Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tilkynningu um líkamsárás og eignaspjöll í miðborg Reykjavíkur. Málið kemur fram í dagbók lögreglu frá því í gærkvöldi og í nótt. Þá var einnig tilkynnt um eignaspjöll í Garðabæ og er það mál til rannsóknar.
Einn var handtekinn vegna gruns um brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkur og vistaður á lögreglustöð vegna ástands síns.
Þrír ökumenn voru handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum. Tveir voru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og einn undir áhrifum áfengis. Annar þeirra sem grunaðir voru um fíkniefnaakstur var jafnframt sviptur ökuréttindum. Fjórði ökumaðurinn var kærður fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir að nota farsíma við akstur. Ökumennirnir fjórir voru fluttir á lögreglustöð og látnir lausir að lokinni afgreiðslu málanna.
Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að aka gegn rauðu ljósi og einn til viðbótar fyrir að nota farsíma við akstur. Þá voru þrír kærðir fyrir að aka án gildra ökuréttinda eða þrátt fyrir sviptingu. Einn var kærður fyrir að hafa ekki ökuskírteini meðferðis og annar fyrir að aka án þess að kveikt væri á ökuljósum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir