Ég fór til vinnu til að sinna starfi mínu af samviskusemi. Eins og flest annað fólk mætti ég til að vinna, leggja mitt af mörkum og standa mig í starfi. Ég hafði enga ástæðu til að ætla að sú ákvörðun ætti eftir að hafa svo afdrifaríkar afleiðingar fyrir líf mitt.
Á árunum 2016–2017 starfaði ég í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 sem starfsmaður DK Hugbúnaðar ehf. Þar hafði mygla og rakaskemmdir greinst. Ég veiktist í kjölfar veru minnar í húsnæðinu og síðan þá hefur líf mitt tekið stakkaskiptum.
Frá árinu 2018 hef ég verið óvinnufær. Ég hef misst heilsuna, starfsgetuna og stóran hluta þess sjálfstæðis og frelsis sem flestir taka sem sjálfsögðum hlut.
Líf sem breyttist á einni nóttu – og hefur aldrei orðið samt
Veikindin hafa haft áhrif á nánast alla þætti daglegs lífs. Ég þoli illa lykt, efni, raka og myglu, ákveðna fæðu og fjölmörg áreiti í umhverfinu. Ljós, hávaði, kuldi, hreyfing og jafnvel venjuleg dagleg áreynsla geta haft mikil áhrif á líðan mína.
Ég hef misst röddina til frambúðar. Ég glími við dagleg meltingarvandamál, verki, höfuðverk, svima, máttleysi og mikla vanlíðan. Stundum missi ég kraft í útlimum, dett og á erfitt með að halda einbeitingu og skýrleika. Ég hef verið greind með ME, POTS og myglutengd veikindi.
Lífið hefur því ekki aðeins snúist um að vera veik. Það hefur snúist um að þurfa sífellt að takmarka líf sitt. Ég get lítið gert, lítið farið, lítið tekið þátt í félagslífi og þarf oft að halda mig heima eða í rúminu. Það sem áður var einfalt og sjálfsagt getur nú verið óyfirstíganlegt.
Þetta er veruleiki sem erfitt er að lýsa fyrir þeim sem hafa ekki upplifað hann. En þetta er líf mitt í dag.
Dómstólarnir viðurkenndu varanlegt heilsutjón – en niðurstaðan varð engin ábyrgð
Ég leitaði réttar míns og höfðaði mál vegna heilsutjónsins sem ég varð fyrir.
Í febrúar 2024 féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli nr. E-3098/2022. Þar var viðurkennd skaðabótaskylda DK Hugbúnaðar ehf. vegna líkamstjóns/heilsutjóns míns og greiðsluskylda úr ábyrgðartryggingu félagsins hjá VÍS. Orkuveita Reykjavíkur var hins vegar sýknuð.
Málinu var áfrýjað til Landsréttar. Í dómi 22. maí 2025 var niðurstaða héraðsdóms breytt og DK Hugbúnaður ehf. og VÍS tryggingar hf. sýknuð. Sýkna Orkuveitu Reykjavíkur stóð óhögguð.
Það sem mér finnst sérstaklega mikilvægt að draga fram er að Landsréttur lagði engu að síður til grundvallar, með vísan til matsgerðar og annarra gagna um heilsufar mitt, að ég hefði orðið fyrir varanlegu heilsutjóni vegna veru minnar í húsnæðinu.
Þarna blasir við sú niðurstaða sem reynist mér svo þungbær: Varanlegt heilsutjón var lagt til grundvallar, en enginn var talinn bera skaðabótaábyrgð á því.
Landsréttur lagði meðal annars áherslu á að meta bæri háttsemi fyrirtækjanna út frá þeirri þekkingu og þeim aðstæðum sem voru fyrir hendi þegar mygla greindist og á því tímabili sem málið tók til. Niðurstaðan varð sú að ekki hefði verið sýnt fram á saknæma háttsemi fyrirtækjanna. Heldur þekkingarleysi!
Ég virði að dómstólar þurfi að leggja lagaleg viðmið til grundvallar niðurstöðum sínum. En það breytir ekki þeirri staðreynd að ég sit eftir með varanlegt heilsutjón og líf sem verður aldrei aftur eins.
Þegar einstaklingurinn stendur einn gegn stórum fyrirtækjum
Það er ekki hægt að horfa fram hjá þeim mikla aðstöðumun sem getur verið á milli einstaklings og stórra, fjárhagslega sterkra fyrirtækja þegar kemur að langvinnum og flóknum dómsmálum.
Annars vegar er einstaklingur sem hefur misst heilsuna, starfsgetuna og stærstan hluta af fyrra lífi sínu. Hins vegar eru fyrirtæki sem hafa fjárhagslegt bolmagn, aðgang að sérfræðingum og lögfræðilegri aðstoð til að verja hagsmuni sína.
Það er ekki verið að halda því fram að fyrirtæki eigi ekki að verja hagsmuni sína eða njóta þeirra réttinda sem lög veita þeim. En það er eðlilegt að spyrja hvort einstaklingur í slíkri stöðu standi raunverulega jafnfætis þeim sem hann þarf að sækja rétt sinn gagnvart.
Dómsmál af þessu tagi eru ekki aðeins lagaleg átök. Þau krefjast tíma, orku, úthalds og fjárhagslegs bolmagns. Þetta er sérstaklega þungbært fyrir þann sem er þegar alvarlega veikur og hefur takmarkaða getu til að sinna daglegum verkefnum.
Hvernig á einstaklingur sem hefur misst heilsuna að hafa úthald til að berjast árum saman fyrir rétti sínum? Hvernig tryggjum við að fjárhagslegur og faglegur styrkur mótaðila ráði ekki úrslitum um það hvort einstaklingur geti haldið baráttunni áfram?
Ég tel að þetta séu spurningar sem samfélagið þurfi að taka alvarlega.
Hæstiréttur taldi málið ekki hafa verulegt almennt gildi
Ég óskaði eftir leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar. Í beiðninni lagði ég meðal annars áherslu á að málið varðaði ekki aðeins mína eigin hagsmuni heldur einnig skyldur vinnuveitenda og eigenda atvinnuhúsnæðis þegar þeir fá vitneskju um rakaskemmdir og myglu á starfsstöð.
Hæstiréttur hafnaði beiðninni 9. júlí 2025. Í ákvörðuninni segir meðal annars að málið hafi ekki verulegt almennt gildi og varði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni í skilningi laga um meðferð einkamála.
Ég ætla ekki að gera lítið úr því að áfrýjunarleyfi eru veitt samkvæmt ákveðnum lagaskilyrðum. En ég get ekki látið hjá líða að velta því fyrir mér hvernig mál um varanlegt heilsutjón í tengslum við vinnustað geti ekki talist hafa almennt gildi.
Hvaða skilaboð sendir slík niðurstaða til fólks sem veikist við störf sín? Hvaða fordæmisgildi hefur hún fyrir aðra starfsmenn sem kunna að standa frammi fyrir svipuðum aðstæðum?
Mál mitt snýst ekki aðeins um mig. Það snýst um öryggi á vinnustöðum, skyldur atvinnurekenda og rétt fólks til þess að geta treyst því að heilsu þess sé ekki stefnt í hættu við það eitt að mæta til vinnu.
Hver ber ábyrgð þegar einstaklingur tapar heilsunni?
Ég fór til vinnu og reyndi að sinna starfi mínu af samviskusemi. Ég missti heilsuna og hef ekki getað snúið aftur til vinnu frá árinu 2018.
Ég hef þurft að læra að lifa með veikindum sem takmarka nánast alla þætti tilverunnar. Ég hef misst margt sem ég taldi sjálfsagt og þurft að endurskilgreina líf mitt út frá því sem líkaminn leyfir mér hverju sinni.
Það sem situr þó eftir er ekki aðeins sorgin yfir heilsunni sem ég missti og lífinu eins og það var. Það er líka tilfinningin um að hafa þurft að berjast svo lengi fyrir því að fá réttláta úrlausn, án þess að fá þá niðurstöðu sem ég taldi að gögn málsins gæfu tilefni til.
Ég skrifa þessa grein ekki vegna þess að ég tel að persónuleg reynsla mín ein og sér eigi að ráða niðurstöðu dómsmáls. Ég skrifa vegna þess að ég tel að samfélagið þurfi að ræða hvernig við verndum einstaklinga á vinnustöðum, hvernig við bregðumst við þegar grunur vaknar um heilsuspillandi aðstæður og hvernig tryggt er að einstaklingar geti sótt rétt sinn án þess að þurfa að leggja síðustu krafta sína í langa og erfiða baráttu.
Enginn ætti að þurfa að velja á milli þess að mæta til vinnu og þess að vernda heilsu sína.
Við förum til vinnu til að vinna okkur fyrir lífinu – ekki til að tapa heilsunni, starfsgetunni og framtíðinni.
Hver verndar einstaklinginn þegar hann veikist á vinnustað – og þarf síðan að berjast einn fyrir því að heilsutjón hans sé viðurkennt?
Höfundur er menntaður viðskiptafræðingur með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum, móðir, amma, eiginkona, dóttir og kona með drauma, metnað og framtíð sem tók óvænta stefnu og er nú 100% öryrki.
Ragnheiður Sigurðardóttir
































Athugasemdir