Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur ógilt tilboð í fasteign sem 84 ára maður samþykkti tæpum þremur mánuðum áður en hann lést. Hann hafði búið á hjúkrunarheimili um árabil. Þegar hann samþykkti að selja eignina var hæfni hans til að hugsa og muna verulega skert.
Málið snýst um 104,3 fermetra raðhúsaíbúð. Kona bauð 19 milljónir króna í hana sumarið 2025. Maðurinn samþykkti tilboðið 4. ágúst en lést 31. október sama ár. Dánarbú hans krafðist þess að kaupin yrðu ógild.
Fasteignasali mat eignina á 31 milljón króna. Samkvæmt öðru verðmati var hún 23 milljóna króna virði.
Hafði veitt bróðursyni sínum umboð
Árið 2022 hafði maðurinn veitt bróðursyni sínum fullt umboð til að sjá um fjármál sín og fasteignina. Konan vissi af umboðinu. Samt samdi hún beint við manninn án þess að bróðursonurinn kæmi að málinu.
Fyrir dómi kom fram að andlegri heilsu mannsins hefði hrakað mikið síðustu æviárin og bentu minnispróf til heilabilunar. Dómurinn taldi líklegt að maðurinn hefði þegar verið skertur þegar kauptilboðið var samþykkt.
Starfsfólk hjúkrunarheimilisins var þó ekki á einu máli um ástand mannsins. Tveir starfsmenn töldu hann hafa skilið hvað undirritunin þýddi. Deildarstjóri taldi hann hins vegar ekki færan um að gæta hagsmuna sinna í fjármálum.
Dómurinn taldi ekki sannað að konan hefði vitað af skerðingu á minni og hugsun mannsins. Hún hefði þó ekki sýnt næga aðgát þegar hún samdi við hann án þess að hafa umboðsmann hans með í ráðum.
Dómurinn ógilti því kauptilboðið. Konunni var gert að greiða dánarbúinu 1,4 milljónir króna í málskostnað. Dánarbúið þurfti heldur ekki að afhenda henni fasteignina.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir