Sex einstaklingar gistu fangageymslur lögreglunnar eftir annasama nótt á höfuðborgarsvæðinu. Alls voru 78 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.
Meðal verkefna lögreglu var að sinna útkalli vegna tveggja manna sem reyndu að komast aftur inn í húsnæði sem þeim hafði verið vísað úr. Mennirnir virtust ekki fara eftir fyrirmælum lögreglu og voru handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna ástands þeirra.
Fjórir voru einnig handteknir vegna brota á lögreglusamþykkt í Reykjavík eftir að hafa stofnað til slagsmála í miðbænum. Einn þeirra var vistaður í fangageymslu vegna ástands síns en hinir þrír voru látnir lausir að lokinni skýrslutöku á vettvangi.
Ökumaður var stöðvaður eftir að hafa ekið á ljósastaur, upp á umferðareyju og síðan á annan ljósastaur. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og var vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins.
Á Hafnarfjarðar- og Garðabæjarsvæðinu stöðvaði lögregla ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var látinn laus að lokinni sýnatöku. Þá var tilkynnt um einstakling með hníf á krá í hverfinu. Lögregla brást skjótt við en fann ekki hníf á þeim einstaklingum sem tilkynningin laut að.
Lögreglunni sem annast útköll í Kópavogi og Breiðholti barst tilkynning um innbrot í heimahús og er málið til rannsóknar.
Þá var ökumaður stöðvaður af lögreglunni sem sinni útköllum í Grafarvogi, Mosfellsbæ eða Árbæ, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var einnig látinn laus að lokinni sýnatöku.
































Athugasemdir