Veitingamaðurinn Elís Árnason segist hafa tapað um 100 milljónum í viðskiptum við tvo fjárfesta.
„Þetta er bara altjón. Þetta átti náttúrlega að vera lífeyrissjóður okkar og barnanna en fór því miður út um gluggann.“
Þetta segir veitingamaðurinn Elís Árnason í nýjasta þætti Þetta helst á RÚV. Þar lýsir hann því fjárhagslega tjóni sem hann segist hafa orðið fyrir eftir að hann seldi fjárfestunum Helga Magnúsi Hermannssyni og Jóhannesi Birgi Skúlasyni kaffihúsið Adesso og veitingastaðinn Sport og Grill í Smáralind árið 2024.
Elís, sem rak Adesso í rúm tuttugu ár og hafði áður rekið Sport og Grill og O´Learys í sama húsnæði, segir að hann hafi aðeins fengið lítinn hluta kaupverðsins greiddan. Hann hafi að lokum þurft að taka tugmilljóna króna bankalán til að greiða upp lán sem hvíldu á fyrirtækjunum og hann hafði gengist í persónulegar ábyrgðir fyrir.
Elís segist hafa tapað um 100 milljónum króna á viðskiptunum. Kaupendurnir hafi átt að yfirtaka skuldir fyrirtækjanna en hann hafi setið eftir með þær án þess að fá kaupverðið greitt.
„Þetta er eins svört saga og hægt er,“ segir hann.
Hann heldur því jafnframt fram að fjárfestarnir hafi ekki staðið skil á virðisaukaskatti og greiðslum til lífeyrissjóða og vísar til þess að þeir séu til rannsóknar hjá héraðssaksóknara vegna þessara mála.
„Þeir byrja meira að segja strax að svindla og svíkja undan virðisauka og lífeyrissjóði vegna þess að þeir eru til rannsóknar hjá héraðssaksóknara fyrir einmitt þetta. Þeir eru ekki að borga neinar skattskyldur,“ segir Elís.
Bæði Adesso og Sport og Grill urðu gjaldþrota eftir að Elís seldi staðina. Hann hafði sjálfur starfað þar í um tvo áratugi, meðal annars sem kokkur.
Elís segir slíka viðskiptahætti ekki eiga að líðast hér á landi og að stöðva þurfi menn sem hann telur hafa hagað sér með þessum hætti. Hann segist þó ekki ætla að láta fjárhagslegt tjón ræna sig gleðinni.
„Ég ætla alveg að brosa framan í heiminn og hafa gaman. Þeir náðu af okkur peningum en ég ætla ekki að láta þá ná góða skapinu,“ segir hann.
Skiptastjóri vill Helga Magnús í atvinnurekstrarbann
Viðtalið við Elís kemur í kjölfar frétta af fyrirtækjum sem Helgi Magnús hefur tengst og farið hafa í þrot eða verið lokað af yfirvöldum.
Skiptastjóri þrotabús Veislunnar ehf., veitingafyrirtækis sem Helgi átti, hefur höfðað mál gegn honum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og krefst þess að hann verði settur í atvinnurekstrarbann í þrjú ár.
Veislan varð gjaldþrota með 215 milljóna króna skuldir. Skiptastjórinn Ólafur Björnsson lögmaður staðfestir að skiptum á búinu hafi lokið í haust og engar eignir fundist til að greiða upp í skuldirnar.
Ákvæði um atvinnurekstrarbann voru sett í lög árið 2022. Slíkt bann felur í sér að einstaklingi er óheimilt að koma að rekstri félaga í þrjú ár, teljist hann ekki hæfur til að stýra félagi vegna skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátta.
Í síðustu viku innsigluðu Skatturinn og lögreglan Hamborgarafabrikkuna á Höfðatorgi. Móðurfélag staðarins er skráð á rúmlega tvítugan son Helga og Jón Örn Jakobsson. Þeir tóku við rekstrinum í mars og hafa því aðeins átt staðinn í rúmlega hálft ár.
Tengsl við 23 félög
Helgi hefur einnig tengst hamborgarastaðnum Brixton við Tryggvagötu. Róbert Aron Magnússon, betur þekktur sem Robbi Chronic, átti staðinn áður en Helgi og Jón Örn tóku við honum í mars. Róbert segir enga greiðslu hafa komið fyrir viðskiptin heldur hafi þeir tekið yfir rekstur og skuldbindingar staðarins. Brixton varð gjaldþrota skömmu síðar.
Helgi hefur ekki viljað veita fréttastofu RÚV viðtal. Hann segist ekki eiga Hamborgarafabrikkuna, Nautafélagið eða Brixton, en viðurkennir tengsl við Litlu-Fabrikkuna. Hann hafnar því að tengsl séu á milli Litlu-Fabrikkunnar og Brixton, þótt staðirnir séu í sama húsnæði við Tryggvagötu.
Samkvæmt hlutafélagaskrá tengist Helgi nú ellefu félögum, meðal annars í veitingarekstri, fasteignum, dekkjaþjónustu, garðyrkju og vöruflutningum. Söguleg gögn sýna að hann hefur í gegnum tíðina tengst alls 23 félögum, meðal annars sem eigandi og prókúruhafi. Mörg þeirra hafa orðið gjaldþrota.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir