Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Heimur

Dómari hafnar kröfu um að leyna nafni þekkts ein­stak­lings

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Umboðsmaður Alþingis krefur Útlendingastofnun svara

Fjöl­margar kvart­anir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðs­manni, sem vill skýr­ingar á bið­tíma.

Umboðsmaður Alþingis krefur Útlendingastofnun svara
Tafir í afgreiðslu Umboðs­maður Alþingis hefur óskað skýr­inga frá Útlend­inga­stofnun vegna tafa á afgreiðslu umsókna. Myndin er sam­sett. Mynd: Samsett / Umboðsmaður Alþingis / Víkingur

Umboðs­maður Alþingis hefur óskað eftir ítar­legum skýr­ingum frá Útlend­inga­stofnun vegna langvar­andi tafa á afgreiðslu umsókna og mögu­legs mis­ræmis í upp­lýs­ingum stofn­un­ar­innar um máls­með­ferð­ar­tíma. Fjöl­margar kvart­anir hafa borist umboðs­manni und­an­farin miss­eri vegna þess hversu langan tíma tekur að afgreiða mál hjá stofn­un­inni.

Þetta kemur fram í bréfi sem sent var Kristínu Völ­und­ar­dóttur, for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar, þann 20. októ­ber síð­ast­lið­inn sem umboðs­maður Alþingis hefur birt á vef sínum. Þar er óskað svara við sjö ítar­legum spurn­ingum um starf­semi stofn­un­ar­innar og afgreiðslu­tíma umsókna.

Kvart­an­irnar varða meðal ann­ars umsóknir um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt, dval­ar­leyfi og alþjóð­lega vernd. Í mörgum til­vikum hefur afgreiðslan tekið langan tíma og hefur Útlend­inga­stofnun jafnan vísað til mik­illa anna og fjölg­unar umsókna þegar skýr­inga hefur verið óskað.

Umsóknir frá mars 2025 enn í bið

Í bréf­inu er sér­stak­lega vakin athygli á upp­lýs­ingum á vef Útlend­inga­stofn­unar þar sem fram kemur að nú sé verið að taka til vinnslu umsóknir um rík­is­borg­ara­rétt sem bár­ust í mars 2025. Aðrar umsóknir, meðal ann­ars um dval­ar­leyfi, hafa einnig beðið mán­uðum saman eftir afgreiðslu.

Umboðs­maður telur ástæðu til að kanna hvort upp­lýs­ingar stofn­un­ar­innar um með­al­af­greiðslu­tíma gefi raunsanna mynd af stöð­unni.

Samkvæmt vef­síð­unni er með­al­af­greiðslu­tími ýmissa umsókna á bil­inu tveir til ell­efu mán­uðir. Hins vegar virð­ast þær tölur ein­göngu byggj­ast á umsóknum sem hafa verið sam­þykktar.

Umboðs­maður óskar því skýr­inga á því hvers vegna umsóknir sem hefur verið synjað virð­ast ekki teknar með í útreikn­ing­ana og hvort slík fram­setn­ing geti gefið vill­andi mynd af raun­veru­legum afgreiðslu­tíma.

Krefst upplýsinga um elstu málin

Þá er óskað upp­lýs­inga um hversu gamlar elstu óaf­greiddu umsókn­irnar eru og hversu langan tíma tekur að með­al­tali að afgreiða mál sem vísað er til lög­fræð­inga stofn­un­ar­innar.

Einnig vill umboðs­maður vita hvers vegna afgreiðslu­tími er mis­mun­andi eftir teg­und umsókna og hvernig stofn­unin upp­lýsir umsækj­endur um fyr­ir­sjá­an­legar tafir.

Að lokum er Útlend­inga­stofnun gert að skýra hvort hún telji máls­hraða almennt við­un­andi og hvort gripið hafi verið til sér­stakra aðgerða til að stytta bið­tíma.

Útlend­inga­stofnun hefur frest til 5. nóv­em­ber til að svara fyr­ir­spurn­inni, en umboðs­maður hefur óskað eftir ítar­legum upp­lýs­ingum um stöðu mála og mögu­legar úrbætur á starf­semi stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

4
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Lög­reglu­maður dró upp byssu vegna hádeg­is­matar sam­starfs­manns

„Þetta atvik endurspeglar ekki þau gildi sem karlar og konur í lögreglunni í Myrtle Beach sýna af sér á hverjum degi“
Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Sport

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn

Heimur

Bridget Fonda sést opin­ber­lega í fyrsta sinn í langan tíma

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Hefur þú séð manninn?
Innlent

Segir sölu Ljós­leið­ar­ans geta ógnað almanna­hags­munum

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Þrír hand­teknir vegna ráns í Graf­ar­vogi