Vetrarmánuðirnir geta reynst hlaupurum erfiðir enda fylgja þeim styttri dagar, lægra hitastig og oft krefjandi veðurskilyrði. Myrkur, rigning og hálka geta aukið slysahættu og gert erfiðara að halda æfingaáætlunum. Með nokkrum einföldum breytingum er þó hægt að stunda hlaup með öruggum og árangursríkum hætti allan veturinn.
Í umfjöllun írska miðilsins Irish Runner eru tekin saman sjö mikilvæg atriði sem hlauparar ættu að hafa í huga þegar veturinn gengur í garð.
1. Gerðu þig sýnilegan
Bjartur hlaupafatnaður nægir ekki alltaf í myrkri. Endurskinsvesti, endurskinsborðar og fatnaður með endurskini geta aukið sýnileika gagnvart ökumönnum. Einnig er mælt með höfuðljósum, sérstaklega á illa upplýstum göngustígum. Mikilvægt er þó að gera ekki ráð fyrir að ökumenn hafi séð hlaupara þótt þeir séu vel sýnilegir.
2. Endurskoðaðu hlaupaleiðirnar
Hlaupaleiðir sem henta vel á sumrin geta orðið varasamar yfir veturinn. Óupplýstir stígar, holur og ójafnt undirlag auka slysahættu. Því er ráðlegt að velja vel upplýstar leiðir og forðast vegi án gangstétta þegar dimmt er.
3. Gefðu upphitun meiri tíma
Kalt veður getur gert upphaf hlaupa erfiðara. Breska heilbrigðisþjónustan NHS ráðleggur að fólk verji að minnsta kosti sex mínútum í upphitun fyrir kröftuga hreyfingu. Rösk ganga, létt skokk og liðkandi æfingar geta undirbúið líkamann fyrir meira álag.
4. Klæddu þig skynsamlega
Of mikill fatnaður getur valdið óþægindum þegar líkaminn hitnar. Léttur fatnaður í nokkrum lögum hentar yfirleitt betur en þykkar flíkur. Forðast ætti bómull þar sem hún heldur í raka. Vindur og úrkoma geta auk þess gert kuldann mun meiri en hitamælirinn gefur til kynna.
5. Fylgstu með undirlaginu
Blaut laufblöð, leðja, hálir gangstígar og ísing geta skapað hættu. Sérstaka varúð þarf í beygjum og niður brekkur. Einnig er mikilvægt að skoða ástand hlaupaskóna og tryggja að sólar þeirra veiti nægilegt grip.
6. Hlaupið með öðrum
Félagsskapur getur aukið bæði öryggi og hvatningu. Hlaupahópar og reglulegar æfingar með vinum geta auðveldað fólki að halda æfingum áfram þrátt fyrir myrkur og kulda. Sameiginlegar æfingar geta jafnframt gert langar hlaupaleiðir skemmtilegri.
7. Sýndu sveigjanleika
Ekki er skynsamlegt að fylgja æfingaáætlun í blindni þegar veður verður hættulegt. Stundum er betra að stytta hlaup, færa æfingu eða nota hlaupabretti. Einnig þarf að gæta að vökvainntöku þótt þorstatilfinning sé minni í kulda.
Meginatriðið er að viðhalda reglulegri hreyfingu án þess að fórna öryggi eða heilsu.
































Athugasemdir