Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, tók í morgun við 16 bréfum frá fólki með þroskahömlun fyrir hönd talsmanna fatlaðs fólks á Alþingi. Bréfin voru skrifuð af félögum í Átaki, félagi fólks með þroskahömlun, í tilefni þess að ár er liðið frá lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Kolbrún greindi frá afhendingunni undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Hún sagði Átak eina félagið hér á landi sem bæði væri stofnað og stjórnað af fólki með þroskahömlun. Félagið hefði lengi barist fyrir því að fólk með þroskahömlun fengi að tala fyrir sig sjálft.
„Það er allt of oft rætt um málefni þessa hóps án þess að rætt sé við fólkið sjálft,“ sagði Kolbrún. Hún sagði foreldra og fagfólk gegna mikilvægu hlutverki og lagði áherslu á að fólk með þroskahömlun fengi sjálft að hafa áhrif á ákvarðanir sem vörðuðu líf þess.
Kolbrún sagði bréfin hjálpa þingmönnum að skilja betur daglegt líf fatlaðs fólks og sjá hvar mætti gera betur. Hún benti jafnframt á að valfrjáls bókun við samninginn hefði verið fullgilt.
„Við talsmennirnir munum í framhaldinu hittast og fara saman yfir efni bréfanna,“ sagði Kolbrún.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir