Þrír menn voru handteknir í Grafarvogi í gærkvöldi og nótt, grunaðir um rán. Mennirnir voru allir í annarlegu ástandi þegar lögregla hafði afskipti af þeim og voru þeir vistaðir í fangageymslu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í gærkvöldi og í dag.
Lögregla hafði einnig afskipti af öðrum manni í annarlegu ástandi í Grafarvogi. Sá var handtekinn og vistaður í fangageymslu þar sem hann gat hvorki sagt til nafns né greint frá því hvar hann ætti heima.
Ekið á ljósastaur í miðborginni
Tilkynnt var um umferðarslys í miðborg Reykjavíkur þar sem bifreið var ekið á ljósastaur. Minniháttar meiðsli urðu í slysinu og var málið afgreitt á vettvangi.
Þá barst lögreglu tilkynning um þjófnað úr verslun í póstnúmerinu 108 í Reykjavík. Það mál var einnig afgreitt á vettvangi.
Fjöldi ökumanna stöðvaður vegna umferðarlagabrota
Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í Hafnarfirði voru tveir ökumenn stöðvaðir, annar grunaður um ölvunarakstur og hinn um akstur undir áhrifum fíkniefna. Báðir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Í Garðabæ var ökumaður stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur og annar ökumaður sektaður fyrir að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað.
Þá var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við athugun kom í ljós að hann hafði jafnframt verið sviptur ökuréttindum. Honum var sleppt að lokinni blóðsýnatöku.
Lögregla hafði einnig afskipti af þremur ökumönnum vegna hraðaksturs. Tveir voru stöðvaðir í Garðabæ eftir að hafa ekið á 132 og 126 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar. Báðir voru sektaðir.
Þriðji ökumaðurinn var stöðvaður eftir að hafa ekið á 118 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 kílómetrar. Við nánari athugun reyndist hann einnig vera án ökuréttinda og var málið afgreitt með sekt.































Athugasemdir