Gréta María Grétarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lágvöruverðsverslunarinnar Prís, hefur höfðað mál gegn Samkaupum hf., sem eiga og reka verslunarkeðjuna. Málið er skráð sem vinnulaunamál hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og verður tekið fyrir miðvikudaginn 18. nóvember næstkomandi.
Ekki liggur fyrir hversu háar fjárkröfur Gréta María gerir á hendur fyrirtækinu eða hver nákvæmlega ágreiningur aðila er.
Gréta María hætti óvænt sem framkvæmdastjóri Prís á síðasta ári. Hún hafði stýrt verslunarkeðjunni frá opnun hennar í ágúst 2024 en áður gegndi hún meðal annars stöðu forstjóra Heimkaupa.
Gréta María er menntuð véla- og iðnaðarverkfræðingur og starfaði áður í bankageiranum. Árið 2016 tók hún við framkvæmdastjórastöðu hjá Krónunni og gegndi henni í fjögur ár.
Í ágúst síðastliðnum var greint frá því að Gréta María hefði stofnað ráðgjafarfyrirtækið Svarta mamban consulting ehf.
Samkaup eru meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og reka meðal annars Nettó, SPAR, Prís, Kjörbúðina, Krambúðina og 10–11, auk netverslunarinnar Heimkaupa.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir