Kona, sem ekki er nafngreind, leitaði til umboðsmanns Alþingis vegna þess að henni var gert að greiða kílómetragjald fyrir bifreið sem hafði verið stödd erlendis.
Konan kvartaði yfir ákvörðun ríkisskattstjóra þann 11. september síðastliðinn. Samkvæmt kvörtuninni þurfti hún að greiða gjaldið vegna þess að staða akstursmælis hafði ekki verið skráð þegar bifreiðin fór úr landi. Þá vantaði einnig gögn um flutning hennar aftur til Íslands.
Konan taldi ástæðu til að kanna hvort ríkisskattstjóri hefði farið að stjórnsýslureglum og tekið nægilegt tillit til fyrirliggjandi gagna.
Umboðsmaður Alþingis benti á að konan hefði sama dag kært ákvörðunina til yfirskattanefndar. Samkvæmt lögum verður umboðsmaður að bíða niðurstöðu nefndarinnar áður en hann getur tekið kvörtunina til skoðunar en umboðsmaður birti úrskurð sinn á vef sínum í byrjun nóvember.
































Athugasemdir