Um 129 konur og stúlkur voru drepnar af maka eða öðrum fjölskyldumeðlim á hverjum degi að meðaltali árið 2025. Það jafngildir rúmlega fimm á hverri klukkustund. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UN Women og skrifstofu Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni og afbrot.
Samkvæmt skýrslunni, sem ber heitið Kvennamorð árið 2025, voru um 78 þúsund konur og stúlkur drepnar af ásetningi í heiminum í fyrra. Í um 60 prósentum tilvika var gerandinn maki eða annar fjölskyldumeðlimur. Heimilið er samkvæmt skýrslunni enn sá staður þar sem konur og stúlkur eru í mestri hættu á að verða drepnar.
María Rut og Ingileif leiða ljósagöngu
Á morgun, 25. nóvember, er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi. Þá hefst 16 daga átak UN Women á Íslandi. Ljósaganga í tengslum við átakið verður leidd af hjónunum Maríu Rut Kristinsdóttur þingkonu og Ingileif Friðriksdóttur, aðstoðarmanni utanríkisráðherra og fjölmiðlakonu, ásamt Stellu Samúelsdóttur, framkvæmdastýru UN Women á Íslandi.
Að sögn UN Women hafa María Rut og Ingileif ítrekað orðið fyrir hatursfullum og meiðandi ummælum vegna starfa sinna, mannréttindabaráttu og kynhneigðar.
Stafrænt ofbeldi getur fælt fólk frá opinberri umræðu
Í tilkynningu vegna átaksins vekja samtökin athygli á því að endurtekin hatursfull og niðrandi ummæli á stafrænum miðlum geti haft djúpstæð áhrif á heilsu, líðan og möguleika þolenda til þátttöku í samfélaginu. Konur í opinberum störfum og fjölmiðlum, hinsegin fólk, innflytjendur, ungt fólk og fatlaðar konur eru meðal þeirra hópa sem samtökin segja sérstaklega útsetta fyrir stafrænu ofbeldi.
„Þegar fólk veigrar sér við að taka þátt í opinberri umræðu af ótta við holskeflu hatursfullra ummæla og treystir sér jafnvel ekki til að sækjast eftir opinberum störfum er hættulega vegið að grunnstoðum lýðræðisins,“ segir í tilkynningu UN Women.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir