Leikstjórinn Ragnar Bragason vakti athygli á samfélagsmiðlum eftir að hann birti myndband af óvenjulegum ljósum á himni yfir Sundahöfn. Ljósin sá hann þegar hann var á ferð í Ármúla um klukkan níu um morguninn, nú á dögunum.
Að sögn Ragnars voru ljósin sex talsins, þrjú pör sem mynduðu beina línu og virtust færast áfram hvert á eftir öðru með jöfnu millibili.
Hann líkti hreyfingunni við lendingarljós á flugbraut og sagði ljósin hafa fjarlægst borgina án þess að breyta innbyrðis fjarlægð sinni. Ragnar fylgdist með ljósunum um stund áður en hann stöðvaði bílinn og tók upp myndband.
Hann spurði jafnframt hvort fleiri hefðu orðið varir við fyrirbærið.
Í athugasemdum við færsluna velti Egill nokkur því upp hvort um gæti verið að ræða dróna á vegum lögreglunnar, sem væri mögulega að æfa sig á svæðinu.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens tók undir að skýringin gæti ekki verið drónar og svaraði Agli:
„Þetta eru ekki drónar ég sá þetta útí við Gróttu ekki drónar.“
Egill greindi síðar frá því að hann hefði skoðað flugumferðina á Flightradar og taldi sig hafa fundið skýringuna. Þar hefðu sést þrjár litlar flugvélar á eftir hvor annarri.
Ekki voru þó allir sannfærðir um þá skýringu. Einn þeirra sem tjáðu sig sagði ljósin hafa verið áberandi lengi á sama stað og ekki hreyfst eða horfið með þeim hætti sem búast mætti við af flugvélum.
„Mjög sérstakt!“ sagði viðkomandi og bætti við að fleiri hefðu lýst svipaðri upplifun.
Fjölmargir tóku þátt í umræðunum og sögðust einnig hafa séð ljósin. Ekki liggur þó fyrir með óyggjandi hætti hvað olli ljósaganginum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir