Jelena Ćirić segir að hún hefði líklega ekki fengið að flytja til Íslands ef fyrirhugaðar breytingar á reglum um dvalarleyfi hefðu verið í gildi þegar hún sótti fyrst um leyfi árið 2016. Hún segir tillögurnar geta útilokað fólk sem hefur lagt mikið af mörkum til íslensks samfélags og menningarlífs.
Færsla hennar á Facebook er önnur á skömmum tíma þar sem innflytjandi sem hefur búið lengi á Íslandi og tengist samfélaginu sterkum böndum lýsir áhyggjum af fyrirhuguðum reglum. Í morgun fjallaði Mannlíf um eldfjallafræðinginn Melissu Pfeiffer, sem vakti athygli á því að hún hefði ekki uppfyllt skilyrði tillagnanna þegar hún flutti til Íslands fyrir 13 árum.
Ćirić, sem er kanadískur ríkisborgari, segir umsóknarferlið árið 2016 hafa verið flókið, tímafrekt og kostnaðarsamt, þótt hún hafi sótt um dvalarleyfi sem maki Íslendings. Hún segir því rangt að halda því fram að landamæri Íslands séu galopin fyrir fólk utan EES.
Á þeim tíu árum sem hún hefur búið hér hefur hún lagt stund á fjölbreytt störf í íslensku menningarlífi. Hún hefur samið og gefið út tónlist, haldið fjölda tónleika, stjórnað kór, kennt, starfað sem blaðamaður og kynnt íslenska menningu fyrir erlendum lesendum. Þá hefur hún þýtt og túlkað úr íslensku, meðal annars fyrir Neyðarlínuna.
Hún lauk einnig meistaranámi við Háskóla Íslands á íslensku með 9,33 í einkunn, flutti ræðu á fullveldishátíð fyrir Danadrottningu og hefur verið fulltrúi Íslands á alþjóðavettvangi. Hún segir sig jafnframt vera fyrsta þul Ríkisútvarpsins sem hefur ekki íslensku að móðurmáli.
Ćirić bendir á að mörg þessara starfa hafi verið unnin fyrir lág laun eða jafnvel án endurgjalds. Hún sé engu að síður stolt af framlagi sínu og telur það hafa auðgað líf annarra.
Hún segir að ef fyrirhuguð reglugerð hefði verið í gildi þegar hún flutti hingað hefði hún ekki fengið að koma til landsins. Hún og íslenskur eiginmaður hennar hefðu þá líklega byggt sér líf annars staðar og Ísland misst af framlagi þeirra beggja.
„Framlag mitt og allra innflytjenda er svo miklu meira en skatttekjurnar sem ríkið fær af okkur. Verðmæti okkar er ekki mælt í þeim bótum sem ríkið þarf ekki að borga út til okkar,“ skrifar hún.
Hún segir það niðurlægjandi að smækka fólk niður í tölur og telur slíka nálgun gera bæði Íslendinga og íslenska menningu fátækari.
Færsla hennar hefur vakið töluverð viðbrögð og margir hafa þakkað henni fyrir framlag hennar til samfélagsins og íslensks menningarlífs. Í athugasemdum er meðal annars gagnrýnt að fyrirhugaðar reglur geti haft neikvæð áhrif á fjölþjóðlegt samfélag og skapandi greinar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir