Najeb Mohammad Alhaj Husin, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun gegn barni, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Engar eignir fundust í þrotabúi hans þrátt fyrir að lýstar kröfur næmu rúmlega 9,3 milljónum króna.
Þetta kemur fram í opinberri tilkynningu um skiptalok búsins.
Najeb hlaut töluverða athygli í júlí 2025 þegar Hæstiréttur staðfesti fimm ára fangelsisdóm Landsréttar yfir honum fyrir nauðgun gegn 14 ára barni en hann starfaði í grunnskólanum sem barnið gekk í.
Í dómi Landsréttar var komist að þeirri niðurstöðu að Najeb hefði nýtt sér aldursmun og yfirburðastöðu gagnvart brotaþola til að beita barnið ólögmætri nauðung. Með því hefði hann þrýst á brotaþola að gangast undir samræði og önnur kynferðismök. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Landsréttar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir