andað og rúmgott einbýlishús við Skildinganes 33 í Skerjafirði í Reykjavík hefur verið sett á sölu. Ásett verð eignarinnar er 210 milljónir króna.
Húsið var byggt árið 1975 og er 219,4 fermetrar að stærð. Um er að ræða fimm herbergja einbýlishús á einni hæð sem stendur á 655 fermetra eignarlóð í einu af grónari íbúðahverfum höfuðborgarinnar.
Eignin þykir einkennast af vandaðri hönnun, rúmgóðri herbergjaskipan og mikilli birtu. Gólfsíðir gluggar og mikil lofthæð setja sterkan svip á húsið og skapa bjart og opið yfirbragð. Við byggingu þess var lögð sérstök áhersla á vandaðar lausnir, bæði hvað varðar innanhússhönnun og ytra útlit.
Innréttingar hússins eru veglegar og samkvæmt sölulýsingu hefur eigninni verið vel við haldið í gegnum tíðina.
Húsið stendur ofan götu og umhverfis það er gróinn og fallegur garður með útisvæði sem býður upp á fjölbreytta möguleika til útiveru og samveru. Staðsetning hússins á lóðinni og stórir gluggar stuðla jafnframt að góðri birtu innandyra.
Við innkeyrslu eignarinnar hefur verið komið fyrir rafhleðslustöð fyrir rafbíla.
Staðsetningin í Skerjafirði er einnig meðal þess sem vakin er athygli á í sölulýsingu. Frá húsinu er stutt í vinsælar gönguleiðir meðfram strandlengjunni og fjölbreytt útivistarsvæði í nágrenninu.





Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir