Davíð Már Kristinsson, handboltaþjálfari og álitsgjafi í Handkastinu, minnist vinar síns Guðjóns Þórðarsonar knattspyrnuþjálfara, sem lést á dögunum, í einlægri færslu á Facebook.
Þar rifjar Davíð Már upp áralanga vináttu þeirra, ferðalög, löng símtöl og ótal samræður þar sem farið var yfir málin frá öllum hliðum. Hann segir Guðjón hafa verið einstakan mann sem hafi haft mikil áhrif á sig.
Vináttan hófst fyrir alvöru vorið 2011 þegar Davíð Már og æskuvinur hans, Stefán Árnason, ákváðu að hafa samband við Guðjón til að hitta hann og ræða íþróttir, þjálfun og lífið.
Guðjón hafði þá tengsl við fjölskyldur þeirra beggja. Hann hafði þjálfað Halldór, bróður Davíðs Más, hjá KA á árunum 1988 til 1990 og starfað um tíma með föður hans hjá lögreglunni á Akureyri.
„Símtalið var gott, opinskátt og skemmtilegt,“ rifjar Davíð upp.
Guðjón var þá nýtekinn við BÍ/Bolungarvík og bauð þeim félögum að koma vestur um sumarið. Þeir þáðu boðið og eyddu helgi í Bolungarvík, heimsóttu Guðjón á heimili hans, kíktu á æfingu og fylgdust með leik.
„Ferðin vestur var frábær og eftirminnileg fyrir margra hluta sakir,“ segir Davíð.
Eftir heimsóknina efldist vinskapurinn og samskiptin urðu regluleg. Þegar Guðjón tók við Grindavík árið 2012 heimsóttu þeir hann nokkrum sinnum í kringum leiki og æfingar.
Þótt Guðjón væri næstu ár ekki við þjálfun héldu símtölin og hittingarnir áfram.
„Þar sem öll mál milli himins og jarðar voru krufin til mergjar,“ skrifar Davíð.
Sérstaklega minnist hann heimsóknar þeirra til Færeyja þegar Guðjón þjálfaði NSÍ Runavík.
„Heimsókn okkar til Færeyja þegar hann var þjálfari NSÍ Runavík var eftirminnileg og ógleymanleg. Guðjón fór á kostum hvort sem það var á æfingasvæðinu, í samskiptum við stjórnarmenn, heima hjá sér eða í bílferð sem við fórum um Færeyjar.“
Davíð segir alltaf hafa verið jafn gott að heimsækja Guðjón, hvort sem hann bjó í Grafarvogi, Kópavogi, á Akranesi eða í Garðabæ.
Hann hafi ávallt talað tandurhreina íslensku og hvergi slegið af í skoðunum sínum. Þá hafi bransasögurnar verið ógleymanlegar.
„Sumar heyrði maður oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Frásagnalistin alltaf jafn góð,“ segir Davíð.
Hann lýsir Guðjóni sem manni með einstaka nærveru og hæfileika til að lesa í fólk og aðstæður.
„Guðjón var með ótrúlega áru og persónutöfra. Rosalega næmur á svo margt í fólki, umhverfi og aðstæðum. Og með einstaka leiðtoga- og stjórnunarhæfni. Svo ekki sé minnst á orðheppnina og valdið á íslenskri tungu.“
Húmorinn enn til staðar á spítalanum
Undir það síðasta, þegar Guðjón var orðinn veikur, lagði Davíð Már áherslu á að heimsækja vin sinn á Landspítalann. Hann náði að heimsækja hann tvisvar.
Í annarri heimsókninni sýndi Guðjón að húmorinn var enn á sínum stað þrátt fyrir versnandi heilsu.
„Davíð minn þú átt eftir að fá hálsríg við að horfa á allar þessar fallegu hjúkkur sem ganga hér um gangana,“ sagði Guðjón við hann.
Davíð segir að kvöldið áður en Guðjón lést hafi þeir rætt saman í síma. Spjallið hafi verið öðruvísi en gott og honum hafi fundist hann skynja að þetta gæti orðið síðasta samtal þeirra.
„Morguninn eftir fæ ég þá harmafregn að hann sé látinn,“ skrifar Davíð.
Í lok færslunnar kveður hann vin sinn með hlýjum orðum og þakkar honum fyrir vináttuna, samverustundirnar, símtölin og allar umræðurnar.
„Hvíldu í friði Gaui og takk fyrir allt. Takk fyrir vináttuna, alla hittingina, öll símtölin, allar umræðurnar þar sem mjög oft var svo sannarlega farið á dýptina.“
Að lokum sendir Davíð Már Ingu og öðrum aðstandendum Guðjóns innilegar samúðarkveðjur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir