Margir forðast að gifta sig, ferðast eða taka stórar ákvarðanir á föstudeginum þrettánda vegna hjátrúar um að dagurinn boði ógæfu. En þótt dagurinn hafi slæmt orð á sér eru litlar vísbendingar um að hann sé í raun hættulegri en aðrir dagar.
Í dag er föstudagur þrettándi í þriðja sinn á árinu 2026. Oftar getur það ekki gerst á einu ári, og 2026 er eina árið á þessum áratug sem föstudagur ber þrisvar upp á þann þrettánda. Síðast gerðist það árið 2015.
En hvaðan kemur þessi ótti við föstudaginn þrettánda? Uppruni hjátrúarinnar er ekki að fullu þekktur, en ýmsar trúarlegar og þjóðsagnakenndar skýringar hafa verið nefndar.
Í norrænni goðafræði er meðal annars sagt frá því að Loki hafi laumast í veislu í Valhöll og verið þar þrettándi gesturinn. Þar drap hann Fimafeng, vinsælan þjón gestgjafans. Í kristinni hefð er Júdas sagður hafa verið þrettándi maðurinn við síðustu kvöldmáltíðina. Hann sveik síðar Jesú, sem var krossfestur á föstudegi.
Önnur skýring tengir óttann við musterissriddarana. Hundruð þeirra voru handtekin föstudaginn 13. október árið 1307, grunuð um villutrú. Hjátrúin virðist þó ekki hafa orðið útbreidd fyrr en á 19. öld, meðal annars í Frakklandi.
Á síðari árum hefur dagurinn einnig tengst hlutabréfahruninu svokallaða á föstudeginum 13. október 1989 og bandarísku hryllingsmyndunum um morðingjann Jason Voorhees.
Hjátrúin hefur raunveruleg áhrif
Þótt engar afgerandi vísbendingar séu um að föstudagurinn þrettándi sé óheilladagur hefur hjátrúin áhrif á daglegt líf og atvinnulíf.
Í könnun frá árinu 2015 sögðust 31 prósent aðspurðra myndu forðast að gifta sig á föstudegi 13. Brúðkaupsstaðir, blómabúðir og ljósmyndarar finna því fyrir áhrifunum. Einn viðburðastjóri í Bretlandi segir að engin brúðkaup hafi verið bókuð á föstudeginum þrettánda á þessu ári eða næstu þremur árum.
Nýleg rannsókn á fasteignaviðskiptum í Bretlandi bendir jafnframt til þess að íbúðir og hús sem gengið er frá kaupum á föstudeginum þrettánda seljist að jafnaði á lægra verði. Miðgildi söluverðs slíkra eigna á árinu 2026 var 275 þúsund pund, um 5,2 prósentum lægra en almennt miðgildi ársins.
Sálfræðingar segja að hjátrú geti veitt fólki ákveðna öryggistilfinningu. Þegar fólk upplifir að það hafi litla stjórn á aðstæðum geti hefðir og hjátrú skapað tilfinningu fyrir fyrirsjáanleika. Fólk muni síðan frekar eftir þeim tilvikum þegar hjátrúin virðist hafa reynst rétt en gleymi þeim fjölmörgu skiptum þegar ekkert gerist.
Ótti við föstudaginn þrettánda getur jafnvel þróast yfir í sérstaka fælni sem kallast paraskevidekatriaphobia. Að sögn sérfræðinga er slíkur ótti yfirleitt lærður, enda fæðist fólk ekki hjátrúarfullt heldur tileinkar sér slíkar hugmyndir í uppvextinum.
Ódýrari flugferðir en hugsanlega meiri umferðarhætta
Það er þó ekki allt slæmt við þessa dagsetningu. Þeir sem láta hjátrú ekki hafa áhrif á ferðaáætlanir sínar geta jafnvel sparað sér peninga. Flugfargjöld ráðast að miklu leyti af eftirspurn og færri vilja fljúga á þessum degi. Samkvæmt upplýsingum frá flugleitarvefnum Kayak voru flugferðir sem fóru frá Bretlandi föstudaginn 13. júní í fyrra að meðaltali 16 prósentum ódýrari en aðra daga í sama mánuði.
En hvað með hættuna á slysum? Rannsókn frá árinu 2013 á vegum Aviation Safety Network sýndi að meðaltal banaslysa í flugi var lægra á föstudegi 13. en aðra daga. Samkvæmt niðurstöðunum voru banaslys að meðaltali 0,067 á föstudeginum þrettánda samanborið við 0,091 aðra daga.
Önnur niðurstaða hefur þó vakið athygli. Tryggingafélagið Aviva skoðaði áratug af gögnum og komst að því að tjón vegna árekstra í umferðinni jókst að meðaltali um 13 prósent á þessari dagsetningu miðað við aðra daga í sama mánuði.
Vísindalegar rannsóknir gefa þó ekki skýra niðurstöðu um að dagurinn auki slysahættu. Sálfræðingar benda á að ótti við óhappadag geti sjálfur valdið kvíða og haft áhrif á einbeitingu fólks, til dæmis við akstur.
Ekki óheilladagur alls staðar
Föstudagurinn þrettándi er heldur ekki óheilladagur í öllum menningarheimum. Á Spáni og í Grikklandi er það þriðjudagurinn þrettándi sem vekur óhug, en á Ítalíu er föstudagurinn sautjándi talinn óheppilegur.
Í Japan og Kína er talan fjórir talin boða ólán, enda hljómar hún svipað og orðið „dauði“ á tungumálunum. Af þeim sökum eru til hótel þar sem fjórða hæðin er ekki númeruð.
Sumir líta hins vegar á töluna 13 sem gæfumerki. Söngkonan Taylor Swift hefur til dæmis oft talað um sérstakt samband sitt við töluna. Hún hefur meðal annars bent á að hún hafi orðið 13 ára á föstudeginum þrettánda og að ýmis mikilvæg tímamót á ferlinum hafi tengst tölunni.
Þótt dagurinn hafi því enn áhrif á ákvarðanir fólks og viðskipti er fátt sem bendir til þess að hann sé í raun verri en aðrir dagar. Kannski er því óhætt að halda sínu striki í dag, hvort sem maður ætlar að gifta sig, ferðast eða einfaldlega fara út í búð.
Grein þessi byggir á grein The Guardian.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir