Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Bensínverð hækkar hér á landi á meðan heimsmarkaðsverð lækkar

Greining ASÍ sýnir að lækkun á erlendum mörk­uðum hefur aðeins að litlu leyti skilað sér til íslenskra neyt­enda.

Bensín á dælu
Bensín á dælu Samkvæmt grein­ingu ASÍ hefur lækkun heims­mark­aðs­verðs á bens­íni aðeins að litlu leyti skilað sér til íslenskra neyt­enda. Mynd: Engin Akyurt/Unsplash

Lækkun heims­mark­aðs­verðs á bens­íni hefur enn ekki skilað sér að fullu til íslenskra neyt­enda. Samkvæmt nýrri grein­ingu Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) hefur inn­lent bens­ín­verð án opin­berra gjalda haldið áfram að hækka á sama tíma og heims­mark­aðs­verð hefur lækkað veru­lega frá miðjum sept­em­ber.

Frá ára­mótum hefur með­al­tal lægsta bens­ín­verðs hjá íslenskum smá­sölum hækkað um tæp 35 pró­sent. Verð án opin­berra gjalda hefur hækkað um 40 pró­sent á sama tíma, en heims­mark­aðs­verð, miðað við stað­verð í New York-höfn, hefur hækkað um 20 pró­sent í íslenskum krónum.

ASÍ bendir á að þró­unin hafi verið ólík eftir tíma­bilum. Heims­mark­aðs­verð hækk­aði hratt fram á vor og hafði nær tvö­fald­ast frá ára­mótum þegar það náði hámarki í maí. Það lækk­aði síðan fram á sumar en tók aftur að hækka fram í miðjan sept­em­ber.

Innlent bens­ín­verð án opin­berra gjalda sveifl­að­ist mun minna á þessu tíma­bili. Frá sept­em­ber hefur þró­unin hins vegar snú­ist við: Heims­mark­aðs­verð hefur lækkað veru­lega en inn­lent verð hélt áfram að hækka fram í byrjun nóv­em­ber og hefur aðeins lækkað lít­il­lega síðan.

Hækkaði meira hér en í flestum samanburðarlöndum

Sam­an­burður ASÍ við önnur Evr­ópu­lönd sýnir að bens­ín­verð án opin­berra gjalda hækk­aði lengst af minna á Íslandi en víð­ast hvar í sam­an­burð­inum. Það breytt­ist hins vegar í haust þegar verð hér á landi hækk­aði hratt í sept­em­ber og hélt áfram að hækka í októ­ber, á sama tíma og það lækk­aði í flestum hinna land­anna.

Þann 9. nóv­em­ber hafði bens­ín­verð án opin­berra gjalda hækkað um tæp 58 pró­sent á Íslandi, mælt í evrum, frá 5. jan­úar. Til sam­an­burðar nam hækk­unin tæpum 46 pró­sentum sam­kvæmt við­miði Evr­ópu­sam­bands­ins. Aðeins á Írlandi var hækk­unin meiri, rúm­lega 61 pró­sent. Hún nam 23 pró­sentum í Hollandi og 35 pró­sentum í Finn­landi.

Munurinn var enn meiri síð­ustu vikur tíma­bils­ins. Frá lokum sept­em­ber til 9. nóv­em­ber lækk­aði bens­ín­verð sam­kvæmt við­miði Evr­ópu­sam­bands­ins um 11 pró­sent en hækk­aði um tæp þrjú pró­sent á Íslandi.

Verðlækkun skilar sér hægar en hækkanir?

ASÍ hefur áður bent á vís­bend­ingar um að inn­lent elds­neyt­is­verð bregð­ist hraðar og meira við hækk­unum á heims­mark­aði en lækk­unum. Í grein­ingu frá árinu 2025 kom meðal ann­ars fram að heims­mark­aðs­verð bens­íns í krónum hefði lækkað um tæp 14 pró­sent frá ára­mótum, en mán­að­ar­með­al­tal lægsta bens­ín­verðs hér á landi aðeins um 2,5 pró­sent.

Í nýj­ustu grein­ing­unni segir ASÍ að lækkun heims­mark­aðs­verðs síð­ustu vikna hafi aðeins að litlu leyti skilað sér í íslensku bens­ín­verði. Á móti hafi inn­lent verð hækkað hlut­falls­lega minna þegar heims­mark­aðs­verð rauk upp í vor og ekki fylgt hækk­unum þess í sumar.

Samtökin telja því mögu­legt að hluti haust­hækk­un­ar­innar hér á landi sé síð­búin aðlögun að erlendum aðstæðum. Þau taka þó fram að sam­an­burð­ur­inn einn og sér nægi ekki til að skera úr um hvort munur sé á hraða og umfangi þess hvernig inn­lent verð fylgir þró­un­inni á heims­mark­aði.

Í sam­an­burð­inum sé einnig mik­il­vægt að hafa í huga að íslenski mæli­kvarð­inn bygg­ist á með­al­tali lægsta verðs hjá hverjum smá­sala og aðferða­fræði og úrtak geti verið mis­mun­andi milli landa. Þá hafi geng­is­breyt­ingar áhrif á sam­an­burð­inn, sem er gerður í evrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Faðmlög á göngum þingsins og hvatning milli þingmanna sjást sjaldan utan þess, sagði Diljá Mist Einarsdóttir í ræðu sinni.
Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða