ætti ekki að vera svona mikið mál. Í Hinsegin félags­mið­stöð­inni fá þau að vera þau sjálf. En þau þora ekki lengur að vera þau sjálf úti í þjóð­fé­lag­inu. Þetta er breyt­ing sem byrj­aði fyrst eftir Covid en erf­ið­ustu árin eru eftir að Trump komst til valda aftur 2025. Þetta eru búin að vera hræði­leg ár.

Ugla Stefanía hefur unnið þrek­virki í þessum málum. Hún er alger val­kyrja. Hún hefur sýnt fram á það í sínum fyr­ir­lestrum að allt regn­boga­kortið, sem kemur að við­horfum til trans mál­efna, er að súrna. Við erum ennþá örugg­ust hérna og hugs­an­lega á Spáni og nokkrum öðrum stöðum en það er að súrna allt kortið. Það er vegna þess að það eru gíf­ur­lega fjár­sterk öfga­hægri fas­ista­öfl sem eru að dæla inn pen­ingum í áróður gegn trans fólki, sér­stak­lega trans konum. Og þetta er vegna þess að þeim vantar lít­inn, veikan blóra­böggul til þess að sparka í vegna þess að þeir ráða ekki við raun­veru­legu vanda­málin.

Hérna á Íslandi eru trans konur 0,02% íbúa. Hvaða vanda­mál erum við? Æ færri koma út núna heldur en áður. Ótti er eina skýr­ingin. Samkvæmt öllum mæl­ingum ætti trans fólk að vera um 1-3% mann­kyns. Þegar örv­hentir voru neyddir til að vera rétt­hentir og þeim haldið niðri þá var talið að um 3% mann­kyns væru örv­hent. Núna er talið að á milli 11-13% mann­kyns séu örv­hent og það er frekar stöðugt. Auðvitað ger­ist það að ef við leyfum fólki að vera eins og það er þá þorir fleira fólk að vera það sjálft. Og þá auð­vitað verður fleira trans fólk í heim­inum sýni­legt. Það verður fleira hinsegin fólk. Núna, sam­kvæmt ýmsum könn­unum, seg­ist um helm­ingur ung­menna skil­greina sig ekki sem 100% gagn­kyn­hneigð heldur ein­hvers staðar flæð­andi.

„Það er gott að þú nefndir þessa örv­hentu,“ segir Anna. „Ég var einu sinni á bát. Á hand­færum. Það er dálítið óþægi­legt þegar ein­hver einn er örv­hentur og allir hinir með vit­lausu hend­ina á hand­færum. Þarna var þetta ekk­ert vanda­mál. Öll áhöfnin var örv­hent.“
„Það hefur verið alveg ein­stakt,“ segir Arna Magnea. „Annar fóstri minn í Hólkoti, hann Arnoddur Marinó, var örv­hentur. Hann var fæddur 1906 og hann hafði verið neyddur til að vera rétt­hentur en það tókst þó ekki að fullu. Hann gat bók­staf­lega smíðað allt. Hann var lista­smiður og hann smíð­aði allt með vinstri, sag­aði og annað. En hann skrif­aði og borð­aði með hægri því hann hafði verið neyddur til þess.“

Loki Laufeyjarson

Konurnar eiga þrjú börn hvor. Elsta barn Önnu, sem á eina dóttur og tvo syni, er fimm­tíu og eins árs, það næsta er fjöru­tíu og níu ára og það yngsta er fjöru­tíu og fjög­urra ára „Og ég sjálf er þrjá­tíu og eins árs,“ segir hún. „Ég byrj­aði bara að telja upp á nýtt 1995.“ Barna­börnin eru sjö - það elsta er tutt­ugu og átta ára og það yngsta sjö ára. Barna­börnin kalla hana ömmu.

„Eftir því sem maður eld­ist þá finnst manni maður vera yngri núna heldur en þegar ég var tutt­ugu og sex ára,“ segir Arna Magnea, „af því að þá var ég svo alvar­leg og svo lokuð inni í skápnum og að berj­ast við svo marga bagga. Ég held ég hafi ekki verið svona ung síðan fyrir áfallið þegar ég var ell­efu ára. Þannig að ég er mjög ung í anda núna, enda á ég konu sem er tæpum átján árum yngri en ég.“

Arna Magnea á þrjá syni. Sá elsti er tví­tugur, næsti er fimmtán ára og sá yngsti er ell­efu ára. Það má búast við að börnin verði fjögur. „Þetta er ekk­ert leynd­ar­mál lengur en núna er ég og konan mín í ferli að eign­ast barn saman þannig að ég verð komin á eft­ir­laun ennþá með barn á heim­il­inu. Þetta er dýrt og erfitt ferli og þetta er eins og að velja hrúta til undan­eldis. Maður fer á ein­hvern banka, sæð­is­banka, og velur ein­hvern til undan­eldis. Við fórum í gegnum frjó­sem­is­klíník­ina Sunnu og þau mæltu með ákveðnum og við erum að velja gjafasæði. Þetta er nú ekki gjafasæði en maður borgar um eina og hálfa milljón fyrir þetta frá Danmörku. Þetta er kallað að kaupa ákveðið mörg strá og maður kaupir alltaf fleiri en eitt af því að eitt­hvað getur farið úrskeiðis. Síðan er þetta ferli. Konan mín er að ganga í gegnum það að byrja að sprauta sig með ákveðnum horm­ónum og síðan þarf hún að fara í eggja­töku og síðan þarf að frjóvga þetta. Ég er einn átt­undi Dani í móð­ur­ætt og einn fjórði Norður-Íri í föð­ur­ætt þannig að ég er svona Euro trash. Þá hugs­aði ég með mér að allt mann­kynið er skylt hvort sem er. Þetta barn verður ekk­ert minna barnið mitt heldur en synir mínir. Öll börn sem eru með­tekin af ást eru börnin manns.

Ég var alltaf barna­kerl­ing. Ég á systk­ini sem eru fimmtán, ell­efu og tíu árum eldri en ég og þau áttu öll börn frekar ung og ég var svo­lítið mikið að passa þessi frændsystk­ini mín og ég var alltaf sú sem elskaði börn. Það var ein gömul frænka sem var alltaf að töngl­ast á því að ég hefði átt að fæð­ast stelpa og yngri systir mín strákur. Ég þorði auð­vitað aldrei að sýna það en ég gladd­ist við þessi orð frænku minnar. Þó ég hafði ekki orð yfir sjálfa mig þá vissi ég alltaf að ég hefði átt að fæð­ast stelpa því þannig leið mér að innan.

Og við eigum það sam­eig­in­legt syst­urnar að við bárum harm okkar í hljóði. Við gátum aldrei talað við neinn um ofbeldið á heim­il­inu af því að það var aldrei neitt traust að finna. Hún var eflaust, eins og ég, hrædd við við­brögðin ef hún segði frá. Maður sagði aldrei neitt. Í raun kenndi maður sjálfri sér um allt sem miður fór.

Ég var þó svo heppin fyrir utan Guðstrúna að trúa einnig á trunt, trunt og tröllin í fjöll­unum og álf­ana og allt þetta sem teng­ist móður nátt­úru. Og ég gat alltaf farið niður að sjó, sér­stak­lega þegar ég var í Hólkoti, og labb­aði þar að kletti sem heitir Kirkju­klettur. Þar var hola þar sem ég sat og hafði útsýni út á sjó­inn og ég tal­aði við álf­ana og haf­meyj­arnar.“
Anna og Arna Magnea eru spurðar hvernig börn þeirra hafi tekið því þegar þær komu út sem trans konur.

„Við­brögðin voru nei­kvæð hjá stelp­unni,“ segir Anna. „Ég veit ekki alveg með strák­ana en svo breytt­ist þetta hjá henni en það var samt ekki fyrr en ég var komin heim frá Svíþjóð.“ Það hefur sært. „Já, svona aðeins. En strák­arnir, alla­vega sá eldri tók mér fagn­andi. Sá yngri var það ungur á þessum árum.“ Allt er í góðu í dag.
Arna Magnea segir að yngri syn­irnir tveir kalli sig mömmu. „Þeir líta á Magda­lenu sem þriðju mömm­una þannig að þeir tala um að þeir eigi þrjár mömmur.“
„Þrjár mömmur og engan pabba,“ segir Anna.
„Ég er líf­fræði­legur faðir þeirra en ég er samt mamma þeirra,“ segir Arna Magnea. „Ég er svona eins og Loki Lauf­eyj­ar­son.“
„Loki Lauf­eyj­ar­son?“ segir Anna.
„Já, í goða­fræð­inni,“ segir Arna Magnea. „Loki bregður sér í hvaða kvik­inda líki sem er. Hann var bæði faðir og móðir. Hann var móðir Sleipnis en faðir Hel og Mið­garðsorms. Þannig að ég get alveg verið bæði faðir og móðir. Ég er kannski ekki jafnill­kvittin og Loki var í sög­unum. En hvað um það. Þeir voru svo ungir þegar ég kom út. Sá elsti var ell­efu ára, sá í miðj­unni var sex ára og sá yngsti var bara rúm­lega tveggja ára. En við höfum alveg rætt þetta. Þeir hafa séð gamlar myndir og þeim finnst það bara asna­legt þegar þeir sjá gamlar myndir af mér. Þetta er bara ekki ég. Til að skil­greina er ég oft­ast Arna mamma og síðan er það mamma og svo er það Magda­lena.“ Elsti son­ur­inn, sem er hálf­finnskur og býr í Finn­landi, kallar hana Örnu. „Og hann rang­kynjar mig ekki.“

Annað viðmót en áður

Burtséð frá for­dómum fólks eru kon­urnar spurðar hvort þeim finn­ist fólk koma almennt öðru­vísi fram við þær sem konur heldur en ef þær væru karlar.

„Ég fann ekki fyrir neinni breyt­ingu,“ segir Anna. „Ég hef umgeng­ist sama fólkið. Jú, aðeins. Ég man einu sinni þegar ég kom á Ísafjörð og var á tog­ar­anum Jóni Kjart­ans­syni í brælu þá var ég dregin af stelpum í partí um nótt­ina,“ segir Anna og á við að stelp­urnar hafi litið á hana sem eina af þeim. Anna við­ur­kennir að hún hafi líka fundið mun hvernig starfs­fólk kemur fram við sig sem konu þegar kemur að ýmiss konar þjón­ustu en segir þó að það sé ekk­ert frá því að segja.

„Þegar ég var ung­lingur,“ segir Arna Magnea, „var ég að berj­ast við að ég var kven­leg lengi vel og var alltaf lítil og smá­gerð. Við fluttum upp í Breið­holt þegar ég var tólf ára og ég man að á leið­inni í skól­ann fyrsta dag­inn ákvað ég að læra að vera strákur. Ég fór mark­visst að stúd­era strák­ana og hvernig þeir löbbuðu. Ég lenti í kyn­ferð­is­legri áreitni á vinnu­stöðum. Ég var sextán ára þegar vöru­bíl­stjóri ýtti kúst­skafti upp í rass­gatið á mér og sagði að ég væri með svo kven­legan rass að hann lang­aði að nauðga mér. Þá var ég að vinna við að steypa gang­stéttir og við þurftum að draga sand­inn aftur á bak þannig að við vorum á hnjánum. Síðan var ein­hver annar sem sagði að hann vildi nauðga mér með gúmmí­hanska. Þetta var allt þegar ég var sextán ára. Þannig að ég fór alltaf meir og meir að pússa þessa grímu og verða karl­mann­legri.

Eldri bróðir minn var verk­stjóri hjá dekkja­verk­stæði og fékk ég þar sum­ar­vinnu og um jólin þegar ég var átján ára. Ég var alin upp við að vera dug­leg í vinnu og var lík­am­lega sterk þó ég væri ekki hæst í loft­inu eða breið­ust. Þannig að mér tókst mjög fljótt að vinna mig upp í að vinna mikið vöru­bíla­megin þar sem bara sterk­ustu menn­irnir unnu. Þar var einnig harð­asti karla­húmor­inn og oft óþægi­legt að hlusta á þennan karla­húmor og karla­menn­ingu. En gríman skyldi standa og ég faldi allt sem var mjúkt og blítt og á þessum tíma var ég þessi harða, kalda og oft þögla týpa sem ég er svo sann­ar­lega ekki í dag.
Ég var stöðugt í hlut­verki og það var þess vegna sem ég 26 ára ákvað að fara í leik­list­ar­nám erlendis. Ég var mjög týnd og vissi ekki hvað ég vildi gera. Ég var búin að fara í háskól­ann og læra sagn­fræði og var þar í eitt og hálft ár en var bara svo tjónuð and­lega og þung­lynd að ég hafði enga ánægju af nám­inu. Ég hafði tekið allt meira­prófið 23 ára en alltaf end­aði ég aftur á dekkja­verk­stæð­inu því þar gat ég unnið, nán­ast án þess að tala við fólk. Þung­lyndið var að drepa mig og þar sem ég hafði gefið sjálfri mér lof­orð um að gef­ast aldrei upp þá varð ég að finna eitt­hvað sem gæfi mér ein­hverja gleði. Það var þá sem ég hugs­aði með mér að ég væri alltaf hvort sem er að leika og gæti þess vegna orðið leik­ari. Ég var stöðugt að leika allan sól­ar­hring­inn.“

Núna þegar hún er orðin sett­leg, mið­aldra kerl­ing eins og hún orðar það þá finnur hún fyrir öðru við­móti sem kona þegar hún fer til dæmis á dekkja­verk­stæði. „Mér finnst það vera svo fyndið af því að ég veit allt um þetta. Ég vann við þetta í svo mörg ár. Það er algjör­lega komið fram við mann eins og fávita. Maður fær alveg hrút­skýr­ingar hægri vinstri og mér finnst það smá fyndið. Þegar maður fer að tala um dekkja­stærðir og þeir fatta að maður veit hvað maður er að segja þá verða þeir stundum svo­lítið kind­ar­legir. En ég hef líka fundið það á jákvæðan hátt. Maður fær jákvæð­ara við­horf frá öðrum konum.“

Sumar á Only Fans

„Er þetta ekki að verða búið?“ spyr Anna allt í einu. Viðtalið er ekki alveg búið. Hvað segja þær um líf­fræði­lega þátt­inn þegar kemur að trans fólki?
„Ég er bara ekk­ert í sam­bandi við svona hluti í dag,“ segir Anna.
Hvað er sagt um þessi mál?
„Út af öllu þessu ofstæki gagn­varat trans fólki og sér­stak­lega gagn­vart trans konum,“ segir Arna Magnea, „þá er tölu­vert gert af rann­sóknum. Það eru núna fleiri rit­rýndar, vís­inda­legar rann­sóknir komnar fram sem eru við­ur­kenndar af alþjóða­lækna­stofn­unum og ná yfir meira en eitt land. Þá er ég að meina við­ur­kenndar af Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­inni meðal ann­ars. Þessar rann­sóknir eru orðnar það margar sem sýna fram á að það er líf­fræði­legur, tauga­fræði­legur sann­leikur sem liggur að baki þess að vera trans. Þannig að ef það er tauga­fræði­legur sann­leikur, og heil­inn og tauga­kerfið okkar nær út um allt og er nátt­úr­lega hluti af okkar líf­fræði, þá erum við líf­fræði­lega konur sem fædd­ust með óræða litn­inga og/eða röng kyn­færi og þar af leið­andi trans. Þar af leið­andi miðað við rök­fræð­ina þá eru trans konur konur og trans karlar karlar. Og kynsegin fólk er nákvæm­lega það sem það seg­ist vera. Alveg eins og Descartes sagði: „Ég hugsa og þess vegna er ég.“ Kjarninn okkar og sálin okkar eða hvað sem við viljum kalla það liggur í með­vit­und­inni og með­vit­und okkar hefur alltaf verið kven­kyns. Það er að segja mín og Önnu. Þess vegna erum við ekk­ert minni konur en aðrar konur. En af því að okkur var ekki trúað og af því að við gátum ekki talað við neinn þá þurfum við að að ganga í gegnum liggur við vít­iseld og tólf þrautir Heraklesar í því að sanna hvað við erum. Og ég er að vona að trans börn og kynsegin börn fram­tíð­ar­innar þurfi ekki að ganga í gegnum það sem við þurftum að ganga í gegnum. En því miður er sam­fé­lagið núna, það vest­ræna sér­stak­lega, að fara aftur á bak og ég finn til með unga trans fólk­inu okkar sem er að ganga í gegnum þetta. Þess vegna er ég að rífa kjaft af því að ég er vel menntuð, ég er í góðri vinnu, ég er fjár­hags­lega sjálf­stæð og ég hef efni á að rífa kjaft af því að ég bý við ákveðin for­rétt­indi, líka sem hvít, mið­aldra kona sem kannski ungir trans ein­stak­lingar gera ekki. Ég veit að mikið af ungu trans kon­unum okkar eru svo­lítið ósýni­legar vegna þess að þær þora ekki að stíga fram. Sumar eru á Only Fans til að geta borgað fyrir þann hluta ferl­is­ins, sem er nán­ast allt fyrir utan stóru kyn­stað­festandi aðgerð­ina, sem er ekki innan sjúkra­trygg­inga­kerf­is­ins. Fólk gerir sér ekki grein fyrir að margar af þessum aðgerðum kosta tölu­verðan pen­ing og eru okkur lífs­nauð­syn­legar. Við erum ekk­ert að fá þetta upp í hend­urnar.“

„Það er líka eitt í þessu,“ segir Anna. „Þegar ég var að ganga í gegnum mitt ferli þá var mikil áhersla lögð á að maður myndi ekki vera að aug­lýsa þetta út á við. Maður átti að ganga í gegnum þetta þegj­andi og hljóða­laust með bros - helst bleikt bros - á vör og ekk­ert vera að tjá sig um þetta við aðra. Bara láta sig hverfa inn í fjöld­ann. Vinkona mín sem var á undan mér í aðgerð lifði alveg eftir þessu.“ Anna var hins vegar áber­andi. „Ég varð að gera það af því að ég var for­maður félags­ins úti í Svíþjóð.“

Tíminn hefur liðið og Anna þarf að fara. Við Arna Magnea sitjum áfram í hlý­legri stof­unni. Og hún segir frá því að hún sé á ein­hverfu­róf­inu en hún fékk grein­ingu fyrir örfáum árum. Þessi hlið hefur líka haft áhrif á líf hennar.

Púsl sem passaði hvergi

Arna Magnea seg­ist hafa verið talin svo­lítið furðu­leg sem barn. „Ég átti það til að sjá fólk sem var dáið og leika mér við álfa sem ég kall­aði litlu kall­ana í nátt­föt­unum.“ Hún kímir. „Ég tal­aði mikið við langömmu mína og ég á minn­ingar af þess­ari konu en hún dó víst áður en ég fædd­ist. Mér var seinna sagt að ég gæti ekki átt minn­ingar af henni. Ég á alveg fleiri minn­ingar þar sem ég sá ýmis­legt. Málið er að ég sá aldrei mun á fólk­inu sem var dáið og fólk­inu sem var ekki dáið sem gerði það að verkum að ég átti það til að vera að tala við ein­hvern og svo var gert grín að mér af því að þau héldu að ég væri að tala við loftið.“ Það er spurn­ing hvort Arna Magena hafi verið skyggn sem barn. Hún tekur undir það.
„Þegar ég var lítil dreymdi mig oft að heim­ur­inn væri búinn til úr þremur risa­stórum mæðrum, þremur mæðrum sem væru alheimu­irnn að fæða af sér plánetur og sól­kerfi. Þessar þrjár mæður eru fyrir mér Guð og ég trúi að stjörnu­barnið mitt, sem við Magda­lena munum eign­ast, komi frá þeim. Hann, hún eða hán.

Ég þótti skrýtin og bróðir minn, sem er ell­efu árum eldri en ég, neit­aði að sofa í sama her­bergi og ég. Hann sagð­ist vera myrk­fæl­inn í kringum mig. Þannig að ég var talin alveg stórfurðu­leg. Og það er kannski svo­lítið erfitt fyrir barn að heyra það stöðugt að það sé skrýtið og frík. Ég var alltaf ein og öðru­vísi. Ég var púsl sem pass­aði hvergi. Passaði ekki einu sinni í eigin lík­ama. Ég lok­aði mig alltaf meira og meira af.

Ég var samt mjög sterk og ákveðin. Fimm ára stóð ég uppi í hár­inu á kaup­fé­lags­stjór­anum í Sand­gerði af því að ég hafði verið send til að kaupa Prins Póló og kók í gleri og pok­inn rifn­aði á leið­inni út og kók­flök­s­urnar brotn­uðu. Ég fór inn og heimt­aði nýjar kók­flöskur í stað­inn og betri poka. Kaup­fé­lags­stjór­inn sagði bara nei. Ég sýndi honum rifna pok­ann og ég stóð þarna fimm ára og beygði mig ekki þangað til hann lét mig fá tvö­faldan nýjan poka og ég fékk nýtt Prins Póló og kók og labb­aði síðan heim í Hólkot úr kaup­fé­lag­inu sem var smá­spotti. Föð­ur­systir mín var vitni að þessu en hún var nátt­úr­lega ekk­ert að blanda sér í leik­inn því hún hafði gaman af. Ég hafði alltaf munn­inn fyrir neðan nefið.
Ég las mikið og ég byrj­aði mjög snemma að lesa. Bekk­ur­inn fékk nýjan umsjón­ar­kenn­ara í átta ára bekk sem var nýút­skrif­aður og hélt að ég væri heyrn­ar­laus.“ Barnið var sent í skoðun. Ekkert var að heyrn­inni og segir Arna Magnea að hún hafi verið talin vera nátt­úru­barn sem virt­ist vera í lagi en þegar hefur verið minnst á þetta. „Ég var nátt­úr­lega bara ein­hverf. Það kom þá líka í ljós að ég er flug­læs á hvolfi. Ég fékk þess vegna skila­boð heim um að ég þurfi að læra að lesa upp á nýtt þar sem ég gat bara lesið á hvolfi en ekki „rétt“. Hjálpin heima var hnefi og öskur yfir því hvað ég væri mikil kerl­ing og píka þar sem ég sat grenj­andi að reyna að læra að lesa upp á nýtt. Ég sem betur fer var fljót að læra að lesa „rétt“ á eigin spítur og bað aldrei aftur um hjálp við heima­lær­dóm­inn.“

Arna Magnea rugg­aði sér stundum fram og til baka, sem getur verið ein­kenni ein­hverfu, og var að eigin sögn stöðugt í ein­hverjum dagdraumum. Á meðal ein­kenna þeirra sem eru ein­hverfir og á ein­hverfu­róf­inu er að þeir eiga erfitt með að horfa í augun á fólki. Arna Magnea þekkir það. „Móð­ur­amma mín sagði við mig þegar ég var krakki að það væri bara vont og illa inn­rætt fólk sem gæti ekki horft í augun á fólki. Ég á ennþá erfitt með það. Ég á mikið auð­veld­ara með það núna af því að ég píndi mig. Ég jafn­vel horfði stundum svo djúpt í augun á fólki að ég var bara star­andi. Þetta var liggur við þannig að maður var með tárin í aug­unum að reyna að halda augn­sam­bandi og mér finnst það ekki auð­velt. Ég las rosa­lega mikið sem barn og bæk­urnar urðu minn flótti frá raun­veru­leik­anum og eflaust þess vegna sem ég elskaði mest að lesa ævin­týri, fantasíur og vís­inda­skáld­sögur því þær voru nægi­lega langt í burtu frá mínu eigin lífi. Oft var ég ekki ánægð með hvernig sög­urnar end­uðu, eða bara að þær end­uðu, svo ég bjó til heilu fram­halds­sög­urnar í hausnum á mér. Ég skrif­aði nokkrar smá­sögur sem barn en fór fljót­lega í það að skrifa ljóð.“

Sporðdrekakonan

Arna Magnea seg­ist hafa lært að fela. „Ég lærði að þykj­ast vera eitt­hvað allt annað. Maður lærði alls konar hluti bara til þess að lifa af. Og ég var svona „sur­vi­vor“ í gegnum ævina. Þegar ég var sextán ára sprakk í mér botn­lang­inn. Ég mætti strax í skól­ann með sprung­inn botn­langa og var svo í tæpar fjórar vikur á spít­ala og nærri dauð tvisvar og fékk lungna­bólgu trekk í trekk í kjöl­farið. Ég fékk bæði lungna­bólgu og líf­himnu­bólgu. Ég var sjö­tíu og fimm kíló þegar botn­lang­inn sprakk en bara um fjörtu­tíu kíló þegar ég kom út af spít­al­anum. Ég var á stjórn­unar- og rit­un­ar­braut í Fjöl­braut í Breið­holti og náði öllu. Mér var hins vegar til­kynnt að ég hefði fallið á mæt­ingu þessa önn og þyrfti að taka öll fögin aftur og að það hefði verið mis­tök að hleypa mér í prófin. Þótt það hafi verið A, B, C, D og F-kerfi þá var ég með með­al­ein­kunn um átta. Ég tók þetta allt upp aftur. Ég fékk lungna­bólgu aftur haustið eftir og fór á aðra braut en síðar fór ég aftur á sömu braut og var með um sex­tíu umframein­ingar þegar ég útskrif­að­ist sem stúd­ent árið 1991, einni önn síðar en ég hefði átt að gera. Ein önn fór í vaskinn af því að botn­lang­inn sprakk.“
Arna Magnea var valin ljóð­skáld skól­ans senni­lega árið 1989 eins og hún segir fyrir spurn­inga­keppni fram­hald­s­kól­anna það árið.

Hún hefur oft skrifað ljóð í gegnum árin og segir að þegar hún var yngri hafi það verið gert til að fá útrás fyrir kon­una innra með sér. „Fólk hélt að ég væri að skrifa um ein­hverja aðra konu. Eitt ljóðið heitir Sporð­dreka­konan; ég er sporð­dreki og á afmæli á hrekkja­vöku, 31. októ­ber.“

Ljóðið byrj­aði svona:

Upp úr blóð­lit­uðu haf­inu skreið hún öskr­andi

„Þetta voru bara til­finn­ingar sem voru að berj­ast innra með mér.
Svo fór ég að skrifa meira ljóð þegar maður hafði tíma til. Ég fór að skrifa mikið hefð­bundið og í Englandi fór ég að skrifa í Shakespe­are-stíl. Það var af því að ég var svo­lítið hrifin af form­inu. Ég hef líka skrifað óhefð­bundin ljóð í gegnum tíð­ina.
Ég gaf út tvær ljóða­bækur þegar ég var yngri. Önnur heitir Rómantík og kom út árið 1992 og hin heitir Rósir og kom út árið 1996. Báðar bæk­urnar voru gefnar út undir gamla, dauða nafn­inu mínu og er ég því lítið að flagga þeim núna.“

Arna Magnea fór í ein­hverfu­grein­ingu fyrir nokkrum árum og í kjöl­farið var hún greind með ein­hverfu­rófs­röskun.

Hún segir að vegna rösk­un­ar­innar horfi hún kannski öðru­vísi á umhverfið heldur en þeir sem eru ekki þannig. „Nú til­heyri ég alls konar hópum og mér hefur aldrei liðið eins og heima hjá mér eins og innan um aðrar ein­hverfar konur. Það er hópur ein­hverfa kvenna sem hitt­ist af og til og þar finnst mér ég geta virki­lega bara verið ég.“

Hann, hún eða hán

Arna Magnea, sem hefur starfað sem kenn­ari í rúm tutt­ugu ár, er búin að vera í veik­inda­leyfi síð­ustu mán­uði en hún var í fyrra umsjón­ar­kenn­ari sjötta bekkjar auk þess að hafa kennt íslensku sem annað tungu­mál. Þá hefur hún kennt nám­skeið við Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands þar sem hún kennir meist­ara- og dokt­or­snemum fram­sögn. Síðan hefur hún frá árinu 2012 kennt nám­skeið í sviðs­bar­daga­list við Kvik­mynda­skóla Íslands auk þess að hafa kennt stop­ult leik­list­ar­nemum sviðs­bar­daga­list við Lista­há­skóla Íslands. „Ég er eini Íslend­ing­ur­inn sem er með kennslu­rétt­indi í sviðs­bar­daga­list frá BADC (British Academy of Dramatic Combat) sem er oft­ast kallað áhættu­leikur/leik­stjórn hér á landi sem er ekki alveg rétt heiti en allt of langt að fara í það. Í Bret­landi er skýr munur á milli sér­sviða en hér erum við öll sem komum að áhættu­leik sett undir sama hatt­inn. Ég tók svo grunn- og fram­hald­s­kóla kennslu­rétt­indin við lista­há­skól­ann 2009. Þannig að ég er leik­kona, áhættu­leik­stjóri, grunn- og fram­halds­skóla­kenn­ari og svo er ég búin með kynja­fræð­ina að öllu leyti nema að ég á eftir að skila af mér masters­rit­gerð­inni sem ég er búin að fresta út í það óend­an­lega. Ég var búin með kynja­fræð­ina árið 2020 nema að ég átti eftir masters­rit­gerð­ina og þá kom Covid og svo fór ég það ár í kyn­leið­rétt­ing­ar­að­gerð­ina sem mistókst. Ég er síðan búin að vera í áfalla­með­ferð og alls konar þannig að þetta er búið að frest­ast og ég er ekki alveg til­búin að klára þetta. Ég er farin að skamm­ast mín svo­lítið fyrir að vera ekki búin með þetta en ég á bara þessa blessuðu masters­rit­gerð eftir til að vera orðin kynja­fræð­ingur.“

Arna Magnea Danks á sér marga drauma og þar á meðal að klára masters­rit­gerð­ina og svo er gift­ing fram undan og vænt­an­lega barn. „Við hlökkum mikið til. Við erum báðar frá­skildar og ætlum að hafa drauma­brúð­kaup okkar beggja í kirkju og það verður stór veisla og mörgum boðið. Þó við eigum kannski ekki sterkt bak­land þegar kemur að fjöl­skyldu þá ætlum við samt að bjóða ákveðnum fjöl­skyldu­með­limum og sýna fyr­ir­gefn­ingu og kær­leik í verki.

Svo eigum við líka svo stóra fundna fjöl­skyldu í hinsegin sam­fé­lag­inu. Þó þar sé hægt að finna híar­kíu þar sem skyggir á trans fólk þá er einnig hægt að finna þar ótrú­lega mik­inn stuðn­ing þegar maður hittir og finnur sitt fólk. Það er ekk­ert endi­lega fólkið sem maður hittir fyrst og sem þyk­ist vera vinir manns heldur fólkið sem er ennþá til staðar þegar maður þarf á því að halda. Og við eigum ansi stóran hóp af bara virki­lega fal­legu og góðu fólki sem er með alls konar kyn­vit­und og kyn­hneigð.“

Arna Magnea ætlar að klæð­ast brúð­ar­kjól á stóra deg­inum. Hún tekur upp sím­ann sinn og leitar að mynd. Á skjánum er mynd af konu í svo fal­legum ein­földum og stíl­hreinum brúð­ar­kjól að það er leitun að öðru eins. Hana dreymir um að gifta sig í svip­uðum kjól. „Af því að ég er fimm­tíu og fimm ára þá vil ég ekki vera í erma­lausum kjól og þetta er sá sem ég er hrif­in­ust af. Af því að við erum að búa til barn og ætlum að fara í brúð­kaups­ferð þá er ég að hugsa um að leigja kjól. En ég er tví­stíg­andi með það af því að litla þrettán ára stelpan sem er alltaf hérna inni vill fá prins­sessu­draum­inn. Kannski kaupi ég kjól.“

Arna Magnea lætur draumana ræt­ast. „Það er sama hvað bjátar á en það að lifa í von­inni er það sem maður þarf að gera. Það er það sem ég gerði sem barn. Það er það sem ég gerði í gegnum allt sem ég hef orðið fyrir. Það var að halda í ein­hverja von. Og maður verður bara að gera það. Ekki bara fyrir sjálfan sig heldur líka fyrir fólkið sem maður veit að þykir vænt um mann og maður þykir vænt um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Selja frið­lýst ein­býli með stór­kost­legu útsýni

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Myndir
Fólk

DeLorean-tíma­vél rúll­aði um götur Reykja­víkur