Brian Jeffrey Gross, fyrrverandi forstjóri Teya, hefur sett einbýlishús sitt við Smáragötu 10 í Reykjavík á sölu. Húsið var reist árið 1931 og er 375,6 fermetrar að stærð að bílskúr meðtöldum. Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Brian keypti húsið af Baltasar Kormáki Baltasarssyni leikstjóra. Húsið hefur verið endurnýjað frá grunni og sá Sunneva Ása Weisshappel um innanhússhönnunina.
Íbúðarhlutinn er 351,8 fermetrar á þremur hæðum og bílskúrinn 23,8 fermetrar. Samkvæmt söluyfirliti eru allar innréttingar sérsmíðaðar. Veggir eru handmálaðir með kalkmálingu, á gólfum er olíuborið askparket og gluggatjöldin eru sérsaumuð úr hör. Gólfhiti er í öllu húsinu og hafa bæði lagnir og stýrikerfi verið endurnýjuð.
Garðurinn snýr til suðvesturs og þar eru verandir með skjólveggjum og útigufubað. Ráðist var í endurbætur á garðinum árið 2023. Þá var skipt um jarðveg, nýr gróður gróðursettur og hellur lagðar meðfram húsinu. Gufubaðinu var komið fyrir við sama tækifæri og nýtt grindverk reist milli húsa.





Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir