Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, gagnrýnir borgarstjórn Reykjavíkur harðlega vegna aðstæðna fólks sem býr í hjólhýsum á Sævarhöfða. Hún segir fólkið búa við lífshættulegar aðstæður eftir að lokað var fyrir bæði vatn og rafmagn.
Í færslu á Facebook segir Inga að borgarstjórn hafi sýnt fólkinu mannvonsku og að framganga hennar verði henni til ævarandi skammar.
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar,“ segir Inga í upphafi færslunnar.
Hún segir að fyrr í vor hafi tekist að tryggja hjólhýsafólkinu mannsæmandi aðstöðu en fyrsta verk nýrrar borgarstjórnar hafi verið að rifta því fyrirkomulagi.
Inga beinir sérstaklega spjótum sínum að Einari Þorsteinssyni oddvita Framsóknarflokksin í borginni og segir það hafa verið eitt helsta áhugamál hans að „ráðast gegn þessu fólki“.
„Nú búa þau við lífshættulegar aðstæður, rafmagns- og vatnslaus,“ skrifar Inga.
Hún segir aðstæður fólksins minna á stríðsástand og varar við því að frost geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir fólk sem hefur hvorki aðgang að rafmagni né vatni.
Borgarráð Reykjavíkur vísaði nýverið frá tillögu um að opna aftur fyrir rafmagn og vatn á svæðinu yfir vetrarmánuðina. Meirihlutinn vísaði meðal annars til óviðunandi brunavarna og þess að svæðinu hefði verið lokað.
Inga lýkur færslu sinni með harðri áminningu til borgarstjórnar: „Skammist ykkar!“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


























Athugasemdir