Grískur karlmaður hefur verið dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að flytja tæp 43 kíló af kókaíni til Íslands með Norrænu. Fíkniefnin voru falin í sérsmíðuðu hólfi undir gólfi Renault-sendiferðabifreiðar hans, en tollverðir fundu þau við skoðun í Seyðisfjarðarhöfn í mars síðastliðnum.
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt Alexandros Katsanos í níu ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var sakfelldur fyrir að hafa flutt 42,9 kíló af kókaíni, með 83–85 prósenta styrkleika, til landsins í þeim tilgangi að koma efnunum í sölu og dreifingu í ágóðaskyni.
Fíkniefnin voru flutt með farþegaferjunni Norrænu frá Danmörku til Seyðisfjarðar 27. mars síðastliðinn. Við tollskoðun vaknaði grunur þegar tollverðir fundu falskt gólf í farmrými bifreiðarinnar. Undir því leyndist rými með 43 pakkningum af kókaíni.
Katsanos var handtekinn sama dag. Hann neitaði sök og hélt því meðal annars fram að hann hefði ekki haft hugmynd um að fíkniefnin væru í bílnum.
Sagðist vera á vegum Caterpillar
Við komuna til landsins sagðist Katsanos vera á ferðalagi vegna starfa fyrir Caterpillar í Þýskalandi og ætlaði meðal annars að skoða vélar og tæki hjá Kletti, umboðsaðila fyrirtækisins hér á landi. Bifreiðin var merkt Caterpillar og hann sjálfur klæddur fatnaði með merki fyrirtækisins.
Tollverðir höfðu hins vegar samband við Klett og þar kannaðist enginn við manninn eða fyrirhugaða heimsókn. Katsanos gat heldur ekki lagt fram gögn sem studdu frásögn hans um að hann starfaði fyrir Caterpillar.
Síðar viðurkenndi hann að hafa sagt tollvörðum ósatt um ástæður ferðarinnar. Hann sagðist hafa verið hræddur um að lenda í vandræðum vegna verkfæra sem voru í bifreiðinni og að hann hefði viljað komast hjá því að tollverðir tækju þau af honum.
Eyddi gögnum úr símanum í tollskoðuninni
Í dóminum er meðal annars fjallað um að Katsanos hafi endurstillt farsíma sinn og eytt gögnum úr honum á meðan hann beið eftir tollskoðun á Seyðisfirði. Eftir aðgerðina voru skráð 57 símtöl til og frá fimm erlendum símanúmerum á rúmlega tveggja klukkustunda tímabili.
Katsanos gaf takmarkaðar skýringar á samskiptunum og kannaðist ekki við að hafa átt svo mörg símtöl. Dómurinn taldi hegðun hans og tilraunir til að villa um fyrir tollvörðum benda til þess að hann hefði viljað leyna raunverulegum tilgangi ferðarinnar.
Rannsókn lögreglu leiddi einnig í ljós að annar Grikki hafði verið í samfylgd með honum á leiðinni frá Þýskalandi til Danmerkur og áfram til Hirtshals, þaðan sem þeir fóru með Norrænu til Íslands. Katsanos hafði í fyrstu sagt að hann hefði fyrst kynnst manninum um borð í ferjunni en breytti síðar framburði sínum þegar gögn um ferðalag þeirra voru lögð fyrir hann.
Sérsmíðað leynihólf í bílnum
Við meðferð málsins voru fengnir matsmenn til að skoða bifreiðina. Niðurstaða þeirra var að milligólfið í farmrýminu væri ekki staðlaður búnaður heldur hefði það verið sérsmíðað fyrir bílinn. Uppbyggingin var talin mjög óvenjuleg og ekki virtist vera neinn eðlilegur tilgangur með henni í daglegri notkun bifreiðarinnar.
Til að komast að leynirýminu þurfti að fjarlægja ýmsar innréttingar, klæðningar og gólfplötur. Matsmenn töldu þó að ökumaður hefði ekki endilega orðið var við fíkniefnin við akstur, enda hefði þyngd þeirra ekki haft teljandi áhrif á aksturseiginleika bifreiðarinnar.
Dómurinn taldi að breytingarnar á bílnum hefðu verið gerðar skömmu fyrir Íslandsferðina og að Katsanos hefði nýtt sér sérútbúna bifreiðina til að fela fíkniefnin. Ekki var þó talið fullsannað að breytingarnar hefðu verið gerðar eftir að hann eignaðist bílinn í mars 2025.
Framburður hans þótti ótrúverðugur
Dómurinn taldi framburð Katsanos hafa verið misvísandi og að skýringar hans á ferðalögum, fjármálum og samskiptum við aðra hefðu verið ótrúverðugar. Hann hafði meðal annars sagt að tilgangur ferðarinnar til Íslands hefði verið að leita sér að vinnu, þótt hann hefði ekki gert teljandi ráðstafanir í þeim tilgangi, hvorki varðandi atvinnu né gistingu.
Dómurinn taldi ekkert hafa komið fram sem stutt hefði þá skýringu að einhver annar hefði komið fíkniefnunum fyrir í bifreiðinni án vitundar hans. Var það niðurstaðan að hafið væri yfir skynsamlegan vafa að hann hefði af ásetningi staðið að innflutningi efnanna.
Í dóminum er jafnframt bent á að um mjög mikið magn af sterku kókaíni hafi verið að ræða og að efnin hefðu skapað mikla hættu hefðu þau komist í dreifingu hér á landi.
Katsanos hafði ekki áður verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi. Dómurinn tók einnig fram að ekki lægi annað fyrir en að hlutverk hans hefði verið að flytja efnin til landsins og koma þeim í hendur annarra.
Bifreiðin og síminn gerð upptæk
Auk níu ára fangelsisvistar voru 42.901,21 grömm af kókaíni, Renault Trafic-sendiferðabifreiðin og iPhone Pro-farsími Katsanos gerð upptæk.
Honum var jafnframt gert að greiða sakarkostnað sem nemur samtals 11.376.179 krónum. Þar af nema málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Gísla M. Auðbergssonar lögmanns, rúmum 7,2 milljónum króna.
Frá fangelsisrefsingunni dragast dagar sem Katsanos hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 28. mars 2026.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir